Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mjúk lending framundan?

Það er óhætt að segja að margt sé í gangi í íslensku efna­hags­lífi núna í byrjun árs­ins 2019 og áhuga­vert verður að sjá hver þró­unin verður næstu mán­uði.

Mjúk lending framundan?
|

Í gær var kynnt spá um fjölda far­þega sem fara munu um Kefla­vík­ur­flug­völl á þessu ári. Er gert fjöld­inn muni drag­ast saman um nærri níu pró­sent. Fari úr nærri tíu millj­ónum far­þega sem komu árið 2018 í tæp­lega níu millj­ónir á þessu ári.

Munar þar mest um fækkun á svoköll­uðum skiptifar­þegum sem fljúga helst á milli Norður-Ameríku og Evrópu með milli­lend­ingu á Íslandi.  Haft var eftir Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála­ráð­herra í kvöld­fréttum Rúv að þetta væri minni fækkun en margir hefðu búist við.

Eftir kröft­ugan vöxt hjá ferða­þjón­ust­unni und­an­farin ár virð­ist greinin því vera að ná vissu jafn­vægi. Að sinni að minnsta kosti. Í upp­færðri þjóð­hags­spá frá Íslands­banka fyrir 2018-2020 sem kynnt var í lok síð­ustu viku var því spáð að hægja myndi á íslensku efna­hags­lífi núna 2019. Önnur upp­sveifla væri svo vænt­an­leg 2020. Hafa margir efast um þessa spá þar sem nið­ur­sveiflur standa yfir­leitt lengur.

Í dag stendur ferða­þjón­usta undir rúm­lega 40% af útflutn­ings­tekjum Íslend­inga á meðan sjáv­ar­út­vegur og áliðn­aður er nærri 35% til sam­ans. Því horfa auð­vitað margir til ferða­þjón­ust­unnar og hverjar séu horf­urnar þar. Í gær tóku hluta­bréf í norska flug­fé­lag­inu Norwegian Air líka mikla dýfu.

Kristján Þór­ar­ins­son, rit­stjóri Túrista, lét hafa eftir sér í gær að óvissan með far­þega­fjöld­ann til Íslands árið 2019 væri enn þá veru­leg. Þá væri ekki enn komið í ljós end­an­lega hvernig aðkoma Indigo Partners verður að Wow air.

Því má spyrja sig hversu lík­legt það sé að spá Isavia um far­þega­fjölda og spá Íslands­banka um næsta góð­æri árið 2020 muni ræt­ast. 12 mán­aða verð­bólga mæld­ist 3,4% í jan­úar. Mikil óvissa ríkir um hvernig kjara­samn­ingar munu fara og hvaða áhrif það gæti haft á verð­bólgu. Þá lækk­aði kaup­máttur í fyrsta skipti af ein­hverju ráði nú í des­em­ber eða allt frá upp­hafi árs 2015.

Verður Íslandsbanki seldur á árinu?

Átaks­hópur um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði kynnti í síð­ustu viku 40 til­lögur til að bæta stöð­una á hús­næð­is­mark­aði. Áhuga­vert verður að sjá hvernig og hversu hratt verði hægt að vinna úr þessum til­lögum og koma þeim í fram­kvæmd. Eftir miklar hækk­anir á fast­eigna­mark­aði hefur nú dregið vel úr hækk­unum. Árið 2017 varð minnsta hækkun á íbúða­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2011, sam­kvæmt hag­fræði­deild Lands­bank­ans. Þannig má nefna að íbúða­verð í mið­bænum hefur lækkað und­an­farna 12 mán­uði.

Árið 2017 varð minnsta hækkun á íbúða­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2011.

Á útboðs­þingi Samtaka iðn­að­ar­ins í síð­ustu viku kynntu tíu opin­berir aðilar fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir upp á 128 millj­arða króna á árinu 2019. Var það 49 millj­arða króna hækkun frá útboðs­þingi árið áður. Því virð­ast ríki og sveit­ar­fé­lög ekki vera að hægja á.

Þá fjall­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um hvít­bók á Alþingi í gær. Var haft eftir honum að best væri að setja fyrst fram áætlun um sölu Íslands­banka áður en hugað yrði að sölu Lands­bank­ann. Starfs­hópur sem vann hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi kynnti sem kunn­ugt er til­lögur sínar í des­em­ber.

Því er óhætt að segja að margt sé í gangi í íslensku efna­hags­lífi þessa stund­ina og verður áhuga­vert að sjá hvernig málin þró­ast á næstu mán­uðum.

Mynd / Isavia

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi