Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eldar í keflvísku logni

Kristinn Guð­munds­son mynd­list­ar­maður býr í Brussel en er með annan fót­inn á Íslandi þar sem mat­reiðslu­þættir hans, Soð, eru komnir í sýn­ingu á RÚV og verk leik­hóps­ins sem hann er hluti af, Marm­ara­barna, verður frum­sýnt í Þjóð­leik­hús­inu eftir ára­mótin. En hvernig stendur á því að mynd­list­ar­maður ger­ist mat­reiðslu­maður og leik­ari?

Eldar í keflvísku logni
|MARBLE CROWD (Island) – MOVING MOUNTAINS IN THREE ESSAYS (Urauffu­ehrung)|MARBLE CROWD (Island) – MOVING MOUNTAINS IN THREE ESSAYS (Urauffu­ehrung)|||

„Ég hef brenn­andi áhuga á mat,“ segir Kristinn hlæj­andi. „Eins og margir mynd­list­ar­menn hef ég að hluta til séð fyrir mér með vinnu í eld­húsum veit­inga­staða og upp úr þeirri reynslu spruttu þætt­irnir Soð á sínum tíma.“

Kristinn byrj­aði á því að sýna þætt­ina á Facebook og YouTube en það leið ekki á löngu þar til hann fékk til­boð frá Sjón­varpi Símans sem vildi taka þá til sýn­ingar.

„Ég hafði ekk­ert endi­lega hugsað þætt­ina sem sjón­varps­þætti,“ segir hann, „en einn starfs­maður hjá Símanum hafði sam­band við mig og spurði hvort hann mætti ekki stinga upp á að Síminn sýndi þá. Ég hélt það nú og yfir­menn Sjón­varps Símans voru sömu­leiðis til í þetta þannig að við létum bara vaða.“

Spurður hversu margar þátt­araðir Síminn hafi sýnt þarf Kristinn aðeins að hugsa sig um.

„Ég held að þetta hafi verið fimm þátt­araðir,“ segir hann svo. „Meðal ann­ars jóla­þátta­röð og ýmis­legt. Síðan fékk ég til­boð frá RÚV og fannst mjög spenn­andi að prófa að fara þangað, því mér fannst kannski að þær hug­myndir sem ég hef um þróun þátt­anna passi frekar við dag­skrána á RÚV. En ég er auð­vitað alveg óend­an­lega þakk­látur fyrir tæki­færið sem ég fékk hjá Símanum. Ég var mjög ánægður með sam­starfið við þá og ætla að vona að Síminn haldi áfram að bjóða svona algjör­lega óþekktu fólki að gera þátt­araðir fyrir sig.“

„Það kemur bara í ljós eftir að hver sýn­ing byrjar hvað það verður nákvæm­lega sem er tekið upp úr sarp­inum í það skipti.“

Spinnur í kringum staði og innihaldsefni

Blaða­maður hefur aldrei orðið svo fræg að sjá þætt­ina og spyr því eins og auli hvernig þeir séu settir upp og hvers konar matur það sé sem Kristinn er að elda.

„Fyrstu ser­í­urnar gerði ég í vinnu­stof­unni minni, sem er algjör­lega hrátt rými uppi á háa­lofti,“ útskýrir Kristinn. „Hug­myndin var að gera þátta­seríu sem gæti tengst úti­þátta­seríu á Íslandi síðar. Ég hef mjög mik­inn áhuga á að elda við mjög ein­faldar aðstæður og á vinnu­stof­unni var ég nátt­úr­lega bara með gas­hellu og eigið ímynd­un­ar­afl.“

Hvernig matur er þetta sem þú ert að elda, ein­faldur hvers­dags­matur eða eitt­hvað flókn­ara?

„Ég er eig­in­lega að elda allt þarna á milli,“ segir Kristinn og hlær. „Í fyrstu ser­í­unni eld­aði ég belgískan mat og í næstu seríu á eftir gerði ég bauna­seríu, allir rétt­irnir voru með ein­hvers lags baunum í. Ég veit að við Íslend­ingar erum svo­lítið hræddir við baunir, við þekkjum þær ekki nógu vel, og lang­aði svo­lítið að leggja mitt af mörkum til að breyta því. Svo fór ég að vinna dálítið með sveppi í mynd­list­inni minni og þá gaf það auð­vitað auga­leið að gera sveppa­seríu. Þannig að ég tek yfir­leitt ann­að­hvort stað eða inni­halds­efni og reyni að spinna seríu í kringum það.“

Fyrsti þátt­ur­inn á RÚV var sýndur í síð­ustu viku og þeir fimm sem eftir eru verða sýndir með viku milli­bili næstu fimm vik­urnar. Spurður hvort nálg­unin sé eitt­hvað önnur en í fyrri þátta­röðum segir Kristinn að hún sé mjög svipuð, enda hafi hann unnið hana alveg sjálfur og ein­ungis haft mynda­töku­mann með sér. Breyt­ingin sé aðal­lega fólgin í því að í þess­ari seríu sé hann að elda úti.

„Já, ég er að elda úti víðs vegar um Reykja­nesið,“ útskýrir hann. „Ég er frá Keflavík og í þátt­unum er ég að spjalla við kvik­mynda­töku­mann­inn Janus Braga Jak­obs­son og segja honum frá Reykja­nes­inu. Okkur tókst meira að segja að fara upp í Reykja­nes­vita og elda þar uppi á efstu hæð í kefl­vísku logni. Ég held það hafi ekki verið gert áður í íslensku sjón­varpi.“

Engar tvær sýningar eins

Næsta verk­efni Kristins á Íslandi er af allt öðrum toga, eftir ára­mótin mun hann standa á Stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins með félögum sínum í sviðs­lista­hópnum Marm­ara­börn sem þar mun sýna glæ­nýtt verk sem nefn­ist Eyður. Hvernig kom það til að mynd­list­ar­maður fór að leggja fyrir sig sviðs­listir?

„Við erum fimm vinir sem erum í Marm­ara­börnum og höfum gert nokkur verk saman,“ segir hann. „Saga Sig­urð­ar­dóttir dans­höf­undur dró okkur saman og það var ákveðið að mynda sviðs­lista­hóp. Við höfum sett upp fjórar upp­færslur saman, byrj­uðum á Moving Mountains í Hamborg í Þýska­landi fyrir þremur árum og fengum þar góðan hljóm­grunn, vorum til dæmis til­nefnd fyrir besta verkið og sem besti hóp­ur­inn í fag­tíma­rit­inu Tanz Magazin sem síðan opn­aði okkur leið inn í Þjóð­leik­húsið heima. Þar var okkur hleypt inn á Stóra sviðið og þau voru svo glimr­andi ánægð með það sem við vorum að gera að þau ætla að hleypa okkur þangað aftur. Þar munum við frum­sýna verkið Eyður þann 15. jan­úar á næsta ári þannig að ég verð meira og minna á Íslandi næstu mán­uð­ina.“

„Ég hef mjög mik­inn áhuga á að elda við mjög ein­faldar aðstæður og á vinnu­stof­unni var ég nátt­úr­lega bara með gas­hellu og eigið ímynd­un­ar­afl.“

Spurður hvert hans hlut­verk sé innan hóps­ins, hvort hann sé þar sem mynd­list­ar­maður eða leik­ari, vefst Kristni tunga um tönn.

„Ja, eig­in­lega hvor­ugt,“ segir hann. „Ég er þar bara sem per­for­mer eins og þau hin, en kem kannski með smá­vegis mynd­list­ar­á­herslu inn í hug­mynda­vinn­una, kem að þessu frá öðrum vinkli en hin. Annars erum við öll fimm bara per­for­merar og vinnum verkin í sam­ein­ingu. Við spinnum þau í stúd­íó­inu og tökum það upp, skoðum upp­tök­urnar og söfnum í sarp­inn. Þessi sarpur kemur síðan með okkur upp á svið og við vitum í raun­inni ekk­ert hund­rað pró­sent hvað ger­ist á hverri sýn­ingu, þótt við séum auð­vitað búin að marka leið­ina áður en við komum þangað. Þannig að mun­ur­inn á milli sýn­inga getur verið ansi mik­ill. Það kemur bara í ljós eftir að hver sýn­ing byrjar hvað það verður nákvæm­lega sem er tekið upp úr sarp­inum í það skipti.“

Fann ástina í Brussel

Eins og fram hefur komið býr Kristinn í Brussel, hefur búið þar und­an­farin sjö ár, og það var ástin sem dró hann þangað.

„Ég nældi mér sem sagt í kær­ustu hérna,“ útskýrir hann. „Ég var í námi í Amster­dam og var sendur af skól­anum í hennar skóla. Hún er einmitt líka í leik­húsi og starfar sem leik­stjóri. Meðan á nám­inu stóð var ég búinn að ákveða að flytja frá Amster­dam eftir að því lyki, var bara ekki alveg búinn að ákveða hvert. En þá kom hún til sög­unnar og þar með tók ákvörð­unin sig eig­in­lega bara sjálf og við höfum búið hér síðan. Ég kem samt mjög oft til Íslands og segi stundum að ég skipti mér eig­in­lega í tvennt milli Belgíu og Íslands, sem hentar mér mjög vel. Ég er ekk­ert endi­lega í Reykja­vík þegar ég er á land­inu, flakka um allt land og á eig­in­lega heima alls staðar.“

Þætt­irnir Soð eru sýndir á RÚV á fimmtu­dags­kvöldum og það verður spenn­andi að fylgj­ast með elda­mennsku Kristins í rok­inu á Reykja­nes­inu næstu vik­urnar á meðan við bíðum eftir því að Eyður birt­ist okkur í Þjóð­leik­hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi