Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að auka vellíðan í eigin lífi

Ingrid Kuhlman, fram­kvæmda­stjóri Þekk­ing­ar­miðl­unar, lauk nýverið meist­ara­námi í jákvæðri sál­fræði og er með nokkur ráð fyrir fólk til að auka vellíðan í eigin lífi sem er til­valið í upp­hafi nýs árs.

Að auka vellíðan í eigin lífi

„Jákvæð sál­fræði sam­einar í einn vett­vang það sem rann­sóknir á jákvæðum og heil­brigðum ein­stak­lingum hafa leitt í ljós,“ segir Ingrid Kuhlman. „Með heit­inu er ekki gefið í skyn að aðrar greinar sál­fræð­innar séu nei­kvæðar, síður en svo. Munurinn felst í því að jákvæð sál­fræði fæst meira við það sem er í lagi en það sem er í ólagi; leggur áherslu á að fjölga plúsum í stað þess að fækka mínusum.“

Hún segir að jákvæð sál­fræði byggi á vís­inda­legum rann­sóknum og færi okkur hag­nýtar upp­lýs­ingar og gagn­reyndar aðferðir til að auka vellíðan. „Það hafa verið þró­aðar ýmsar æfingar sem hafa það að mark­miði að stuðla að jákvæðum til­finn­ingum, jákvæðri hegðun og jákvæðum hugs­unum og mig langar að nefna fimm mjög góðar aðferðir til að auka vellíðan í eigin lífi og fara inn í nýtt ár með jákvæðni að vopni. Þetta eru æfingar sem fólk getur gert á hverjum degi.

Ein slík æfing heitir „þrír góðir hlutir“. Æfingin felst í því að skrifa niður dag­lega, í lok dags til dæmis, þrjá góða hluti sem áttu sér stað yfir dag­inn og hver þáttur við­kom­andi var í þeim. Þessi æfing hefur þau áhrif að breyta hugs­unum manns þannig að í stað þess að ein­blína á það sem fór úrskeiðis ein­blínum við á það sem gekk vel. Það er mik­il­vægt að skrifa niður hlut­deild manns í því sem gekk vel af því að þar með beinum við athygl­inni að því hvernig við getum haft áhrif á dag­legar, jákvæðar upp­lif­anir.

„Jákvæð sál­fræði fæst meira við það sem er í lagi en það sem er í ólagi; leggur áherslu á að fjölga plúsum í stað þess að fækka mínusum.“

Í öðru lagi eru það „þakk­lætisæf­ingar“ en þá skrifar maður niður í lok dags þrennt sem hefur vakið hjá manni þakk­læti. Reglu­bundnar og með­vit­aðar þakk­læt­is­hugs­anir geta aukið vellíðan. Þakklæti stuðlar að því að við dveljum við og njótum jákvæðra upp­lif­ana og aðstæðna. Það að taka frá tíma til að þakka fyrir það sem maður er ánægður með eykur almenna ánægju með lífið.“

Þrír fyndnir hlutir
Ingrid segir æfing­una „þrír fyndnir hlutir“ henti sér vel, en hún felst í því að skrifa niður dag­lega þrjá fyndna hluti sem áttu sér stað yfir dag­inn. „Rann­sóknir hafa sýnt að það eru sterk tengsl á milli húmors og lífs­á­nægju. Hugsunin á bak við þetta er að húmor kallar fram gleði og gleði er mik­il­vægur þáttur í jákvæðum til­finn­ingum. Við vitum það líka að gleði getur jafn­framt veitt vörn gegn nei­kvæðum til­finn­ingum og upp­lif­unum. Bros léttir lund­ina og hefur jákvæð áhrif á lík­ama og sál.“

Ingrid segir að fjórða æfingin sem hún mæli með og veiti vellíðan sé að gera góð­verk; að rétta öðrum hjálp­ar­hönd óum­beðið og gefa af sér. „Það er mik­il­vægt að hafa í huga að þetta þarf ekki að vera stór­vægi­legt. Það er hug­ur­inn sem skiptir öllu. Það þarf oft lítið til að skapa ómælda gleði, til dæmis að gera tvö­faldan skammt af smákökum og gefa vinum, moka snjó fyrir nágrann­ann eða bjóða þeim sem er fyrir aftan í röð­inni með fáa hluti í inn­kaupa­kerrunni að vera á undan. Það að gera góð­verk leiðir til þess að við upp­lifum fleiri jákvæðar til­finn­ingar eins og ham­ingju, gleði og ánægju. Með því að gera góð­verk getum við gert heim­inn örlítið betri.“

Fimmta æfingin snýst um að sýna góð­vild í eigin garð. „Fjöl­margar rann­sóknir hafa sýnt að nei­kvæð innri gagn­rýni getur dregið úr frammi­stöðu og að það er mik­il­vægt að mæta nei­kvæðum til­finn­ingum með mildi, hlýju og vin­semd. Góðvild í eigin garð sam­anstendur af þremur þáttum: Í fyrsta lagi að sýna sjálfum sér mildi og skiln­ing og skipta sjálfs­gagn­rýni út fyrir mild­ari og jákvæð­ari orð, í öðru lagi að við­ur­kenna að þján­ing og það að líða illa er sammann­leg reynsla og í þriðja lagi að fylgj­ast með nei­kvæðum til­finn­ingum sem vakna hjá manni án þess að ýkja þær, dæma, eða bæla. Þetta snýst í stuttu máli um það að standa með sér í blíðu og stríðu og koma fram við okkur sjálf eins og við myndum koma fram til dæmis við góðan vin.“

Texti / Svava Jóns­dóttir
Mynd / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi