Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Engar Uber-leigubifreiðar í Lundúnum?

Ökumenn leigu­bif­reiða­þjón­ust­unnar Uber í Lundúnum eru um 45 þús­und tals­ins en þeir kunna að þurfa að finna sér annað að gera eftir að sam­göngu­yf­ir­völd ákváðu að end­ur­nýja ekki tíma­bundið starfs­leyfi fyr­ir­tæks­is­ins í borg­inni.

Engar Uber-leigubifreiðar í Lundúnum?

Leigu­bif­reiða­þjón­ustan Uber hefur verið svipt starfs­leyfi í Lundúnum. Sam­göngu­yf­ir­völd segja fyr­ir­tækið ekki hæft til að reka leigu­bif­reiða­þjón­ustu í borg­inni, þrátt fyrir að það hafi gripið til ýmissa jákvæðra ráð­staf­ana til að mæta gagn­rýni. Uber missti starfs­leyfi sitt í borg­inni upp­haf­lega árið 2017 en voru veittar tvær fram­leng­ingar. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa ákveðið að áfrýja nið­ur­stöð­unni og verður Uber heim­ilt að starfa áfram þar til end­an­leg nið­ur­staða liggur fyrir. Ökumenn Uber í Lundúnum telja 45 þús­und en heild­ar­fjöldi leigu­bif­reiða í höf­uð­borg­inni er tal­inn vera um 126 þús­und.

„Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu koma 24% tekna þess frá fimm stór­borgum; Lundúnum, Los Angeles, New York, San Francisco og Sao Paulo.“

Sam­göngu­yf­ir­völd segja að fyr­ir­tækið hafi ítrekað stofnað far­þegum í hættu, m.a. með kerf­is­breyt­ingu sem gerði leyf­is­lausum bíl­stjórum kleift að hlaða myndum sínum upp á not­anda­að­gang ann­arra bíl­stjóra. Breyt­ingin varð til þess að 14 þús­und óheim­ilar ferðir voru farnar 2018 til 2019. Þá leiddi rann­sókn í ljós að bíl­stjórar sem Uber hafði bannað að keyra gátu þrátt fyrir það búið til not­anda­að­gang og ekið með far­þega. Í einu til­viki tókst bíl­stjóra að halda áfram að keyra fyrir Uber þrátt fyrir að leyfi hans hefði verið fellt úr gildi í kjöl­far þess að hann fékk við­vörun fyrir að deila „ósæmi­legum“ myndum af börnum.

Uber ekki eitt um að sæta gagn­rýni
BBC hefur eftir Helen Chapman, sem er yfir leyf­is­málum hjá sam­göngu­yf­ir­völdum, að þrátt fyrir úrbætur væri óásætt­an­legt að Uber hefði orðið til þess að far­þegar ferð­uð­ust með bíl­stjórum sem væru mögu­lega leyf­is­lausir og ótryggðir. „Ég veit að þessi ákvörðun kann að verða óvin­sæl meðal not­enda Uber en öryggi þeirra er í fyr­ir­rúmi. Reglu­gerðum er ætlað að tryggja öryggi Lund­ún­ar­búa,“ sagði borg­ar­stjór­inn Sadiq Khan (sem er á mynd­inni hér að ofan).

For­svars­menn Uber hafa for­dæmt ákvörð­un­ina og segja hana ósann­gjarna. Það verður undir dóm­stólum komið hvort hún er end­an­leg. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu koma 24% tekna þess frá fimm stór­borgum; Lundúnum, Los Angeles, New York, San Francisco og Sao Paulo. Félag þeirra leigu­bif­reiða­stjóra sem aka svoköll­uðum „black cabs“ hefur hins vegar fagnað ákvörð­un­inni en þau hafa sakað Uber um að keyra niður gæði og staðla leigu­bif­reiða­þjón­ust­unnar. Sótt hefur verið að fyr­ir­tæk­inu víðar, m.a. í Danmörku, Búlgaríu og Ung­verja­landi, þar sem Uber hefur hætt starf­semi.

Fleiri leigu­bif­reiða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki á borð við Uber hafa sætt gagn­rýni síð­ustu miss­eri, t.d. Lyft, en á annan tug kvenna í San Francisco hefur kært fyr­ir­tækið vegna meintra kyn­ferð­is­brota eða nauð­gana af hendi bíl­stjóra. Segja þær að fyr­ir­tækið hafi gert þekktum kyn­ferð­is­brota­mönnum kleift að ger­ast bíl­stjórar og að það hafi hylmt yfir kvart­anir um kyn­ferð­is­of­beldi á fjölda starfs­stöðva.

Umdeildar breytingar í farvatninu á Íslandi

Á Íslandi er í smíðum nýtt frum­varp til laga um leigu­bif­reiða­akstur en starfs­hópur á vegum sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins komst að þeirri nið­ur­stöðu að breyt­ingar á íslensku reglu­verki um leigu­bif­reiðar væru óhjá­kvæmi­legar, í kjöl­far athuga­semda frá Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA). Tillögur starfs­hóps­ins fólu m.a. í sér afnám fjölda­tak­mark­ana og afnám skyld­unnar til að vera tengdur við leigu­bif­reiða­stöð til að selja þjón­ustu.

Meðal þeirra sem skil­uðu inn umsögn um frum­varps­drögin voru Bandalag íslenskra leigu­bíl­stjóra og Bif­reiða­stjóra­fé­lagið Frami (sam­eig­in­leg umsögn) og Hreyfill. Í báðum umsögnum var lögð áhersla á mik­il­vægi þess að horft yrði til saka­fer­ils umsækj­enda þegar kæmi að veit­ingu atvinnu­leyfis og að gerðar yrðu kröfur um lág­marks íslensku­kunn­áttu.

„Að mati stjórnar Hreyfils er nauð­syn­legt að leggja ríkar kröfur á herðar þeirra sem óska eftir að fá úthlut­uðum atvinnu- eða rekst­ar­leyfum svo tryggt sé að not­endum sé tryggð örugg og fag­leg þjón­usta,“ segir m.a. í umsögn Hreyfils. „Mjög mik­il­vægt er að eft­ir­lits­að­ilar hafi uppi virkt eft­ir­lit og ger­ist leigu­bif­reiða­stjórar brot­legir við lög um leigu­bif­reiðar komi til svipt­ingar á atvinnu­rétt­indum.“

Í umsögn sinni lagð­ist Bandalag íslenskra leigu­bíl­stjóra alfarið gegn afnámi stöðv­ar­skyld­unnar. „Með til­komu leigu­bif­reiða­stöðva er skattaund­anskotum haldið í skefjum og allt eft­ir­lit reyn­ist stjórn­völdum aðgengi­legra en ella,“ segir í umsögn­inni. Í umsögn Hreyfils var stöðv­ar­skyldan m.a. sögð veita not­endum þjón­ust­unnar mikið öryggi, þar sem þeir gætu hvenær sem er haft sam­band við stöð­ina til að fá úrlausn sinna mála og þar væri sömu­leiðis haldin gagna­grunnur um alla bíla stöðv­ar­innar og allar ferðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta