Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjálparkokkur jólasveinsins

Hildur Odds­dóttir hefur síð­ustu jól haft milli­göngu um skógjafir handa börnum. Í fyrra og í ár hefur hún jafn­framt hjálpað for­eldrum við að láta jóla­gjafaóskir barna ræt­ast með því að aug­lýsa eftir aðstoð á Facebook. Hildur hefur sjálf glímt við fátækt og þekkir hin þungu spor.

Hjálparkokkur jólasveinsins
|Hildur Odds­dóttir

„Ég fæ aðstoð með alls konar hluti allt árið en sjálf get ég ekki gefið pen­inga. Þetta er mín leið til að gefa til baka.“ Þetta segir Hildur Odds­dóttir, sem heldur úti Facebook-síð­unni Jóla­sveina­hjálp­ar­kokkar. Síðustu fjögur ár hefur Hildur, í gegnum síð­una, haft milli­göngu á milli þeirra sem þurfa aðstoð með skógjafir og þeirra sem vilja aðstoða. Átakið hefur gengið vel, svo vel raunar, að í fyrra og í ár hefur Hildur sömu­leiðis tekið við óskum um jóla­gjafir til handa börnum for­eldra sem hafa lítið á milli hand­anna. Og hér er „ósk“ lyk­il­orðið. Það sem Hildur vildi gera var að freista þess að börnin fengju ekki bara ein­hverja gjöf, heldur þá gjöf sem þau ósk­uðu sér.

Hildur Odds­dóttir

Hildur hefur sjálf glímt við fátækt og verið ófeimin við að segja frá bar­áttu sinni í fjöl­miðlum. „Ég man þetta bara sjálf; á hverju ári óskaði eldri strák­ur­inn eftir ein­hverju í jóla­gjöf og maður gat kannski ekki orðið við óskinni,“ útskýrir Hildur. En eins mikið og for­eldrar vilja verða við óskum barns­ins þá eru skrefin sem þarf að stíga til að leita aðstoðar þung. „Margir sem leita til mín finna fyrir skömm og van­líðan. Vilja ekki koma fram undir nafni vegna fjöl­skyldu og vina. Sumt er ofboðs­lega falið; fólk vill ekki láta aðra vita hver staðan er.“

Að sögn Hildar er í sumum til­vikum um að ræða fólk sem á nána að en vill hrein­lega ekki biðja um aðstoð vegna skammar eða ótta við for­dóma.

„Það er gaman að sjá for­eldra ganga í burtu og geta gefið börn­unum sínum það sem þau óska sér en þetta eru þung spor og erfitt fyrir marga að koma.“

Tregablandin gleði

Á þessu ári hafa 97 börn fengið skógjafir í gegnum Hildi og 27 börn óska­jóla­gjöf­ina. Þá gat hún einnig, þökk sé rausn­ar­legum ein­stak­lingum, látið 20 við­bót­ar­gjafir renna til Hjálp­ræð­is­hers­ins.

Hildur segir hóp­inn sem leitar til hennar fjöl­breyttan. Í honum er að finna atvinnu­lausa og öryrkja en líka fólk sem er á vinnu­mark­aði og hefur tekjur en nær ekki endum saman, jafn­vel háskóla­menntað fólk. Hildur segir tekj­urnar og bæt­urnar oft duga skammt þegar fólk er t.d. á leigu­mark­aði með mörg börn í heim­ili, ekki síst um jólin, þegar vænt­ingar vakna og útgjöldin aukast. Þá séu þó nokkrir sem séu á þeim stað að vera yfir tekju­við­miðum hjálp­ar­sam­taka en eiga ekki fyrir hlutum á borð við gjafir.

„Þegar þú ert aðeins yfir við­mið­unum er rosa­lega sárt að labba tóm­hentur í burtu. En það er líka svo rosa­lega gott þegar fólk getur staðið saman í þessu,“ segir Hildur. Hún segir það gíf­ur­lega gef­andi að vera í þeirri stöðu að geta haft milli­göngu um að hjálpa fólki en gleðin sé þó trega­blandin. „Þegar ein­stak­lingar koma að sækja gjafir til mín þá er mikil gleði en það er líka sorg; fólk grætur úr gleði en þetta er erfitt líka. Það er gaman að sjá for­eldra ganga í burtu og geta gefið börn­unum sínum það sem þau óska sér en þetta eru þung spor og erfitt fyrir marga að koma.“

Hildur segir þó tví­mæla­laust hafa hjálpað að hún hafi sjálf staðið í sömu sporum og sé opin með það. „Ég er búin að fá fullt af faðm­lögum bara fyrir skiln­ing­inn,“ útskýrir hún. „Ég hef sagt við marga að ég viti hversu erfitt það sé að biðja um þessa aðstoð, ég þekki alveg þessa hlekki. Mér leið lengi eins og Dalton-bræðrum með kúl­una í eft­ir­dragi. Í dag er ég rosa­lega þakk­lát fyrir allt sem ég fæ.“

Jólin eru mörgum erfið.

Fólk er líka fátækt hina 11 mánuðina

„Við höfum oft talað um þetta; þetta er allt árið. Desember er þungur en fólk er að púsla til að reyna að fram­fleyta sér alla mán­uði árs­ins,“ svarar Hildur, um það hvort fátækir „gleym­ist“ utan jól­anna.

Sjálf starfar hún með Pepp Ísland, sam­tökum fólks í fátækt, sem berj­ast fyrir fátæka og því að gera fátækt sýni­lega. Samtökin standa fyrir reglu­legum fundum þar sem fólk kemur saman og deilir reynslu sinni og á fund­unum er jafnan sett upp svo­kallað „gef­ins borð“ þar sem hægt er að nálg­ast brauð, græn­meti og til­fallandi. Fjöldi sækir fund­ina.

Til stóð að gera jóla­hlé á fund­unum en við­tal við Ástu Þórdísi Skjald­dal Guð­jóns­dóttur, for­mann Pepp Ísland, 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn vakti mikla athygli.

„Þetta er afskap­lega erf­iður tími, það er gleði og hátíð­leiki í sam­fé­lag­inu og þér finnst þú ekki vera hluti af því þar sem þú hefur ekki sömu tæki­færi og aðrir að bjóða börn­unum þínum upp á hluti og skemmt­anir,“ sagði Ásta í sam­tali við Stöð 2. Hún sagði þvotta­efni og dömu­bindi vera meðal þeirra vara sem fátækir ættu erfitt með að útvega sér um jólin.

„Við fengum svaka­leg við­brögð í kjöl­far við­tals­ins,“ segir Hildur. Svo mikil að for­svars­menn Pepp sáu ekki annað í stöð­unni en að halda úthlutun fyrir jól á öllum þeim varn­ingi sem þeim barst. „Það komu yfir 50 manns,“ segir Hildur. Þetta hafi verið sanna­kall­aður gleði­fundur. „Það er svo mikil gleði að geta staðið saman og hjálpað þeim sem eru í sömu sporum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi