Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sorglegt að fjárhagur fólks sé farinn að skipta ennþá meira máli“

Björn Þór Ingason birti í gær færslu á Facebook í til­efni þess að breyt­ingar voru gerðar á reglu­gerð um greiðslu­þátt­töku hins opin­bera við tækni­frjóvg­anir. Hann vonar að stjórn­völd end­ur­skoði breyt­ing­una.

„Sorglegt að fjárhagur fólks sé farinn að skipta ennþá meira máli“

Umdeildar breyt­ingar voru gerðar á reglu­gerð um greiðslu­þátt­töku hins opin­bera við tækni­frjóvg­anir og tóku breyt­ing­arnar gildi um ára­mótin. Málið hefur verið tölu­vert í umræð­unni enda setur breyt­ingin stórt strik í reikn­ing­inn hjá mörgum.

Fyrir breyt­ingu á reglu­gerð var greiðslu­þátt­taka rík­is­ins engin í fyrstu tækni­frjóvgun en var 50% ef fram­kvæma þurfti aðgerð­ina í annað, þriðja og fjórða sinn. Eftir beyg­ing­una er greiðslu­þátt­taka rík­is­ins 5% í fyrsta skipti og 30% í annað sinn. Greiðslu­þátt­takan er engin er farið er í þriðja eða fjórða sinn í tækni­frjóvgun. Nánar á vef Livio. Síðan breyt­ingin tók gildi hefur margt fólk líst yfir óánægju sinni með hana.

Björn Þór Ingason er einn af þeim sem er óánægður með breyt­ing­una á reglu­gerð­inni og skorar á stjórn­völd að end­ur­skoða málið. Hann og kona hans eign­uð­ust barn árið 2015 með hjálp tækni­frjóvg­unar.

„Nú neyð­ist ég til að stíga aðeins út fyrir þæg­ind­ara­mmann,“ skrifar Björn Þór meðal ann­ars á Facebook þar sem hann tjáir sig um málið.

„Í þess­ari og síð­ustu viku hafa fjöl­miðlar fjallað um ákvörðun stjórn­valda að draga úr greiðslu­þátt­töku við tækni­frjóvg­un­ar­með­ferðir. Þetta mál­efni stendur mér mjög nærri þar sem ég og Fríða fengum þær fréttir síðla árs 2013 að lík­urnar væru ekki með okkur ef okkur lang­aði að búa til barn upp á eigin spýtur. Við nýttum okkur því þau úrræði sem voru í boði á þeim tíma og eftir tvær með­ferðir og fimm upp­setn­ingar var biðin og óvissan loks á enda þegar krafta­verkið okkar kom í heim­inn í októ­ber 2015 með hjálp tækni­frjóvg­unar. Þessar með­ferðir kost­uðu auð­vitað sitt en ég get lofað ykkur því að ég hefði sett hverja ein­ustu krónu sem ég hef unnið mér inn yfir ævina í þetta ferli ef ég vissi hvað beið mín þegar ég fékk hann Ara okkar í hend­urnar,“ skrifar Björn meðal ann­ars.

Eftir tvær með­ferðir og fimm upp­setn­ingar var biðin og óvissan loks á enda.

Hann heldur áfram og lýsir því hvernig með­ferð­irnar settu strik í reikn­ing­inn fjár­hags­lega, þrátt fyrir að tekjur hans og Fríðu hafi verið ágætar.

„Það er hins vegar alls ekki raunin fyrir alla og mér finnst það gríð­ar­lega sorg­legt að fjár­hagur fólks sé far­inn að skipta ennþá meira máli eftir þessar breyt­ingar hafi það löngun til þess að stofna fjöl­skyldu.“

Facebook-færslu Björns má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Með­fylgj­andi er þá mynd­bandið sem Björn birti en í því má sjá hann syngja lag sem hann samdi á því tíma­bili sem hann og Fríða reyndu að eign­ast barn með hjálp tækni­frjóvg­unar.

Björn vonar þá að frá­sögn hans opni augu fólks og að stjórn­völd end­ur­skoði breyt­ingu reglu­gerð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi