Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sleit liðband í ökkla þegar hann var tæklaður í leik með Al Arabi í Katar á föstudagskvöld. Aron Einar gekkst undir ökklaaðgerð í Katar í dag vegna meiðslanna.
Aðgerðin gekk vel er fram kemur í færslu á Instagram-síðu Arons.
„Þessi litla aðgerð gekk vel,“ skrifar Aron meðal annars undir mynd af sér í sjúkrarúminu. Í færslunni þakkar hann einnig fyrir allar góðu kveðjurnar sem honum hefur borist.
View this post on Instagram
A post shared by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on Oct 8, 2019 at 5:44am PDT





















Athugasemdir