Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hefði átt að nota „fokk“ minna

Bragi Valdimar Skúlason hefur samið mest af textum Baggalúts í gegnum árin og rifið kjaft um nán­ast alla skap­aða hluti, hefur hann aldrei orðið fyrir aðkasti utan úr bæ fyrir kjaft­hátt?

Hefði átt að nota „fokk“ minna
Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sig­urðs­son

Bragi: „Nei, það hefur verið ótta­lega lítið. Ég efast ekki um að margir hafa oft verið mjög pirraðir á mér, en þeir hafa haldið því fyrir sig. Mesta furða hvað fólk umber mig, enn sem komið er.“

Dætur Braga eru á aldr­inum sex til fjórtán ára, skamm­ast þær sín fyrir kveð­skap föður síns?

„Það er stundum erfitt þegar við erum að syngja suma text­ana,“ við­ur­kennir hann. „Svona eftir á að hyggja hefði ég til dæmis getað notað orðið „fokk“ aðeins minna.“

Karl: „Ég held það sé óhjá­kvæmi­legt að maður fer að vanda orða­valið þegar það eru börn í spil­inu. Ég man til dæmis að þegar Gamlárspartí, sem við Gummi syngjum, kom út fann hann fyrir því á heim­ili sínu að börn­unum fannst ekk­ert þægi­legt að hlusta á suma fra­sana í text­anum. Þá fórum við í fyrsta skipti að velta því fyrir okkur að vanda orða­valið aðeins meira. Það er hægt að segja hlut­ina á mis­mun­andi vegu.“

Dætur Karls eru fimm og hálfs árs og eins árs þannig að þær eru kannski ekki farnar að velta textum Baggalúts mikið fyrir sér, eða hvað?

„Það er alveg mesta furða hvað sú eldri er mikið að pæla í orðum og því sem hún heyrir,“ segir Karl. „Það er alveg svaka­legt. Ég kvíði svo­lítið fyrir þegar hún byrjar að hlusta á gamla stöffið með Baggalút“

Á það kannski þátt í því hvað þið eruð orðnir minna beittir upp á síðkastið?

Bragi: „Nei, ég held ekki. Maður er alltaf að láta eitt­hvað frá sér fara núna í seinni tíð og það virð­ist stuða alltaf færri og færri. Ég held það borgi sig ekki að vera eitt­hvað að reyna að móðga fólk ekki. Ég er alla vega ekk­ert í því.“

Tómleikatilfinning eftir vertíðina

Svo lýkur tón­leika­ver­tíð­inni og jólin koma, hvað finnst þeim félögum best við jólin? Eru þeir ekki algjör­lega búnir „áðí“ þegar þau loks­ins koma?

Karl: „Jú, maður er svo­lítið búinn. Maður klárar síð­ustu orku­dropana á loka­metrum tón­leika­halds­ins. En maður heldur sér gang­andi með því að hugsa hvað það verði geggjað þegar þessu lýkur og maður getur farið að slaka á og njóta jól­anna. En þegar að því kemur er maður hálf­tómur og veit eig­in­lega ekk­ert hvað maður á af sér að gera, fullur af tóm­leika­til­finn­ingu. Eins krefj­andi og þetta er þá er það líka gef­andi og það er líka svo­lítið erfitt þegar þetta er búið. Maður gírar sig smám saman niður og nýtur bara jól­anna. Stundum er gott að skreppa eitt­hvert, út á land eða til útlanda, og halda jól ann­ars staðar til að brjóta þetta upp. Við höfum stundum gert það.“

Bragi: „Bara að slaka á, held ég. Við erum mikil jóla­fjöl­skylda og leggjum mikið upp úr því að hafa það nota­legt. Spilum mikið og njótum þess að vera saman. Um það eru jólin.“

Lestu meira í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi