Stellið er hannað í nánu samstarfi við Bjarke Ingels, einn þekktasta arkitekt Dana, Lars Holme Larsen iðnhönnuð og Jens Martin Skibsted, hönnuð og heimspeking, en saman mynda þeir hönnunarþríeykið KiBiSi.
Það tók teymið yfir tíu ár að fullkomna hönnun stellsins. Skírskotun í hafið hefur mátt finna í flestum vörum Royal Copenhagen í gegnum aldirnar, þá sér í lagi hvað varðar form og liti. HAV er tímalaus hönnun sem tengir saman arfleifð Royal Copenhagen og nútímann með áherslu á sjálfbærni ásamt því að vera hannað til þess að endast í margar kynslóðir.
Stellið verður fáanlegt í ágúst næstkomandi.
View this post on Instagram
A post shared by Royal Copenhagen (@royalcopenhagen) on Apr 17, 2019 at 10:00am PDT





















Athugasemdir