Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjósanostalgía

Fjósanostalgía

Höfundur / Nanna Rögn­vald­ar­dóttir

Á síð­ustu árum hafa ýmsir hvatt til þess að sala á óger­il­sneyddri og óunn­inni mjólk – sem ég vil síður kalla hrá­mjólk því mér finnst orðið svo ljótt – verði heim­iluð hér­lendis. Þá eru lögð fram ýmis rök, svo sem eins og að óunna mjólkin sé holl­ari og nær­ing­ar­rík­ari (mun­ur­inn er reyndar afar lít­ill) eða bragð­betri, sem er smekks­at­riði. Svo er bent á að hrein­læti og umgengni í mjólk­ur­bú­skap hafi breyst mjög mikið, sem er alveg rétt, og að aðal­á­stæður fyrir því að ger­ilsneyð­ing var lög­leidd á sínum tíma verið berkla- og tauga­veikismit sem varla sé lengur ástæða til að ótt­ast. Ég hef oft heyrt fólk segja að það sé hrein­lega engin þörf á því lengur að ger­ilsneyða mjólk­ina.

Nýlegar fréttir úr Blá­skóga­byggð segja aðra sögu. Nei, það þarf kannski ekki lengur að ótt­ast berkla og tauga­veiki en aðrir sýklar og örverur eru sann­ar­lega enn til staðar í umhverfi kúnna og þeim þarf að verj­ast. Hvort sem ísinn í Efstadal átti sök á far­aldr­inum eða ekki er ljóst að á bænum hefur hættu­legt  afbrigði E.coli verið til staðar og eitt­hvað hefur farið úrskeiðis. Mjólkin sem ísinn var unn­inn úr var ger­il­sneydd á staðnum og eft­ir­lit mun hafa verið tölu­vert, enda dettur mér ekki í hug að áfell­ast fólkið þarna eða saka það um skort á hrein­læti. Líklega verður aldrei ljóst hvernig þetta gerð­ist – en það þarf ekki nema ein mis­tök eða and­ar­taks skort á aðgæslu til að illa geti farið. Kannski er nóg að ein­hver þvoi sér ekki nægi­lega vel um hendur í eitt ein­asta skipti.

Ég varð líka svo­lítið hugsi þegar ég sá lógóið þeirra í Efstadal II. Þar situr kona – á hækjum sér, að því er virð­ist, ég sé hvergi móta fyrir neinu sæti – og hand­mjólkar kú í fötu. Hún sýn­ist vera á íslenskum bún­ingi, eða að minnsta kosti í síðu pilsi sem dregst ofan í fjós­gólfið, og er með skott­húfu á höfði. Þarna er verið að sýna ein­hvers konar ímynd­aða for­tíð þar sem mamma eða amma fór í spari­fötin og þramm­aði út í fjós til að tutla Búkollu og allir drukku spen­volga nýmjólk og voru voða ham­ingju­samir.

Ég man eftir mömmu þar sem hún sat á mjalta­kolli í básnum, í eld­hússloppnum með skýlu­klút á höfði, og mjólk­aði mis­geð­góðar kýr sem sveifl­uðu kringum sig hal­anum sem hafði kannski dinglað ofan í flór­inn þegar þær lögð­ust út af. Flug­urnar sveim­uðu í kring. Og svo var mjólk­inni hellt úr föt­unni í gegnum sigti í mjólk­ur­brúsa sem var svo farið með suður í lind til að kæla í renn­andi vatni, því að önnur kæli­að­staða var engin. Þetta var raun­veru­leiki for­tíð­ar­innar og bauð upp á ansi góða mögu­leika fyrir alls konar sótt­kveikjur og pestir.

Raun­veru­leiki nútím­ans er mjalta­vélar og mjalta­básar, mikið hrein­læti og sótt­hreinsun, mjólkin fer beint í kælda mjólk­ur­t­anka og kemst aldrei í snert­ingu við fjósa­lykt­ina. Þessi mjólk er eins örugg og hún getur orðið – jafn­vel áður en hún er ger­il­sneydd. En það þykir ekki nógu gott fyrir ímynd­ina, það er óróm­an­tískt og óspenn­andi. Þá er nú sölu­væn­legra að hafa fal­lega mynd af konu að hand­mjólka – og gleyma mykj­unni í flór­num fyrir aftan kúna, þungu fjósa­loft­inu mett­uðu af met­ani, klepruðum hal­anum og öllu hinu sem ekki sést á mynd.

Jú, mjólk­ur­fram­leiðsla í dag býr við allt aðrar aðstæður en fyrr á tíð og mér finnst að það megi alveg skoða að leyfa sölu á óunn­inni mjólk. Auðvitað að upp­fylltum ströngum skil­yrðum um hrein­læti, eft­ir­lit og sölu, eins og t.d. eru í Danmörku og raunar víð­ast hvar erlendis þar sem sala á óger­il­sneyddri mjólk er á annað borð heim­iluð, því að í þessum efnum má ekki taka neina áhættu. Öllu slíku fylgir hins vegar auk­inn kostn­aður og það er spurn­ing hvort kaup­enda­hóp­ur­inn er nægi­lega stór til að bera hann.

Ég verð að minnsta kosti ekki í þeim hópi. Ég ólst upp á óger­il­sneyddri mjólk frá þriggja vikna aldri og sakna hennar ekk­ert, þótt ég sé ekki endi­lega að kenna henni um allar maga­kveis­urnar sem ég fékk þegar ég var barn. Þar kom margt annað til greina. En ég man enn hvað mér fannst mjólkin úr kaup­fé­lag­inu mikið betri en mjólkin úr kúnum heima.

Og ég hef aldrei skilið hvað sumum finnst svona frá­bært við spen­volga mjólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni