Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bætt siðferði mikilvægara en ölmusugjafir

Davíð Þór Jónsson segir kirkj­una vinna verk sín í hljóði en við­ur­kennir að hún mætti vera betur í stakk búin til þess að hjálpa þeim sem minna mega sín á Íslandi.

Bætt siðferði mikilvægara en ölmusugjafir
Davíð Þór Jónsson.

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hann meðal ann­ars prest­starfið og hlut­verk kirkj­unnar.

Finnst þér kirkjan sinna sínu félags­lega hlut­verki sem athvarf fyrir þá sem minna mega sín nógu vel?

„Kirkjan vinnur verk sín hljóð, eins og segir í kvæð­inu,“ segir Davíð Þór og brosir út í annað. „Ég held það kæmi mörgum á óvart ef þeir vissu hve margir leita til presta eftir hjálp og stuðn­ingi. Þótt prestar séu auð­vitað ekki sál­fræð­ingar eða geð­læknar þá held ég að prestar létti tölu­vert miklu álagi af þeim stéttum með því að hjálpa fólki sem kannski er ekki svo veikt að það þurfi bein­línis á klínískri aðstoð að halda heldur fyrst og fremst virkri kær­leiks­ríkri hlustun. Auðvitað mætti kirkjan vera betur í stakk búin til þess að hjálpa fólki hérna heima, til við­bótar við stór­kost­legt hjálp­ar­starf sem hún vinnur í þró­un­ar­löndum og sjaldan er talað um. Ég vitna stundum í suð­ur­am­er­ískan biskup sem sagði: „þegar ég gef fátæk­lingum brauð er ég kall­aður dýr­lingur, en þegar ég spyr hvers vegna fátæk­ling­arnir eigi ekki brauð er ég kall­aður komm­ún­isti.“ Mér finnst vissu­lega að kirkjan mætti gera meira af því að gefa fátæk­ling­unum brauð en ég held að það sé enn þá mik­il­væg­ara að hrópa til him­ins á torgum úti: hvers vegna eiga fátæk­ling­arnir ekki brauð? Ég held að hin raun­veru­lega hjálp sé í því fólgin að sið­væða og bæta sam­fé­lag okkar frekar en að vera alltaf að mjatla ölm­usu í fátæk­linga. Það er engin lækn­ing, það er bara plástur.“

Hér er óhjá­kvæmi­legt að spyrja Davíð Þór hvað honum finn­ist um þau ummæli Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups um að sið­rof hafi orðið í sam­fé­lag­inu og að ábyrgðin liggi þar sem skortur á trú­rækni valdi ástand­inu og spill­ing­unni í þjóð­fé­lag­inu. Er hann sam­mála því?

„Nei, ég er það ekki,“ segir hann. „Ég held reyndar að það hafi verið óheppi­legt að nota orðið sið­rof í þessu sam­hengi, alla­vega var mér kennt að sið­rof merkti annað og ég get ekki séð að við búum við sið­rofs­á­stand. En hún átti auð­vitað við að það hefði orðið rof á milli þjóð­menn­ingar okkar og hins kristna siðar við það að það er vaxin úr grasi kyn­slóð Íslend­inga sem hefur aldrei heyrt talað um ein­föld­ustu Bibl­íu­sögur, sem hafa hingað til verið hluti af menn­ing­ar­arfi okkar og almennri þekk­ingu.“

Áttu ein­hverjar skýr­ingar á fjölgun úrsagna úr þjóð­kirkj­unni?

„Það sem er að ger­ast er ein­fald­lega að trú á vald stofn­ana er að dvína, trú­ar­hiti fólks er ekki í neinni rénun. Rann­sóknir á rann­sóknir ofan sýna það. Ég las nýlega könnun sem gerð var meðal banda­rískra raun­vís­inda­manna sem sýndi að þeir eru jafn­trú­aðir nú og þeir voru fyrir hund­rað árum. Ítök kirkju og stofn­ana í trú­ar­lífi fólks verða sífellt minni og það kom í kjöl­farið á upp­gangi ein­stak­lings­hyggj­unnar. Það sem við erum að sjá í þess­ari þróun hér á Íslandi er ekk­ert eins­dæmi, þetta er að ger­ast alls staðar í Norður-Evrópu og við erum meira að segja nokkuð á eftir nágrönnum okkar ann­ars staðar Norð­ur­lönd­unum í þess­ari þróun.

„Fólk getur ekki einu sinni talað um snjó­mokstur án þess að skipt­ast í tvö horn og hreyta sví­virð­ingum á milli.“

Ég veit ekki hvað kirkjan getur gert til að sporna við þess­ari þróun sem virð­ist ekki vera í neinu sam­hengi við neitt sem kirkjan er að gera heldur er afleið­ing af því hvernig menn­ing er að þró­ast og hvernig vest­ræn hugsun hefur þró­ast und­an­farna öld eða svo. Það er auð­velt að benda á kirkj­una og segja það er út af þessu eða það er út af hinu, því auð­vitað er hægt að agn­ú­ast út í eitt og annað sem er sagt og gert innan kirkj­unnar. En það eru eft­irá­skýr­ingar. Þróunin er djúp þjóð­arsál­fræði­leg miklu frekar en að bisk­upinn sé að hrekja fólk frá kirkj­unni með einum van­hugs­uðum ummælum. Annað sem er að ger­ast í kúltúr okkar er að öll umræða verður svo fljótt heift­úðug. Fólk getur ekki einu sinni talað um snjó­mokstur án þess að skipt­ast í tvö horn og hreyta sví­virð­ingum á milli. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig svona þjóð fer að því að tala um trú­mál. Gott dæmi er þegar biskup tjáði sig um gagna­leka og upp­ljóstr­anir út frá boð­orð­inu þú skalt ekki stela og fólk fór í hópum að segja sig úr þjóð­kirkj­unni út af því. Síðan hvenær hafa Íslend­ingar svo sterkar skoð­anir á gagna­leit að það verði til þess að þeir segi sig úr þjóð­kirkj­unni eftir allt sem á undan er gengið?“

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi