Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rómantískur draumur sem varð að veruleika

Einn góðan sum­ar­dag héldu blaða­maður og ljós­mynd­ari í sveita­leið­angur með það að mark­miði að upp­lifa íslenskan mat beint frá bónda og fræð­ast í leið­inni um smá­fram­leiðslu bænda og hug­sjónir fólks sem stendur í slíku. Við vorum á leið í Frið­heima í Reyk­holti þar sem hjónin Knútur Hrafn Ármann og Helena Her­mund­ar­dóttir tóku á móti okkur en þau eiga og reka stað­inn.

Rómantískur draumur sem varð að veruleika

Knútur og Helena rækta tómata, reka veit­inga­hús ásamt matar-minja­gripa­búð og stunda að auki hrossa­rækt. Þau eru með um 40 vinnu­menn allt árið og en fleiri starfa hjá þeim yfir sum­ar­tím­ann en búskap­ur­inn hefur ekki alltaf verið svona yfir­grips­mik­ill.

Þau byrj­uðu bara tvö árið 1996 þá bæði nýút­skrifuð úr skóla og upp­full af hug­myndum og áhuga á garð­yrkju og hrossa­hrækt. Það sem átti að vera lítil auka­bú­grein hjá þeim varð sú stærsta og aldrei hefði þau órað fyrir því árið sem þau byrj­uðu að þau ættu eftir að taka á móti 160 þús­und gestum yfir árið í 100 km fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni.

„Ferða­fólk sem kemur hingað getur ekki ímyndað sér hvernig við förum að því að rækta græn­meti allt árið um kring á Íslandi,“ segir Knútur.

Knútur sagði okkur sögu þeirra hjóna, fal­lega róm­an­tíska draum­inn um að flytja upp í sveit sem varð svo að veru­leika.

„En hér hafði eng­inn búið í 4-5 ár og var stað­ur­inn í mik­illi nið­ur­níðslu þegar við keyptum hann.“

„Við erum bæði úr Reykja­vík og kynnt­umst 17 ára gömul. Okkur lang­aði til að geta ræktað græn­meti og geta verið með hesta líka og áttum þann draum um að flytja upp í sveit. Það var ein­hver sveita­róm­an­tík í okkur og við stefndum að þessu mjög ung. Helena hafði mik­inn áhuga á garð­yrkju og ég hafði verið í sveit frá því ég var polli. Helena fór svo í garð­yrkju­skól­ann og ég í búfræði­nám. Síðan ári eftir að við útskrif­uð­umst árið 1995 fórum við að líta í kringum okkur og fundum þennan ynd­is­lega stað Frið­heima til að byrja okkar búskap sem er í grunn­inn gömul garð­yrkju­stöð sem stofnuð var árið 1946 og var eitt sinn mynd­ar­legt garð­yrkjubú. En hér hafði eng­inn búið í 4-5 ár og var stað­ur­inn í mik­illi nið­ur­níðslu þegar við keyptum hann,“ segir Knútur.

Að sögn Knúts voru þau heppin að ná þessum stað því hann var fyrst og fremst ódýr og þau nýút­skrifuð úr námi og því hent­aði hann vel til að byrja búskap. Þau ætl­uðu að byggja stað­inn upp í róleg­heitum og leggja áherslu á garð­yrkj­una.

Þau byrj­uðu að rækta gúrkur, tómata og paprikur en fóru fljót­lega að leggja áherslu á tómatana. Í dag rækta þau þrjár teg­undir af tómötum og fram­leiða eitt tonn á dag að með­al­tali allan árs­ins hring og eru næst­stærst á Íslandi í tómata­r­æktun. Neyt­endur geta oft­ast keypt tómatana þeirra sama dag og þeir eru tíndir af plönt­unum og eru þeir merktir Frið­heimum.

Gengur út á matarupplifun

Hug­myndin að veit­inga­staðnum fengu þau fyrir um 10 árum og átti að vera hlið­ar­bú­grein hjá þeim hjónum. „Við höfum verið með hesta frá upp­hafi en fengum svo hug­mynd fyrir um 10 árum síðan að opna hér veit­inga­sölu og bjóða gestum til okkar. Fólk fengi að kom­ast í návígi við íslenska hest­inn, kíkja inn í gróð­ur­húsin og borða. Við vildum líka sýna gestum hvernig Íslend­ingar fara að því að rækta græn­meti allt árið. Ferða­fólk sem kemur hingað getur ekki ímyndað sér hvernig við förum að því að rækta græn­meti allt árið um kring á Íslandi,“ segir Knútur.

„Við vildum líka sýna gestum hvernig Íslend­ingar fara að því að rækta græn­meti allt árið.“

Allir gestir fá stutta kynn­ingu á tómata­r­ækt­un­inni hvort sem þeir koma í hóp eða ekki. Starfs­fólkið er þjálfað til að geta kynnt starf­sem­ina vel.

Tómatar leika aðal­hlut­verkið á mat­seðli Frið­heima.

Allur mat­seð­il­inn er unn­inn út frá tómata­plönt­unum sem fólkið situr við hlið­ina á þegar það borðar. Boðið er upp á tómat­súpu, pasta og pestó, tortillur, blá­skel, ís, bökur og osta­kökur þar sem tómatar leika að sjálf­sögðu aðal­hlut­verkið.

Basi­líku­planta er á hverju borði og gest­irnir geta tekið sér af plönt­unni eins og þeir vilja til að krydda mat­inn með. Að sögn þeirra hjóna hafa þau átt far­sælt og gott sam­starf við meist­ara­kokk­inn og vin, Jón K.B. Sig­fús­son, sem á heið­ur­inn af flestum upp­skriftum Frið­heima.

Lengri umfjöllun um Frið­heima birt­ist í 10 tölu­blaði Gest­gjafans 2018.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni