Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mörgum finnst fyndið að ég sé að sprikla í jólabókaflóðinu“

Kári Val­týs­son lög­fræð­ingur gefur nú út sína aðra bók, Heift. Bókin er sjálf­stætt fram­hald Hefnd sem kom út í fyrra og báðar eru bæk­urnar vestrar byggðir á sagn­fræði­legum heim­ildum.

„Þú átt að geta tekið Heift upp og kom­ist hratt inn í sög­una en þetta eru sömu karakt­erar í báðum bókum. Upp­haf­lega gekk ég með tvær bækur í mag­anum og ég var búinn að vinna heim­ild­ar­vinnu fram yfir tíma­bilið sem fyrri bókin spannar. Síðan kross­aði ég fingur um að Hefnd gengi vel, sem hún svo gerði,“ segir Kári og þakkar Tómasi, útgef­anda hjá Sögum, fyrir að hafa verið hug­rakkur og séð mögu­leika í íslenskum sagn­fræði­legum vestra.

Vestrinn Heift.

„Góð spurn­ing, það atvikast kannski af sagn­fræði­legum áhuga almennt og ekki síst þessu tíma­bili þegar Íslend­ingar tóku sig upp og fluttu búferlum til Kanada,“ segir Kári aðspurður um af hverju hann fór óhefð­bundna leið og skrif­aði vestra. „Bókin er sögu­leg skáld­saga. Persónan rambar inn í sögu­fræga bar­daga og fleira. Þetta er nör­da­skapur hjá manni og áhugi á slíkum bók­menntum.“

Kastar ekki lögfræðinni fyrir róða

„Það kom aldrei annað en lög­fræðin til greina þegar ég var í skóla og var að ákveða frekara nám og starf, ég er heill­aður af henni og lög­fræði­störfum. Ég reyni að sinna rit­stör­f­unum sam­hliða þó að það sé stundum erfitt, en það hvarflar ekki að mér að varpa lög­fræð­inni fyrir róða.“

„…það hvarflar ekki að mér að varpa lög­fræð­inni fyrir róða.“

En hvað er þetta með lög­fræð­inga sem ger­ast líka rit­höf­undar, saman ber Ragnar Jónasson og John Grisham? „Þetta er rann­sókn­ar­efni út af fyrir sig, ég get illa svarað þessu. Hvað mig varðar þá er mikið grúsk í minni vinnu, sem ég hef gaman af og smá­at­riði sem ég þarf að passa upp á að séu rétt. Ragnar er í allt öðru, en mjög nákvæmur í sínum skrifum og maður finnur að hann hefur unnið sína heim­ild­ar­vinnu vel.“

Kári er byrj­aður á þriðju bók­inni og er hún að hans sögn hefð­bundn­ari, glæpa­saga sem ger­ist í nútím­anum. „Núna er ég bara að skoða hvernig löggan vinnur, þetta verður nor­rænn hrotta­legur krimmi.“

Auk þess að sinna stör­f­unum tveimur þá er Kári giftur og á þrjú ung börn en það þriðja fædd­ist í mars. Hvernig finnst fjöl­skyldu og vinum rit­höf­unda­starfið? „Mörgum finnst fyndið að ég sé orð­inn einn af þeim sem er að sprikla í jóla­bóka­flóð­inu. Flestir sem þekkja mig vel hafa neyðst til að lesa allt sem ég hef skrifað síð­ustu 10 ár en eng­inn viljað gefa út og eru örugg­lega dauð­fegnir að þetta hafi nú skánað eitt­hvað,“ segir Kári og hlær. „Sjálfum finnst mér það ákveðin for­rétt­indi að fá að vera með, þó mér finn­ist það enn svo­lítið súr­r­eal­ískt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi