Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samtökin ’78 í fyrsta sinn á fjárlögum

Samtökin ’78 munu á næsta ári fá 20 millj­óna króna fjár­fram­lag frá rík­inu sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2020. Um „tíma­bundna“ ráð­stöfun er að ræða sam­kvæmt nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar en fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna segir fjár­mun­ina munu koma sér afar vel og vonar að fram­hald verði á.

Samtökin ’78 í fyrsta sinn á fjárlögum
|Daníel E. Arn­ars­son

„Ég held að við í Sam­tök­unum höfum hrein­lega náð eyrum fjár­laga­nefndar,“ segir Daníel E. Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ’78, þegar hann var spurður um ástæður þess að sam­tökin eru nú í fyrsta sinn á fjár­lögum, þ.e. fyrir árið 2020. Fjár­veit­ingin var ekki í upp­haf­legum drögum en við vinnslu máls­ins í þing­inu lagði meiri­hluti fjár­laga­nefndar til 20 millj­óna króna tíma­bundið fram­lag. Daníel segir upp­hæð­ina í góðu sam­ræmi við það sem Samtökin lögðu upp með en hann von­ast til að áfram­hald verði á form­legum stuðn­ingi stjórn­valda og talan eigi eftir að hækka. „Verk­efnin eru mörg og ærin,“ bætir hann við.

Daníel E. Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ’78

„Ég er fyrst og fremst afar ánægður,“ segir Daníel um við­brögð sín við ákvörð­un­inni. „Samökin ’78 hafa vaxið mikið á und­an­förnum miss­erum með til­heyr­andi kostn­aði. Það kom mér í raun á óvart þegar ég byrj­aði að starfa hjá Sam­tök­unum hve lítið þau eru fjár­mögnuð af hinu opin­bera.“ Daníel segir for­svars­menn sam­tak­anna lengi hafa viljað fara á fjár­lög en þau séu ekki styrkt af rík­inu, ólíkt því sem margir halda, heldur greiði ríkið og sveit­ar­fé­lög fyrir ákveðna þjón­ustu, t.d. fræðslu og ráð­gjöf, í gegnum þjón­ustu­samn­inga. „Þjón­ustu­samn­ing­arnir okkar eru núna þrír; við for­sæt­is­ráðu­neytið, Reykja­vík­ur­borg og Hafn­ar­fjarð­arbæ. Við erum líka með tíma­bund­inn þjón­ustu­samn­ing við félags­mála­ráðu­neytið,“ segir Daníel.

„Ráð­gjafa­þjón­ustan okkar hefur tífald­ast á tæpum ára­tug en Samtökin eru að taka á móti fólki í um 600 ráð­gjaf­ar­tíma á ári og það er bara ein­stak­lings­ráð­gjöfin.“

Lógó Sam­tak­ana ´78

Málefni intersex barna í forgangi

Þau verk­efni Sam­tak­anna ’78 sem ekki falla undir þjón­ustu­samn­ing­ana eru fjár­mögnuð með sjálfsaflafé. En hvað hefur breyst? Hafa breytt við­horf eitt­hvað með það að gera að fjár­laga­nefnd tók við sér?

„Markmið okkar er skýrt; að stuðla að bættri and­legri heilsu hinsegin fólks, vinna gegn félags­legri ein­angrun og stefna að sam­fé­lagi fjöl­breyti­leika og sýni­leika. Viðhorf Íslend­inga til hinsegin fólks almennt er gott; við viljum vera opin og umburð­ar­lynd en við höfum enn verk að vinna. Málefni inter­sex fólks og þá sér­stak­lega inter­sex barna eru í for­gangi hjá okkur í Sam­tök­unum eins og er. Eftir að kyn­rænt sjálf­ræði var sam­þykkt þá höfum við fundið fyrir auknum stuðn­ingi en þar var kafli sem beind­ist að inter­sex börnum ekki inni í lög­unum heldur er nefnd að störfum til að vinna að þeim málum. Það voru mikil von­brigði en lögin eru mikil rétt­ar­bót fyrir trans og kynsegin fólk.“

Fjár­fram­lag rík­is­ins mun telja um 37% rekstr­ar­fés Sam­tak­anna árið 2020. Daníel segir því um veru­lega búbót að ræða. Bókhald sam­tak­anna er opið og birt á vefnum, ásamt árs­skýrslum og fund­ar­gerðum, en hann segir mikið lagt upp úr gegn­sæi.

„Þetta er mik­il­vægt til að styrkja allan okkar rekstur, fjár­festa í hús­næð­inu okkar, koma á kerfi til að auka sjálfsaflafé og styrkja þau verk­efni sem við erum að sinna nú þegar,“ segir Daníel. „Ráð­gjafa­þjón­ustan okkar hefur tífald­ast á tæpum ára­tug en Samtökin eru að taka á móti fólki í um 600 ráð­gjaf­ar­tíma á ári og það er bara ein­stak­lings­ráð­gjöfin. Þar að auki starf­rækjum við stuðn­ings­hópa, sinnum fræðslu­starf­semi, erum til ráð­gjafar fyrir lög­gjafann og hið opin­bera, rekum skrif­stofu, sinnum félags­lífi, stuðlum að fræðslu­fyr­ir­lestrum, rekum félags­mið­stöð fyrir ungt fólk og félags­heim­ili.“

Þorbjörg Þor­valds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna ’78

Grunnt á fordómunum en stuðningurinn gríðarmikill

„Fyrir mér þá voru við­brögðin við lögum um kyn­rænt sjálf­ræði ágætis áminn­ing um það hversu grunnt for­dómar í íslensku sam­fé­lagi liggja. En munum samt að þau sem styðja okkur af öllu hjarta eru miklu miklu fleiri en við höldum og miklu fleiri en þau sem hafa hvað hæst í kommenta­kerfum. Og þeim mun fjölga eftir því sem við komum skila­boðum okkar á fram­færi oftar og víðar.“

Þetta sagði Þorbjörg Þor­valds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna ’78, á félags­fundi 9. nóv­em­ber en í ræðu sinni fór hún yfir starf sam­tak­anna síð­ustu miss­eri og þróun mála í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. Þorbjörg hvatti við­stadda til dáða og ítrek­aði mik­il­vægi bar­átt­unnar.

„Hinsegin krakkar eru enn þá miklu lík­legri til þess að búa við verri geð­heilsu en jafn­aldrar þeirra og mæta skiln­ings­leysi og for­dómum þegar þau koma út. Eldri hommar og les­b­íur eru að ein­angr­ast og þeirra þörfum er ekki mætt á við­un­andi hátt í kerf­inu. Á vinnu­mark­aði stöndum við verr að vígi. Í íþróttum erum við nær alveg ósýni­leg og stemn­ingin innan ákveð­inna greina er alveg sér­stak­lega fjand­sam­leg. Mið­flokk­ur­inn er far­inn að gæla við trans­fó­bíska orð­ræðu. Enn er það svo­leiðis að við getum ekki treyst því að okkur sé mætt af skiln­ingi og for­dóma­leysi innan hins opin­bera. Innan mennta­kerf­is­ins, heil­brigð­is­kerf­is­ins eða hjá lög­regl­unni. Nasistar voga sér að ganga um götur lands­ins og koma fram undir fullu nafni og mynd í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér. Þetta er ekki búið og verður það aldrei.

En það sem skiptir lang­mestu máli er það að við höldum áfram að virkja þann kraft sem í okkur býr þegar við stöndum saman, þvert á kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu, kynein­kenni og kyn­slóðir, og nýtum bar­átt­u­gleð­ina og sam­stöð­una til þess að móta sam­fé­lagið okkar þannig að við höfum öll frelsi og tæki­færi til þess að lifa líf­inu eins og við sjálf kjósum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi