Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Ásgeir hyggur á stórfellda endurkomu

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum for­stjóri og eig­andi Baugs, óskaði á dög­unum eftir stjórn­ar­sæti hjá Högum hf. sem hann missti eftir að Baugur Group var lýst gjald­þrota í mars árið 2009.

Jón Ásgeir hyggur á stórfellda endurkomu
Jón Ásgeir Jóhann­es­son

Eins og kunn­ugt er tók Arion banki Haga hf. yfir eftir banka­hrunið í óþökk fyrrum eig­anda þess. Í dag ráða íslenskir líf­eyr­is­sjóðir yfir um 40% hluta­fjár Haga hf. og sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs leggj­ast þeir gegn því að Jón Ásgeir fái að setj­ast í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Stærstu eig­endur Haga hf. eru Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) með 13,75% hlut og líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gild með 12,50% hlut.

Árið 2013 var Jón Ásgeir dæmdur fyrir skatta­laga­brot er snéri að rekstri Baugs og Gaums og hlaut 12 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og var gert að greiða 62 milljón króna sekt. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu ómerkti síðan þann dóm á síð­asta ári og þurfti Jón Ásgeir því ekki að greiða sekt­ina og var jafn­framt dæmdar tvær millj­ónir króna í bætur.

Árið 2008 dæmdi Hæsti­réttur Jón Ásgeir í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi vegna brots á bók­halds­lögum. Það þýddi að honum var óheim­ilt að sitja í stjórn fyr­ir­tækja á Íslandi í þrjú ár, sbr. 66. grein laga um hluta­fé­lög.

Honum er hins vegar heim­ilt í dag að setj­ast í stjórn hjá fyr­ir­tækjum hér­lendis en hann hefur að mestu haldið sig frá íslensku við­skipta­lífi frá banka­hruni. Heim­ildir herma hins vegar að hann ætli sér stóra hluti á íslenskum mat­væla­mark­aði á næstu árum. Þegar hann stofn­aði Bónus með föður sínum árið 1989 tókst þeim feðgum að umbylta íslenskum mat­væla­mark­aði. Miklar breyt­ingar hafa átt sér stað að und­an­förnu með til­komu Costco. Það sést á sam­ein­ingu Haga við Olís hf. ann­ars vegar og hins vegar Festa hf. og olíu­fé­lags­ins N1.

Baugur stærsti viðskiptavinur hinna föllnu banka

Segja má að við­skipta­saga Jóns Ásgeirs hafi haf­ist árið 1989 þegar hann hætti í Verzlunarskóla Íslands til þess að koma lág­vör­ur­versl­un­inni Bónus á lagg­irnar með föður sínum. Árið 1992 keypti síðan Hagkaup helm­ings­hlut í Bónus og árið eftir varð Baugur Group til.

Í bók­inni Ævin­týra­eyjan segir síðan Ármann Þor­valds­son frá því þegar Jón Ásgeir kom til Kaup­þings árið 1998 og keypti afkom­endur Pálma Jóns­sonar út úr Baugi Group. Þá þykir áhuga­vert að Ármann starfar í dag sem for­stjóri Kviku banka sem sumir kalla nýja Kaupþing. Er einmitt talið að Kvika standi að baki Jóni Ásgeiri. Hlutur hans í Högum hf. sé stærri í dag en hlut­haf­alisti félags­ins segi til um. 365 miðlar hf. eru skráðir fyrir 2,76% hlut og Kvika banki er skráð fyrir 1,01% hlut.

Kaupþing fjár­magn­aði einnig mikið af fjár­fest­ingum Baugs Group í Bret­landi í tísku­fyr­ir­tækjum. Kaupþing og Baugur voru sem dæmi saman hlut­hafar í félag­inu Mosaic Fashion sem átti td. Karen Millen, Warehouse, Oasis, Coast. Mosaic Fashion fór í greiðslu­stöðvun á sama tíma og Baugur Group.

Ármann Þor­valds­son var einmitt for­stjóri Singer & Fried­lander í Bret­landi sem Kaupþing stýrði fram að hruni. Við fall íslensku bank­anna skuld­aði Gaumur ehf. og tengd félög Kaup­þingi 103 millj­arða króna, Lands­bank­anum 96 millj­arða króna, Glitni 55 millj­arða króna, Straumi Burðarás 23 millj­arða króna eða tæp­lega 300 millj­arða króna sam­kvæmt skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Þá skuld­aði FL Group og tengd félög íslensku bönk­unum 165 millj­arða króna.

Þá má nefna að félag Baugs sem hét BH Holding skuld­aði Lands­bank­anum 50 millj­arða króna við banka­hrunið. Verð­mæt­ustu eignir BG Holding voru í Bret­landi í versl­ana­keðj­unni Iceland Foods, House of Fraser, Hamleys og fleiri félögum

Árið 2016 greindi Stundin frá því að á grunni hinna svoköll­uðu Panama­skjala hafi verið hægt að rekja millj­arða­slóð Jóns Ásgeir og Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu hans í skatta­skjól. Þannig hafi félagið Moon Capital S.A. sem var um tíma helsti hlut­hafi 365 eftir hrun borgað upp skuldir upp á 2,4 millj­arða króna við Glitni. Var greitt með íslenskum rík­is­tryggðum íbúða­bréfum og lagt inn hjá reikn­ing Glitnis í Lúx­em­borg í júní árið 2010. Þó auð­ævi Jóns Ásgeirs og Ingi­bjargar séu tölu­verð enn í dag verður að telja lík­legt að ef Jón Ásgeir ætli sér að koma aftur inn í íslenskt við­skipta­líf verði það að stórum hluta fjár­magnað með lánsfé frá íslenskum bönkum. Þar er auð­vitað Kvika banki helst nefndur.

Átök um Haga framundan

Fastlega má búast við því að átök verði fram undan um ítök hjá Högum hf. og á það ekki bara við um hlut­hafa­fund félags­ins sem haldin verður á föstu­dag­inn næst­kom­andi. Til­nefn­inga­nefnd hjá Högum hf. hyggst ekki til­nefna Jón Ásgeir í stjórn. Þeir sem nefndin leggur til eru Davíð Harð­ar­son, Eiríkur S. Jóhanns­son, Erna Gísla­dóttir, Katrín Olga Jóhann­es­dóttir og Stefán Árni Auð­ólfs­son.

Eiríkur S. Jóhanns­son er stjórn­ar­for­maður Samherja og líkt og margir þekkja unnu Jón Ásgeir og Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar af aðal­eig­endum Samherja náið saman í íslensku við­skipta­lífi fyrir banka­hrunið. Það hófst þegar þeir stofn­uðu Orca hóp­inn árið 1999 sem fjár­festi í fyrsta bank­anum sem íslensk stjórn­völd einka­væddu, Fjár­fest­inga­banka atvinnu­lífs­ins (FBA). Jón Ásgeir náði yfir­tökum á Glitni banka vorið 2007. Í febr­úar 2008 vék Þor­steinn M Jónsson sem stjórn­ar­for­maður bank­ans og við tók Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Samherji hf. fer í dag með 9,26% hlut í Högum hf. og FISK-Seafood ehf. með 4,57% hlut. Þessi félög eign­uð­ust hlut í Högum hf. við sam­ein­ingu við Olíuverlzun Íslands (Olís). Samherji og Fisk-Seafood eign­uð­ust 75% hlut í Olís árið 2012 þegar Lands­bank­inn seldi þeim hlut­inn í olíu­fyr­ir­tæk­inu.

Heim­ildir Mannlífs herma að Þor­steinn Már Bald­vins­son ætli sér að taka þátt í þeirri inn­komu sem Jón Ásgeir hyggur á í íslensku við­skipta­lífi á næst­unni. Segja má að mann­orð þeirra beggja hafi nú verið hreinsað á síð­asta ári. Jóns Ásgeirs þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu ómerkti dóm Hæsta­réttar frá árinu 2013 og Þor­steins Más þegar Hæsti­réttur ógilti þá stjórn­valds­sekt sem Seðla­bank­inn hafði lagt á Samherja hf. vegna rann­sóknar á meintum gjald­eyr­is­brotum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins.

Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi