Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ættfræðin nýjasta vopn lögreglunnar

Ætt­fræði­gagna­bankar sem byggja á líf­sýnum njóta sívax­andi vin­sælda erlendis. Lögregla hefur í auknum mæli nýtt sér upp­lýs­inga­söfnin til að leysa saka­mál, sem er umdeilt.

Ættfræðin nýjasta vopn lögreglunnar
Sífellt fleiri hafa áhuga á því að rekja upp­runa sinn og þar kemur ætt­fræðin inn.

Það vakti gríð­ar­mikla athygli þegar stúlku­barn fannst í ruslagámi á iðn­að­ar­svæði í Bjølsen í Ósló 11. ágúst 1990. Stúlkan var kölluð „gáma­barnið“ í fjöl­miðlum en þrátt fyrir til­raunir lög­reglu tókst ekki að hafa uppi á þeim sem hafði látið hana í sorpið. Í vik­unni til­kynntu stjórn­endur sjón­varps­þátt­ar­ins Åsted Norge hins vegar að þeim hefði tek­ist, með aðstoð ætt­fræð­innar, að hafa uppi á móður stúlkunnar. Ingrid sem var um síðir ætt­leidd mun að öllum lík­indum hitta kon­una sem fæddi hana, á næstu miss­erum.

Samkvæmt Åsted Norge mun þetta vera í fyrsta sinn sem saka­mál er leyst með aðstoð ætt­fræði­gagna­banka en vest­an­hafs hefur færst í vöxt að lög­reglu­yf­ir­völd nýti sér aðstoð ætt­fræð­inga og einka­rek­inna ætt­fræði­gagna­banka til að hafa uppi á brota­mönnum. Þannig tókst t.d. loks­ins að hafa uppi á svo­nefndum „Golden State Killer“ árið 2018 eftir að rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á eft­ir­launum bar saman líf­sýni úr morð­ingj­anum við erfða­upp­lýs­ingar á vef­síð­unni GEDmatch. Böndin bár­ust að Joseph James DeAngelo en ætt­ingi hans hafði nýtt sér vef­síð­una. Lögreglu tókst að afla líf­sýna frá DeAngelo og stað­festa að þar færi mað­ur­inn sem hefði framið að minnsta kosti 13 morð, fleiri en 50 nauðg­anir og yfir 100 inn­brot.

Ætt­fræði­gagna­bankar eru í þessu sam­hengi vef­síður sem ein­stak­lingar geta nýtt sér til að finna náskylda og fjar­skylda ætt­ingja. Ferlið fer þannig fram að ein­stak­lingur safnar líf­sýnum hjá sjálfum sér með við­eig­andi tækjum, sendir þau inn til grein­ingar og getur síðan nálg­ast upp­lýs­ingar sínar og sam­an­burð við aðra á vef­síð­unum. Síðurnar eru ólíkar að því leyti að sumar bjóða bæði upp á grein­ingu og sam­an­burð en aðrar geyma bara nið­ur­stöður erfða­próf­anna sem not­endur senda inn.

Löglegt en siðlaust?

Ætt­fræði­gagna­bank­arnir hafa notið vax­andi vin­sælda síð­ustu ár en stærstu banda­rísku vef­síð­urnar eru Ancestry með 15 milljón not­endur og 23andMe með 10 milljón not­endur. Fyr­ir­tækin á bak við síð­urnar eru hins vegar afar umdeild, þá ekki síst vegna notk­unar lög­reglu á þeim gögnum sem fyr­ir­tækin varð­veita.

Sér­fræð­ingar eru sam­mála um að upp­lýs­inga­söfnin sem fyr­ir­tækin lúra á séu mjög gagn­leg fyrir lög­reglu, enda fer þeim málum sífellt fjölg­andi þar sem ætt­fræðin, til við­bótar við erfða­fræð­ina, hefur komið við sögu við lausn gát­unnar. Þeir benda hins vegar á að fæstir sem senda erfða­upp­lýs­ingar sínar inn til grein­ingar, oftar en ekki sér til skemmt­unar, geri sér grein fyrir að upp­lýs­ingar kunni að verða not­aðar til að kló­festa bróður, frænku eða afa. Þá geri fólk ráð fyrir því að þegar um er að ræða heil­brigð­is­upp­lýs­ingar sé kveðið á um að fyr­ir­tækin leiti sam­þykkis áður en upp­lýs­ing­arnar séu not­aðar í öðrum til­gangi eða deilt með þriðja aðila.

Hvað laga­legu hlið­ina varðar eru menn ekki á eitt sáttir um lög­mæti þess að nota gögnin en sumir hafa bent á að lög­reglu hafi löngum verið heim­ilt að safna og rann­saka erfða­efni sem fólk skilur eftir sig, svo sem sígar­ettu­stubba og hár. Þannig væri hægt að færa rök fyrir því að þar sem fólkið setur erfða­upp­lýs­ingar sínar sjálf­vilj­ugt inn í opna gagna­banka, geti það ekki vænst trún­aðar. Hins vegar hefur verið kallað eftir gegn­sæi hjá lög­reglu­yf­ir­völdum, það er að þau upp­lýsi hvaða upp­lýs­inga­söfn þau noti, hvernig og hversu mikið.

Lestu umfjöll­un­ina í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta