Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Auðvitað er þetta æðislega gaman“

Breskir fram­leið­endur vinna nú að gerð sjón­varps­þáttar­aðar sem byggir á íslensku skáld­sög­unni Refurinn eftir Sólveigu Páls­dóttur. Þætt­irnir verða teknir upp hér­lendis og er verið að skoða leik­ara í helstu hlut­verk.

„Auðvitað er þetta æðislega gaman“
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég reyni nú að halda mér á jörð­inni en auð­vitað er þetta æðis­lega gaman. Ég neita því ekki,“ segir Sólveig þegar hún er spurð hvernig henni líði með þau tíð­indi að gera eigi sjón­varps­þætti upp úr bók hennar.

Stór nöfn í kvik­mynda­heim­inum koma að gerð þátt­anna. Fram­leið­and­inn Nicky Bentham hjá Neon Films kemur þannig að verk­efn­inu en hún hefur unnið að verk­efnum sem hafa hlotið fjölda verð­launa og við­ur­kenn­inga. Má þar nefna Taking Liberties sem til­nefnd var til BAFTA-verð­launa og kvik­mynd­ina Moon með Sam Rockwell og Kevin Spacey í aðal­hlut­verkum sem fékk BAFTA-verð­laun og verð­laun sem besta kvik­myndin á British Independ­ant Film Awards. Tina Gharavi hjá Bridge & Tunnel er annar fram­leið­andi, en hún hefur hefur verið til­nefnd til BAFTA-verð­launa og til verð­launa á Sundance-kvik­mynda­há­tíð­inni og var sú sem hafði fyrst sam­band við Sólveigu og var áhuga­söm að gera seríu upp úr bók­inni.

„Til að gera langa sögu stutta hafði Tina verið að leita að áhuga­verðri skand­in­av­ískri sögu með alþjóð­lega skírskotun þegar hún frétti af bók­inni minni í gegnum sam­eig­in­lega kunn­ingja­konu okkar í Englandi,“ segir Sólveig. „Eftir nokkra Skype-fundi þar sem ég útskýrði allt verkið fyrir henni, þar sem aðeins hluti þess hefur verið þýddur yfir á ensku, var hún orðin alveg heilluð af sög­unni. Áður en ég vissi af hafði hún fengið annan fram­leið­anda, Nicky Bentham, til liðs við sig, og þær settu saman vinn­nu­stofu með sex kvik­mynda­hand­rits­höf­undum sem unnu massívt í viku í London að útlínum sex þátta í júní í fyrra. Afrakst­ur­inm var það spenn­andi að ég skrif­aði undir bind­andi samn­ing og í vor komu þau hingað til lands að skoða töku­staði á Aust­ur­landi. Með hlið­sjón af því hvað það getur tekið langan tíma að gera kvik­mynd eða þætti upp úr bók eða hand­riti, hefur þetta í raun gengið ótrú­lega hratt fyrir sig.

Íslendingar í flestum hlutverkum

Sólveig segir að sam­starfið við fram­leið­end­urna hafi verið með miklum ágætum. Hún tekur fram að hún komi reyndar ekki að sjálfum hand­rita­skrif­unum en hún hafi hins vegar ýmis­legt um þau að segja. „Fram­leið­end­urnir eru með hand­rits­höf­unda á sínum snærum,“ útskýrir hún. „Þeir senda mér alltaf drög að hverjum þætti sem ég les yfir og þannig get ég komið á fram­færi athuga­semdum, það er að segja ef ég hef ein­hverjar. Þetta hefur bara gengið eins og í sögu hingað til. Skipu­lagið hefur verið hund­rað pró­sent.“

„Eftir nokkra Skype-fundi þar sem ég útskýrði allt verkið fyrir henni … þá var hún orðin alveg heilluð af sög­unni.“

En er ekk­ert skrítið að ein­hverjir aðrir skuli vera að krukka í þínu sköp­un­ar­verki? „Ja, ég hef nú grunn úr leik­list þannig að ég hef góðan skiln­ing á hvað felst í því að koma verki úr einu formi í annað. En jú, jú, ég við­ur­kenni að á tíma­bili var ég pínku stressuð yfir því að bresku fram­leið­end­urnir hefðu ekki nægi­legan skiln­ing á þessu sér­ís­lenska umhverfi sem sagan ger­ist í. Sem betur fer átt­aði ég mig hins vegar fljót­lega á því að hún Tina skilur kjarn­ann í verk­inu. Það hjálp­aði. Og þegar ég fékk seinna að vita að Íslend­ingar kæmu að fram­leiðsl­unni og að íslenska yrði mest­megnis töluð í þátt­unum varð ég alveg róleg.“

Verða þá flestir leik­ar­arnir íslenskir? „Já, allir leik­arar nema einn. Það er nefni­lega búið að skrifa nýja per­sónu inn í sög­una, breska lög­reglu­konu á eft­ir­launum sem sest tíma­bundið að á Höfn. Fram­leið­end­urnir báru karakt­er­inn undir mig og þær leikkonur sem koma til greina og mér líst mjög vel á hana,“ segir Sólveig. Hún fæst hins vegar ekki til að segja frá því um hvaða leik­ara ræðir. Segir of snemmt að gefa það upp.

En liggur eitt­hvað fyrir hvenær þætt­irnir verða sýndir? „Nei, ekki í bili. Verk­efnið er ekki komið það langt á veg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi