Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Undirbjó sín síðustu jól

Aðfanga­dagur árið 2018 mun aldrei líða Ingi­björgu Rósu Björns­dóttur úr minni og þótt sú minn­ing sé ekki góð skyggir hún á allar aðrar jóla­minn­ingar í huga hennar. Þær fréttir sem hún fékk þann dag, eftir margra tíma veru á göngu­deild krabba­meins­deildar Western General-sjúkra­húss­ins í Edinborg, gerðu það að verkum að hún átti allt eins von á því að vera að upp­lifa sín síð­ustu jól.

Undirbjó sín síðustu jól
Ingi­björg Rósa Björns­dóttir.

„Ég greind­ist reyndar með brjóstakrabba­mein 20. des­em­ber í fyrra,“ segir Ingi­björg Rósa. „En lækn­arnir voru bjart­sýnir á að það væri stað­bundið og að ég þyrfti bara að fara í fleyg­skurð og geisla og þá væri þetta búið. Þannig að ég var ekk­ert mjög slegin við þær fréttir. Á aðfanga­dag fékk ég hins vegar að vita að þetta væri hrað­vax­andi krabba­mein sem hugs­an­lega hefði dreift sér í eitl­ana og ég myndi senni­lega þurfa að fara í lyfja­með­ferð og allan pakk­ann. Þá varð þetta pínu sjokk.“

Þannig að jólin í fyrra voru erfið?

„Já, það er óhætt að segja það,“ segir Ingi­björg. „Ég hafði ákveðið að fara ekki til Íslands um jólin og var ein, sem átti ekki að vera neitt dramat­ískt, ég hef verið ein um jól áður, en þetta setti dálítið strik í reikn­ing­inn. Aðfanga­dagur var versti dag­ur­inn. Vinkona mín kom með mér upp á krabba­meins­deild og þar vorum við í fimm klukku­tíma að bíða eftir nið­ur­stöðum.

„Síðan komu nið­ur­stöð­urnar og ég fór heim, skreið upp í rúm og breiddi upp yfir haus.“

Það var fín stemn­ing hjá okkur á bið­stof­unni, við vorum með laufa­brauð og hangi­kjöt, mandar­ínur, malt og app­el­sín og höfðum það kósí. Síðan komu nið­ur­stöð­urnar og ég fór heim, skreið upp í rúm og breiddi upp yfir haus. Ég missti eig­in­lega af jól­unum en ég var búin að lofa að „skæpa“ við fjöl­skyld­una á Íslandi þegar þau væru búin að taka upp pakk­ana þannig að þegar ég vakn­aði dreif ég mig í jól­anátt­fötin, kveikti á kertum og reyndi að gera jóla­legt í kringum mig svo þau grun­aði ekk­ert. Ég held ég hafi aldrei sýnt aðra eins leik­list­ar­hæfi­leika og í því sam­tali. Systir mín hafði reyndar hringt í mig eftir að ég kom af spít­al­anum þannig að hún vissi þetta, en hinum sagði ég ekki frá þessu fyrr en ég kom heim um ára­mótin.“

Varstu alveg sann­færð um að þetta yrðu þín síð­ustu jól?

„Ég var ekki sann­færð um það en ég vissi að það gæti allt eins verið,“ segir Ingi­björg. „Ég var alveg viss um það alveg frá því að ég fann hnút­inn í brjóst­inu að þetta væri krabba­mein og und­ir­bjó mig undir það að þetta væru ann­að­hvort síð­ustu jólin mín eða að ég yrði svo ofboðs­lega veik á næstu jólum að ég gæti ekki upp­lifað þau eins og áður. Ég hef aldrei skrifað eins mörg jóla­kort og gefið eins margar jóla­gjafir og í fyrra. Ég vildi að fólk ætti góða minn­ingu um mig þessi jól, ef þau yrðu hugs­an­lega þau síð­ustu sem ég lifði.“

Lestu við­talið við Ingi­björgu í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Mynd / Portway Portraits

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi