Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við skulum gera eins og Jósef og María; opna dyrnar fyrir ókunnugum, hleypa að okkur nýjum upplýsingum, taka af skarið og bjarga barninu“

„Saga jól­anna er saga af fæð­ingu barns þar sem vonin og ang­istin vega salt. Hvers konar Guð er það sem kemur blóð­ugur og grát­andi úr móð­ur­kviði og er lagður á brjóst? Hvað segir það um þann Guð sem við megum trúa á í Jesú? Getur það táknað að við séum hér til þess að hjálpa Guði og taka þátt í verki hans? Getur það táknað að Guð búi í öllu; hverri manns­sál, hverri lif­andi skepnu, hverri jurt? Ég held það. Ég trúi því að sagan af barn­inu í Betlehem tjái að Guð sé alls staðar nálægur – allt að ysta rykkorni alheims­ins – og að þess vegna megi alltaf við góðu búast,“

„Við skulum gera eins og Jósef og María; opna dyrnar fyrir ókunnugum, hleypa að okkur nýjum upplýsingum, taka af skarið og bjarga barninu“
Jóna Hrönn Bolla­dóttir

segir Jóna Hrönn Bolla­dóttir, sókn­ar­prestur í Garðabæ, í pistli í Mannlíf.

Bætir Jóna Hrönn við að von­lausar mann­eskjur hefðu ekki hleypt ókunnum fjár­hirðum að jöt­unni og enn síður tekið við veg­móðum útlend­ingum sem báru með sér gjafir og visku. Bölsýnt fólk hefði ekki hlýtt á skila­boð æðri máttar í draumi og haft kjark til að rífa sig upp og ger­ast flótta­menn í Egypta­landi þar til ein­ræð­is­herr­ann var allur eins og María og Jósef. Vonin gefur kjark og opnar á nýja mögu­leika.

Var minnt á hve brothætt gæfan er

„Ég heyrði þessa frá­bæru setn­ingu fyrir nokkru: „Hver ein­asta barns­fæð­ing eru skila­boð frá Guði að hann hafi ekki gef­ist upp á mann­kyni.“ Þessi orð koma oft upp í huga mér þegar ég held á nýfæddu barni á skírn­ar­stundu og allt húsið ilmar af ung­barn­inu,“ segir Jóna Hrönn.

„Fæðing barns í heim­inn er óend­an­lega stór gjöf. Með hverju barni fæð­ist ný von í ver­öld­ina en líka ný ang­ist. Um dag­inn var litli ömmu­strák­ur­inn minn fluttur með hraði á sjúkra­hús. Skamma stund var líkt og ver­öldin stöðv­að­ist. Angistin kramdi von­ina í hjart­anu. Allt fór vel að lokum, en við vorum óþyrmi­lega minnt á hve brot­hætt gæfan er.“

Jóna Hrönn segir að það sé fal­legt hvernig Lúk­asar­guð­spjall segi frá Jesú þegar fjöl­skyldan var komin aftur heim til Nasaret: „Sveinn­inn óx og styrkt­ist fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.“

„Er það ekki þetta sem við þráum fyrir hönd barn­anna okkar? Að þau vaxi, styrk­ist, vitk­ist og njóti verndar svo að þau verði far­sælar mann­eskjur. Til að svo megi verða þarf margt að hjálp­ast að. Börn eru háð umhverfi sínu og þurfa marg­vís­legan stuðn­ing,“ segir Jóna Hrönn.

„Í hverju barni er Guð að biðja um hjálp og bjóða okkur hlut­deild í guð­legu eðli. Í hverju barni er Guð að játa ást sína á heim­inum. Þegar þú horfir í augu barns horf­ist þú í augu við ókomna fram­tíð, sem verður að mega treysta því að vera ekki rænt von­inni. Nú vitum við að ef við breytum ekki neyslu­háttum okkar strax verður fram­tíð barna okkar þyrnum stráð af okkar völdum. Við skulum gera eins og Jósef og María; opna dyrnar fyrir ókunn­ugum, hleypa að okkur nýjum upp­lýs­ingum, taka af skarið og bjarga barn­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi