Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vigdís skrifar um flókinn „foreldrafrumskóg“ og hvað mætti laga

Vigdís skrifar um flókinn „foreldrafrumskóg“ og hvað mætti laga

Við­skipta­fræð­ing­ur­inn Vigdís Ingi­björg Páls­dóttir skrifar um for­eldra­hlut­verkið í sinn nýjasta pistil á vefnum Rómur. Hún segir það geta verið afar erfitt þar sem „for­eldra­frum­skóg­ur­inn“ taki ekki alltaf vel á móti nýbök­uðum for­eldrum og hún veltir fyrir sér hvernig megi gera nýbök­uðum for­eldrum lífið létt­ara.

Vigdís skrifa m.a. um bar­átt­una fyrir dag­mömmu­plássi. „Þeir for­eldrar sem ekki voru búnir að tryggja sér pláss hjá dag­mömmu eða á ung­barna­leik­skóla áður en getn­aður átti sér stað sitja í súp­unni,“ skrifar hún og bætir við að þrír mögu­leikar séu í boði.

„Einn er að sitja um dag­mömmu­pláss í Facebook hóp og senda barnið blind­andi til ókunn­ugrar konu hinum megin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eftirlit sveit­ar­fé­laga er afar tak­markað og til­hugs­unin um að treysta handa­hófs­kenndri mann­eskju fyrir því dýr­mætasta sem for­eldr­arnir munu nokkurn tím­ann eiga er ekki auð­veld. Annar mögu­leiki er að setja á sig Sam­herja­hatt­inn og múta ung­barna­leik­skólum. For­eldr­arnir með stærstu osta­körf­una eða bestu sætin í Borg­ar­leik­húsið eiga meiri mögu­leika en en aðrir. Hringja á viku­fresti og athuga stöð­una. Vona að Nonni nágranni hafi sagt eitt­hvað óvið­eig­andi við leik­skóla­stjór­ann svo barnið manns eigi meiri líkur á að kom­ast inn en hans. Þriðji val­mögu­leik­inn er að vera heima með barnið þangað til það kemst inn á leik­skóla. Sem engin leið er að vita hvenær verður,“ skrifar Vigdís sem varð móðir fyrir rúmu ári.

„Það er kolniða­myrkur, kalt og róló­ferð ekk­ert sér­stak­lega girni­leg.“

Því næst skrifar Vigdís um morgn­ana með ungu barni sem vaknar klukkan hálf sex. „Úti er niða­myrkur. Og það er kalt. Svo nú hefst tím­inn þar sem ég elti son minn í hring­inn í kringum íbúð­ina, loka skúffum, forða honum frá innstungum og lífs­hættu­legu klifri og tek upp dót eftir hann. Það er nefni­lega nákvæm­lega ekki neitt hægt annað að gera á þessum tíma dags. Það er kolniða­myrkur, kalt og róló­ferð ekk­ert sér­stak­lega girni­leg,“ skriar Vigdís og tekur fram að búðir séu lok­aðar og bóka­söfn líka.

„Og morg­un­verð­ar­menn­ing er ekki til nema í einu bak­aríi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Bak­ara­meist­ar­anum í Suð­ur­veri, þar sem ég og sonur minn erum vana­lega mætt klukkan 6:30 á morgn­anna að fá okkur bita með lög­reglu­mönn­unum.“

Foreldrar flykkjast í Ármúla til að kaupa samfellur á 7.000 krónur

Vigdís skrifar einnig um press­una sem for­eldrar ungra barna finna gjarnan fyrir að klæða börnin sín í réttu fötin. „Það má ekki gleyma klæð­unum og sam­fé­lags­legri pressu á Instagram­hæfan barnafatnað. For­eldrar með útrunnið fæð­ing­ar­or­lof flykkj­ast í Ármúlann sem er orðið ein­hvers konar Mekka tísku­mæðra. Þar fást sam­fellur á sjö­þús­und krónur sem barnið vex úr á mán­uði eða útatar í ban­ana við fyrstu notkun. Vara­sjóð­ur­inn þynn­ist en fata­skáp­ur­inn stækkar og hver ein­ustu Konges sløjd kaup rétt­lætir Molo-móð­irin með því að hún er búin að bóka bás í Barna­lopp­unni eftir tvo mán­uði þar sem hún mun fá eitt­hvað af þessum pen­ingum til baka.“

Í pistli sínum telur Vigdís einnig upp það jákvæða sem fylgir því að vera nýbakað for­eldri ásamt því að koma með til­lögur um hvernig má gera líf for­eldra ungra barna auð­veld­ara.

„Ef fæð­ing­ar­or­lofið verður fram­lengt og sveit­ar­fé­lög girða sig í brók og koma börnum í almenni­lega dag­gæslu á góðum tíma þá er stórt vanda­mál leyst. Ég legg líka til fríar stræt­ó­ferðir fyrir for­eldra með vagna og kerrur sem rúnta um höf­uð­borg­ar­svæðið í leit að ein­hverju að gera,“ skrifar Vigdís meðal ann­ars.

Pistil hennar má lesa í heild sinni á vefnum Rómur.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi