Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Takk fyrir að leyfa mér að vera með“

Einar Ágúst Víðisson var í sviðs­ljós­inu og alþekktur meðal þjóð­ar­innar fyrir nokkrum árum, fyrir tón­list­ina, þar á meðal sem einn af strák­unum í Skíta­móral og þátt­töku í Eurovision. Einnig fyrir ýmsar upp­á­komur sem ítrekað komu Einari Ágústi á for­síður fjöl­miðla. Hann hefur verið utan sviðs­ljóss­ins um hríð en steig á svið fyrr á árinu á Alda­móta­tón­leik­unum sem slógu í gegn og á nýju ári heldur Skíta­mórall afmæl­is­tón­leika í Hörpu.

„Takk fyrir að leyfa mér að vera með“
Einar Ágúst á tón­leikum í Hlégarði Mos­fellsbæ. Skíta­mórall og Á móti sól með ball.

Nú hef­urðu verið utan sviðs­ljóss­ins í nokkurn tíma, hvað hef­urðu verið að gera und­an­farið? „Það er svo­lítið það þægi­lega við brans­ann þegar maður eld­ist að það má hafa nóg að gera án þess einmitt að vera í sviðs­ljós­inu. Gargandi á hverju götu­horni, eins og í gamla daga. Ég trúi ekki að ég hafi sagt þetta, GAMLA DAGA,“ segir Einar Ágúst og hlær. „En nú er hægt bæði að koma sér vel á fram­færi á svo margan hátt og auð­veld­ara að ná í mann, meðal ann­ars í gegnum sam­fé­lags­miðla.“

Einar Ágúst á Alda­móta­tón­leikum í Háskóla­bíó Mynd / Haf­steinn Snær

Heill hellingur af auðmýkt og þakklæti

Hvernig komu Alda­móta­tón­leik­arnir til, hvernig fannst þér að taka þátt í þessu verk­efni og per­sónu­lega að fá þessi við­brögð sem tón­leik­arnir hafa fengið?

„Það er nú eitt­hvað next level-rugl þessar mót­tökur. Þvílíka dúnd­rið! Hann Atli hjá ARG-við­burðum setti þetta af stað í vor,“ segir Einar Ágúst. Upp­haf­lega átti aðeins að halda eina tón­leika, en þeir urðu mun fleiri: þrennir í Háskóla­bíói í vor, Þjóð­há­tíð, Ljósa­nótt í Reykja­nesbæ, Akureyri og síðan aftur þrennir í haust í Háskóla­bíói, slíkar voru við­tök­urnar.

„Samkvæmt nýj­ustu tölum eru tvennir Alda­móta­tón­leikar upp­seldir í apríl 2020 þannig þetta rúllar aðeins. Við erum, held ég, sú kyn­slóð popp­ara sem höfum fengið mesta mót­byr­inn, nið­ur­talið og minnstu við­ur­kenn­ing­una í gegnum tíð­ina en þetta sýnir að hér erum við og lögin okkar munu lifa,“ segir Einar Ágúst og bætir við að meiri heiður og við­ur­kenn­ingu sé ekki hægt að fá.

„Við erum, held ég, sú kyn­slóð popp­ara sem höfum fengið mesta mót­byr­inn…“

„Þessar mót­tökur hafa hent í mann heilum hell­ing af auð­mýkt og þakk­læti. Maður finnur svo sterkt að þetta snýst mest um hlust­and­ann og lögin sjálf, við hin erum í auka­hlut­verki. Við erum ekk­ert án fólks­ins. Það er einmitt svo merki­legt að þegar tón­list­ar­menn upp­lifa sig jafn­stóra og lög þeirra eða eigið nafn verða þeir kjána­legir egóistar. Hann er fall­valtur raun­veru­leik­inn og þegar maður fetar þennan þrönga veg getur maður fallið beggja megin. Ég þekki það.“

Skíta­mórall Mynd / Golli

Skítamórall óútskýranlegt bræðralag

Hljóm­sveitin Skíta­mórall var stofnuð árið 1989 og fagnar 30 ára afmæli á næsta ári með afmæl­is­tón­leikum í Hörpu. Einar Ágúst kom inn í hljóm­sveit­ina árið 1997, hætti árið 2004 og kom síðan aftur tíu árum síðar og verður að sjálf­sögðu með í Hörpu.

„Ég byrj­aði aftur í hljóm­sveit­inni árið 2014 og þetta var svaka rús­sí­bani fyrstu miss­erin og svo hægðum við á. Um þessar mundir eru 30 ár síðan Addi, Hanni, Hebbi og Gunni stofn­uðu hljóm­sveit­ina á Selfossi og bæði er verið að fagna því sem og þakka fyrir okkur með alvöru­tón­leikum. Við erum van­ari að spila fyrir dansi og því allt öðru­vísi að halda tón­leika, ég er kom­inn nett á kvíða­lest­ina. Farinn að stress­ast tals­vert upp,“ segir Einar Ágúst aðspurður um hvernig sé að koma aftur fram með strák­unum og það á risatón­leikum.

„Eldborg í Hörpu er geggj­aður salur og verður gaman að fá tón­list­ina okkar leikna þar. Það er ekki sjálf­gefið að lenda í svona góðum hóp. Það sem við eigum saman er nákvæm­lega það sem alla krakka sem vilja stofna hljóm­sveit langar í, sam­heldni og eitt­hvað óút­skýr­an­legt „bræðra­lag.“

Skíta­leðjan Mynd / Jökull Berg­sveins­son

Í Skítaleðju með Heiðari

Annað nýlegt verk­efni er dúett­inn Skíta­leðja sem er sam­starf Einars Ágústs og Heiðars í Botn­leðju, en þeir halda sína aðra tón­leika nú um helg­ina á Gamla Enska í Hafn­ar­firði. En hvernig kom það sam­starf til?

„Við höfum rek­ist hvor á annan á Gamla Enska yfir kaffi­bolla við bar­borðið og þá þegar bar­fað­ir­inn Bjarni er til borðs. Við höfum verið að spila þar sitt í hvoru lagi. Bjarni gaukaði þess­ari hug­mynd að okkur og þá höfðum við báðir verið að gæla við þetta víst en ekki þorað að ryðj­ast út úr skápnum með hug­mynd­ina. Það má segja að þetta sé sá dúett sem síst var búist við að yrði til. Við komum hvor úr sinni sen­unni þarna rétt fyrir síð­ustu alda­mót og þegar við vorum yngri var mikið reynt að stilla okkur upp gegn hvor öðrum, popp­inu ann­ars vegar og rokksen­unni hins vegar. Það voru oft illir andar á sveimi á press­unni á þeim tíma. Þessi dúett er frið­ar­boði ákveð­ins tíma­bils í íslenskri tón­list. Við erum hinn sam­hæfði tónn, hið algilda nú,“ segir Einar Ágúst og bætir við að það væri gaman að henda í smá­band einn dag­inn. „Við höfum opnað fyrir þessa orku­stöð gagn­vart alheim­inum og þá getur allt gerst.  Kannski dettur inn lag eða lög, hver veit. Við erum menn nú-sins og leyfum þessu að flæða frjálst bara.“

„Hafa skilið eftir auð, verðmætari en allar krónur“

„Einhvern tím­ann kemur jú út alveg ný músík, ég er alltaf að gæla við eitt­hvað en lítið í því að klára hug­mynd­irnar. Ég hef svo sem enga þörf fyrir að vera færi­banda­lista­maður, að fólk verði bara að heyra eða sjá allt sem mér dettur í hug,“ segir Einar Ágúst aðspurður um hvað hann er að gera einn og sér. Ætlar hann jafn­vel aftur í Eurovision? „En Júró já, ég veit það ekki. Þetta er orðin svo aga­leg vinna! Svaka­legur plöggs­irkus sem þarf að ræsa, allt öðru­vísi enn í denn. Ha ha ha, en auð­vitað neitar maður ekki ef ein­hver höf­undur biður mann um að syngja lag sem manni finnst gott og vill standa með. Ég er kannski ekki besti kandídat­inn í svona keppni. Það vantar allt keppn­is­skap í mig. Ég vil bara að hafa gaman, njóta, en auð­vitað vandar maður sig. Ég hef sungið inn eitt og eitt lag sem sent hefur verið í keppn­ina en ekki kom­ist í gegn. Þannig það er alltaf ein­hver taug tengd þarna inn, auð­vitað.

En þar fyrir utan hef ég verið að glíma við krank­leika, veik­indi sem sér ekki alveg fyrir end­ann á og það hefur sett strik í reikn­ing­inn, heilsu­fars­lega að sjálf­sögðu, og fjár­hags­lega. Það að veikj­ast er góður skóli en kvala­fullur. Ég þakka fyrir hvert gigg, hvert sjóv. Segi TAKK. Takk fyrir að leyfa mér að vera með, nenna að hlusta á mig og þola vit­leys­una. Ég er hér fyrir ykkur, til þjón­ustu reiðu­bú­inn, allt fram á síð­ustu stund. Ég elska þessi for­rétt­indi. Þau hafa skilið eftir auð, verð­mæt­ari en allar krónur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi