Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Akureyringar stjórna nú bæði Eimskip og Samskip

Vilhelm Már Þor­steins­son hefur verið ráð­inn for­stjóri Eimskips. Hann hefur starfað hjá Íslands­banka frá árinu 1999 og nú síð­ast sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja og fjár­festa. Vilhelm er sonur Þosteins Vil­helms­sonar, fyrrum eig­anda Samherja sem átti einnig fjár­fest­inga­fé­lagið Atorku.

Akureyringar stjórna nú bæði Eimskip og Samskip
|

Mannlíf fjall­aði nýlega um mögu­leg for­stjóra­skipti eftir að til­kynnt var um að Gylfi Sig­fús­son myndi flytja sig til Banda­ríkj­anna og taka við starf­semi Eimskips þar og í Kanada ásamt því að stýra Eimskip logistics. Þau nöfn sem Mannlíf nefndi þá sem væru lík­legir til að taka við Eimskip voru Björgólfur Jóhanns­son, fyrrum for­stjóri Icelandair, Baldvin Þor­steins­son núver­andi stjórn­ar­for­maður Eimskips og Jón Björns­son, fyrrum for­stjóri Festar.

Nú er ljóst að það verður hins vegar Vilhelm Már Þor­teins­son sem tekur við hjá þessu gam­al­gróna fyr­ir­tæki. Vilhelm er frá Akureyri og er fæddur árið 1971. Er mennt­aður við­skipta­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og er með MBA gráðu frá Pace Uni­versity í New York. Hefur hann starfað hjá Íslands­banka í 18 ár og for­verum hans. Hann var einn af fremstu skíða­mönnum lands­ins á yngri árum og var í skíða­lands­lið­inu á sama tíma og Kristinn Björns­son sem margir muna eftir.

Mynd af Facebook-síðu Eimskips.

Segja má að mikil tengsl séu á milli Vilhelms og Samherja sem nú er stærsti hlut­hafi Eimskips. Þor­steinn Vil­helms­son, faðir Vilhelms er bróðir Krist­jáns Vil­helms­sonar, eins af eig­endum Samherja. Þor­steinn stofn­aði Samherja með Krist­jáni bróður sínum og Þor­steini Má Bald­vins­syni, frænda þeirra árið 1983. Árið 1999 seldi Þor­steinn Vil­helms­son hins vegar hlut sinn í Samherja. Fyrir banka­hrunið átti Þor­steinn síðan Atorku Group sem fór í greiðslu­stöðvun eftir banka­hrunið. Það var einmitt Kald­bakur, fjár­fest­inga­fé­lag Samherja sem keypti hluta af eignum Atorku árið 2012 þegar félagið fjár­festi í Jarð­bor­unum.

Akureyringar stjórna Eimskip og Samskip

Vilhelm hefur hins vegar ekki tekið þátt í fjár­fest­ingum með föður sínum heldur hefur hann unnið hjá Íslands­banka í 18 ár líkt og áður kom fram. Hann var einn þeirra sem sett­ist í fram­kvæmda­stjórn Glitnis í maí árið 2008 og fékk á sama tíma 800 millj­óna kúlu­lán í gegnum félag sitt AB 154 ehf. til kaupa á hluta­bréfum í Glitni. Á þeim tíma var Þor­steinn Már Bald­vins­son stjórn­ar­for­maður Glitnis.

Áhuga­vert þykir að nú stýra tveir Akur­eyr­ingar báðum helstu flutn­inga­fyr­ir­tækjum lands­ins. Í haust var Birkir Hólm Guðnason ráð­inn for­stjóri Samskipa en hann hafði um ára­bil starfað hjá Icelandair. Birkir er þremur árum yngri en Vilhelm.

Frekari breytingar framundan hjá Eimskip?

Þeir aðilar á mark­aði sem Mannlíf ræddi við í des­em­ber þegar vanga­veltur voru um nýjan for­stjór­ara töldu lík­leg tæki­færi í því að skipta út stjórn­endum hjá Eimskip, nýta fé þess betur, þróa vöru­hótel þess enn frekar svo nokkuð sé nefnt. Hér þarf auð­vitað líka að hafa í huga að starf­semi Eimskips í dag er allt önnur en fyrir ára­tug síðan. Má í því sam­hengi nefna að árið 2007 námu heild­ar­eignir þess um 200 millj­örðum króna en nema í dag 65 millj­örðum króna. Veltan í dag er þó ein­ungis um 10% minni en þegar best var eða rúm­lega 90 millj­arðar króna.

Því verður áhuga­vert að sjá hvaða breyt­ingar verða með til­komu þess að Vilhelm Már Þor­steins­son tekur við sem for­stjóri Eimskips og hvaða breyt­ingar frændur hans hjá Samherja ætli sér að gera varð­andi rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á kom­andi miss­erum. En lík­legt má telja að frek­ari breyt­ingar séu framundan á meðal lyk­il­stjórn­enda Eimskip og að Vilhelm komi með menn sem hann treystir og þekkir inn í lyk­il­stöður í fyr­ir­tæk­inu, sem mun á sama tíma end­ur­spegla áherslur stærsta eig­anda fyr­ir­tæk­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi