Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Njóta áhrifavaldar trausts neytenda?

Andrea Guð­munds­dóttir, dokt­or­snemi í alþjóða­sam­skipta- og fjöl­miðla­fræði við City Uni­versity of Hong Kong, mun halda fyr­ir­lestur á morgun þar sem hún fjallar um rann­sókn sína á áhrifa­völdum.

Njóta áhrifavaldar trausts neytenda?

Andrea mun meðal ann­ars varpa fram spurn­ingum um hvað liggi að baki vin­sældum áhrifa­valda, hvernig hinn almenni neyt­andi upp­lifir með­mæli áhrifa­valda og hvort áhrifa­valdar njóti trausts neyt­enda. Fyr­ir­lest­ur­inn er hald­inn undir yfir­skrift­inni Áhrifa­valdar! Trú­verð­ugir neyt­endur eða aug­lýsendur?

Spurð út í hvað kemur til að hún sé að rann­saka áhrifa­valda segir Andrea: „Vegna þess að það er svo margt áhuga­vert við það hvernig venju­legt fólk, almennir neyt­endur, sem byrja að blogga geta öðl­ast svona miklar vin­sældir eins og raun ber vitni. Þeir byrja kannski með nokkur hund­rað fylgj­endur en eru svo á skömmum tíma komnir með þús­undir fylgj­enda. Og þá er áhuga­vert að skoða hvernig almennir neyt­endur upp­lifi með­mæli þeirra.“

Getur reynst erfitt að sjá mun á auglýsingu og meðmælum

Svo­kall­aðir áhrifa­valdar hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farið, sér­stak­lega eftir að Neyt­enda­stofa hefur þurft að minna á að duldar aug­lýs­ingar eru bann­aðar og að blogg­arar þurfa að fylgja ákveðnum reglum þegar kemur að því að birta umfjöllun sem fyr­ir­tæki hafa greitt fyrir.

Í sjálfu sér er ekk­ert óeðli­legt að blogg­arar séu að fá greitt fyrir vinnu sína, en vanda­málið er að þetta er stundum ekki nógu skýrt.

„Sumir blogg­arar eru að fá greitt fyrir færslur og það hefur verið að fær­ast í auk­ana með árunum,“ segir Andrea og bendir á að stundum geti verið erfitt fyrir neyt­endur að gera grein­ar­mun á keyptri umfjöllun og ein­lægu með­mæli blogg­ara.

„Sam­keppnin er að aukast og auð­vitað tekur mik­inn tíma að blogga. Þannig að í sjálfu sér er ekk­ert óeðli­legt að blogg­arar séu að fá greitt fyrir vinnu sína, en vanda­málið er að þetta er stundum ekki nógu skýrt.“

Andrea bendir á að umræðan í kringum áhrifa­valda hafi þró­ast mikið und­an­farið. Aðspurð hvort það sé hennar upp­lifun að fólk sé almennt orðið með­vitað um við­skiptin sem eiga sér oft stað í kringum færslur blogg­ara segir Andrea: „Já, það virð­ist vera að neyt­endur hafi skiln­ing á blogg­arar fái gjarnan greitt fyrir umfjöllun.“

Skoðar hvernig áhrifavaldar bregðast við

Andrea byggir rann­sókn­ar­verk­efni sitt á upp­lifun neyt­enda á áhrifa­völdum og hefur til þess búið til mæli­kvarða þar sem ýmsir þættir eru skoð­aðir, svo sem traust og áreið­an­leiki. „Með þessum mæli­kvarða skoða ég hversu trú­verð­ugir áhrifa­valdar eru í augum neyt­enda.“

Til við­bótar við það að rann­saka hvernig neyt­endur upp­lifa áhrifa­valda er Andrea einnig að rann­saka hvernig áhrifa­valdar eru að bregð­ast við breyttri umræðu. „Áhrifa­valdar vilja auð­vitað halda sínum trú­verð­ug­leika þó að þeir séu að fá borgað. Trú­verð­ug­leik­inn er þeim mik­il­vægur. Þess vegna er áhuga­vert að sjá hvernig þeir bregð­ast við. Í ljósi þess­arar umræðu um „spons­aðar“ færslur þá eru áhrifa­valdar gjarnan farnir að leggja meiri áherslu á að það sem þeir eru að skrifa um sé eitt­hvað sem þeir virki­lega mæla með og nota sjálfir.“

Þetta er venju­legt fólk og við viljum gjarnan skoða fólk sem lifir svip­uðum lífs­stíl og við sjálf.

Að lokum, spurð út í hvort hún hafi kom­ist að ein­hverri nið­ur­stöðu um af hverju margir áhrifa­valdar ná eins miklum vin­sældum og raun ber vitni seg­ist Andrea telja hluta ástæð­unnar vera þá að neyt­endur geta frekar sam­samað sig við áhrifa­valda, miðað við t.d. stór­stjörnur. „Þetta er venju­legt fólk og við viljum gjarnan skoða fólk sem lifir svip­uðum lífs­stíl og við sjálf.“ Hún bendir þó á að í þessu geti falist ákveðin mót­sögn því um leið og áhrifa­valdar verða mjög vin­sælir fá þeir gjafir frá fyr­ir­tækjum og greitt fyrir færslur, ólíkt hinum almenna neyt­anda.

Áhuga­sömum er bent á fyr­ir­lestur Andreu sem hald­inn verður á morgun klukkan 12.00 í stofu VHV 023 í Háskóla Íslands, fyr­ir­lest­ur­inn er hald­inn í tengslum við MBA námið sem kennt er við HÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi