Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sumar í sálina á miðjum vetri

Sumar í sálina á miðjum vetri
|Margir skella sér í leik­hús yfir vetr­ar­tím­ann.|Norð­ur­ljós um vetur.||Einn mögu­leiki er að skella sér á nám­skeið hjá Salt.|Leik­fé­lagið Hug­leikur að leik.

Á vet­urna hefur fólk meiri þörf fyrir afþr­ey­ingu en á sumrin. Litríkur gróður, hlýrra veður og birtan dregur flesta út meðan á síð­ar­nefndu árs­tíð­inni stendur en myrkrið, kuld­inn og lægð­irnar sem ganga yfir landið kalla á ein­hverja skemmtun þegar sú fyrr­nefnda er alls­ráð­andi. Í vetur gæti verið gaman að nýta sér eitt­hvað af eft­ir­far­andi.

***

Töfrar leikhússins

Margir skella sér í leik­hús yfir vetr­ar­tím­ann.

Gleði og léttleiki

Shakespe­are verður ást­fang­inn er léttur og róm­an­tískur gam­an­leikur sem sýndur er í Þjóð­leik­hús­inu um þessar mundir. Verkið er spunnið út frá ævi skálds­ins án þess þó að nokkrar traustar heim­ildir liggi þar að baki. Hinn ungi Will Shakespe­are glímir við rit­stíflu og ekk­ert er almennt betra til að blása mönnum nýjum hug­myndum og sagn­ar­anda í brjóst en einmitt ástin. Þetta er flott sýn­ing og vel til þess fallin að senda áhorf­and­ann glaðan heim að henni lok­inni.

Jólin nálgast

Jóla­æv­in­týri Þorra og Þuru í Tjarn­ar­bíói er góð leið til að koma sér í aðventu­stemn­ingu. Þorri og Þura eru beðin um að passa jólakrist­al­inn, upp­sprettu allrar jóla­gleði í heim­inum meðan afi Þorra bregður sér af bæ. Þau slökkva hins vegar óvart á honum og þurfa að leggja upp í erfitt og tví­sýnt ferða­lag til að finna leið til að kveikja á honum að nýju.

Eitur

Þau Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir og Hilmir Snær Guðnason sýna stjörnu­leik í sýn­ing­unni Eitur í Borg­ar­leik­hús­inu. Þau urðu fyrir áfalli sem sprengdi hjóna­bandið og hann hélt utan til að hefja nýtt líf. Hún varð eftir í hús­inu þeirra og reyndi að takast á við sorg­ina. Tíu árum síðar hitt­ast þau aftur og þurfa að gera upp for­tíð­ina. Þetta er mann­leg og hlý sýn­ing, oft nístandi sár en algjör­lega frá­bær.

Leik­fé­lagið Hug­leikur að leik.

Gestagangur

Leik­fé­lagið Hug­leikur frum­sýndi nýlega nýjan söng­leik eftir Þórunni Guð­munds­dóttur. Verkið heitir Gesta­gangur og ger­ist á stríðs­árum seinni heim­styrj­ald­ar­innar í Reykja­vík. Styrj­öldin er hafin og Íslend­ingar reyna eftir bestu getu að haga seglum eftir vindi. Þegar Bretar her­nema landið finna ráða­menn leiðir til að maka krók­inn og breskir her­menn reyna að ving­ast við heima­menn, ekki síst stúlk­urnar. Nýr fanga­vörður hefur tekið við Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg og það kemur í hans hlut að hýsa óheppnar stúlkur, bæði þær sem kom­ast í kast við ástands­lögin og aðrar sem eiga ein­fald­lega ekki í önnur hús að venda. Sýnt er í fyrrum nem­enda­leik­hús­inu við Sölv­hóls­götu.

***

Einn mögu­leiki er að skella sér á nám­skeið hjá Salt.

Matur og drykkur með þínum allra bestu

Fátt er skemmti­legra en að elda og njóta matar með sínum nán­ustu. Salt eld­hús gefur fólki færi á að læra eitt­hvað nýtt sem síðan má kynna fjöl­skyld­unni eða hrein­lega fara saman nokkur og takast á við nýjar áskor­anir í mat­ar­gerð. Í nóv­em­ber og des­em­ber eru mörg mjög spenn­andi nám­skeið í boði hjá þeim og Jóla-Galdrar er nám­skeið sem einmitt er til­valið til að koma mönnum af stað í jóla­und­ir­bún­ingnum. Sigríður Björk Braga­dóttir, einn eig­anda Salt eld­húss, kennir hvernig búa má til kjúklingalifr­ar­paté, biscotti, kara­mellusósu og fleira góm­sætt á jóla­borðið. En þetta eru einnig fal­legar og skemmti­legar jóla­gjafir.

***

Út að borða

Ómissandi hluti af aðvent­unni hjá mörgum er að fara út að borða. Velja sér flottasta, nýstár­leg­asta eða góm­sætasta jóla­hlað­borðið og smala svo saman vina­hópnum eða fjöl­skyld­unni og fá sér eitt­hvað veru­lega gott. Veit­inga­menn mæla með að fólk panti tím­an­lega því stað­irnir eru fljótir að fyll­ast í des­em­ber.

***

Norð­ur­ljós um vetur.

Helgarferðir

Vetr­ar­feg­urð er mikil víða á Íslandi og finna má ótal nota­lega og þægi­lega gisti­staði allt í kringum landið. Það er ævin­týri að ger­ast túristi í eigin landi og upp­lifa norð­ur­ljósin, heitu pott­ana, nútíma íslenska mat­ar­gerð og gest­risn­ina. Oft eru mjög hag­stæð til­boð á kvöld­verði og gist­ingu í vef­versl­unum og snið­ugt að hafa augun opin fyrir slíku og halda svo af stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi