Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Félögin vilja koma til móts við öll börn

Auður Inga Þor­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UMFÍ, segir að í breyttu lands­lagi séu ung­menna- og íþrótta­fé­lög nú að skoða hvernig hægt sé að koma til móts við trans börn og önnur börn í íþróttum með mis­mun­andi þarfir.

Félögin vilja koma til móts við öll börn

Hindr­an­irnar í dag­legu lífi geta verið margar fyrir trans fólk og ein þeirra er þátt­taka þeirra í íþróttum og sundi eins og fram kemur í við­tali við móður trans stelpunnar Ronju Sifjar Magn­ús­dóttur. En hvernig er hægt að koma til móts við trans börn innan íþrótta­heims­ins?

„Þessa stund­ina erum við að reyna að átta okkur á hvernig fram­tíðin lítur út og taka ákvarð­anir í takt við það. Þetta er einn af þessum flokkum sem er að breyt­ast í sam­fé­lag­inu, ekki bara innan íþrótta­heims­ins,“ segir Auður Inga Þor­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UMFÍ.

Auður segir fyrsta skrefið innan ung­menna­fé­lags­hreyf­ing­ar­innar það að vinna að því að allir geti verið með í íþróttum óháð hvers konar hugs­an­legum tak­mörk­unum og þrösk­uldum. „Fyrsta skrefið er opin umræða. Alls staðar þar sem við ræðum þessi mál er fólk mjög jákvætt. Og það er mín til­finn­ing að þegar umræðan snýr að börnum þá er fólk sér­stak­lega jákvætt og til­búið til að finna lausnir svo að sem flestir geti notið sín í íþróttum,“ segir Auður.

Alls staðar þar sem við ræðum þessi mál er fólk mjög jákvætt.

Helsta hindr­unin þessa stund­ina að sögn Auðar er sú að fólk veit ekki almenni­lega hvernig á að bregð­ast við og koma til móts við fjöl­breyti­leik­ann í sam­fé­lag­inu. Þar á meðal eru trans börn.

„Okkar upp­lifun er sú að fólk er ekki endi­lega búið að mynda sér skoðun, fólk veit ekki hvernig er best að taka á þessum málum. Fáir verk­ferlar virð­ast vera til. Fólk getur verið óör­uggt en allir eru samt af vilja gerðir og vinna því með hvert mál fyrir sig.“

Stjórnendur og þjálfarar eru opnir fyrir lausnum

Spurð út í hvort hún viti til þess að trans börn hætti frekar að stunda íþróttir en önnur börn segir Auður: „Það eru ekki til neinar tölur um það hjá UMFÍ. Við höfum sem dæmi verið að skoða hvort börn af erlendum upp­runa hætti frekar að stunda íþróttir en önnur börn og það virð­ast vera skýr tengsl þar á milli. En við höfum ekki skoðað íþrótta­iðkun trans barna sér­stak­lega.“

Auður kveðst þá ekki vita til þess hvort það sé á dag­skránni að mæla hvort trans börn hald­ist verr í íþróttum en önnur börn.

„En þessi mála­flokkur hefur opn­ast að und­an­förnu og það er upp­lifun okkar að félögin vilja koma til móts við börn sem eru með ólíkar þarfir.“

Jákvæð við­brögð við umræð­unni um hvernig sé hægt að koma til móts við fjöl­breytt sam­fé­lag  kemur Auði ekki á óvart. „Svona er umræðan bara að þró­ast í öllu sam­fé­lag­inu og ung­menna- og íþrótta­fé­lögin þurfa að bregð­ast við því. Stundum er fólk bara að bregð­ast við hlutum af því að það þarf að gera það en þegar kemur að þessum mála­flokki þá vill fólk svo sann­ar­lega bregð­ast við.“

Það er upp­lifun okkar að félögin vilja koma til móts við börn sem eru með ólíkar þarfir.

Auður er bjart­sýn á fram­tíð­ina og þeim breyt­ingum sem eru að eiga sér stað. „Ég get alveg full­yrt að ster­íótýpur eru á und­an­haldi og jafn­rétti er í for­grunni í íþrótta­heim­inum, við sjáum alþjóð­legar áherslur í átt að ókyn­bundnum íþróttum og eins erum við að sjá fatl­aða og ófatl­aða keppa meira saman.“

Mikilvægt að hafa umgjörð

Að mati Auðar er mik­il­vægt að búa til skýra umgjörð um hvernig trans börn geta stundað íþróttir innan íþrótta­fé­lag­anna.

„Það er mik­il­vægt vegna þess að þegar börn og ung­lingar fara að keppa í íþróttum þá hafa íþrótta­fé­lögin verið að fá alls konar kvart­anir og kæru­mál varð­andi móta­hald. Ef við búum ekki til skýran ramma þá vand­ast málin,“ segir Auður.

„Það er nefni­lega hræði­legt að hugsa til þess að ætla að leyfa trans börnum að æfa íþrótt­irnar eins og hentar þeim en ætla svo að snúa ákvörð­un­inni við þegar þau kom­ast á ung­lings­aldur eða þegar þau eru farin að keppa á mótum. Það væri ekki góð nið­ur­staða. En von­andi er hægt að kom­ast að far­sælli lausn sem fyrst. Það er alla­vega mjög jákvætt að fólk er að skoða þennan mála­flokk og koma umræð­unni af stað.“

Sjá einnig: „Það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi