Í nýjustu færslu sinni spyr hún hvað kona má gera. Getur kona til dæmis unnið og verið góð móðir á sama tíma? Getur kona verið ljóshærð án þess að teljast heimsk?
Má kona ?
Má kona hafa líkama án þess að hann sé mælistika á verðleika hennar ?
Má kona vera menntuð & með brjóstaskoru?
Má kona lyfta lóðum án þess að heyra að hún sè of mössuð ?
Má kona vera ljóshærð án þess að teljast heimsk ?
Má kona styðja aðra konu án þess að vera rauðsokka ?
Má kona vera fáklædd og ekki að biðja um það?
Má kona gráta án þess að vera greinilega á túr?
Má kona vera kynþokkafull án þess að vera dæmd ?
Má kona velja það að vinna og vera góð mamma ?
Má kona vera feit án þess að vera búin að missaða?
Má kona vera til án þess að þurfa stöðugt að verja ímynd sína ?
Má kona pósta rassamynd án þess að vera athyglissjúk?
Má kona njóta kynlífs án þess að vera lauslát?
Má kona segja nei án þess að vera tussa?
Má kona ?
Kveðja fáklædda konan sem er búin með prestanám og vinnur með líkamsvirðingu á samfèlagsmiðlum og er bara ekki alltaf viss? Má kona ?
View this post on Instagram
A post shared by 𝐸𝓇𝓃𝓊𝓁𝒶𝓃𝒹 (@ernuland) on Sep 29, 2019 at 1:32pm PDT





















Athugasemdir