Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áhrifavaldur safnaði milljón á sólarhring fyrir UNICEF

„Það sem gerir mig svo meyran er bara hvað er til mikið af góðu fólki. Og hvað þús­und kall getur orðið stór. Þetta sýnir okkur það,“ segir ljós­mynd­ar­inn og Instagram-stjarnan Helgi Ómarsson sem var hóf­lega bjart­sýnn þegar hann hóf söfnun fyrir neyð­ar­tjaldi í Sönnum gjöfum UNICEF meðal fylgj­enda sinna á Instagram á þriðju­dag.

Áhrifavaldur safnaði milljón á sólarhring fyrir UNICEF

Tjaldið kostar tæpar 158 þús­und krónur en við­tök­urnar fóru fram úr björt­ustu vonum og rúmum sól­ar­hring síðar hafði safn­ast rúm­lega ein milljón króna á reikn­ing­inn sem Helgi stofn­aði. Þessa pen­inga nýtti Helgi svo til að kaupa hjálp­ar­gögn á Sann­ar­gjafir.is í dag.

Tekið skal fram að þessi söfnun var algjör­lega að frum­kvæði Helga sem vildi bara gera eitt­hvað fal­legt fyrir börn í neyð og mun þetta dásam­lega fram­tak svo sann­ar­lega nýt­ast þeim.

Auk neyð­ar­tjalds­ins, sem nýt­ist á stríðs- og ham­fara­svæðum sem til dæmis heilsu­gæsla, bráða­birgða­skóli eða barn­vænt svæði þar sem börn geta leikið sér og fengið að vera börn við erf­iðar aðstæður, þá var aug­ljós­lega afgangur til að kaupa mikið af hjálp­ar­gögnum.Bóluefni gegn misl­inga­far­aldri sem nú kostar þús­undir barna lífið í Kongó og Suður Kyrra­hafi, jarð­hnetu­m­auki sem bjargar lífi vannærðra barna um allan heim, vatns­hreinsitöflur sem á augna­bliki breyta óhreinu og sýktu vatni í drykkj­ar­hæft vatn og hlýjan fatnað fyrir vet­ur­inn svo fátt eitt sé nefnt.

Helgi leit­aði í gær ráða hjá starfs­fólki UNICEF á Íslandi um hvernig best væri að ráð­stafa fjár­mun­unum svo þeir nýt­ist sem best í það sem mest þörf er fyrir. Og það er óhætt að segja að pen­ing­ur­inn hafi verið vel nýttur.

Fyrir upp­hæð­ina sem safn­að­ist keyptu Helgi og fylgj­endur hans í sam­ein­ingu:

3 vatns­dælur

2.000 skammta af nær­ing­ar­ríku jarð­hnetu­m­auki.

12 kassa af hlýjum vetr­ar­fatn­aði.

2 skóla í kassa.

200.000 vatns­hreinsitöflur sem hreinsa milljón lítra af vatni.

1.000 skammta af bólu­efni gegn misl­ingum.

Og síð­ast en ekki síst:

ÞRJÚ neyð­ar­tjöld. Sann­ar­lega ótrú­legt.

Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, segir fram­tak Helga og hóps­ins í kringum hann ein­stak­lega gleði­legt og glæsi­legt.

„Allir sem keypt hafa Sanna gjöf hjá UNICEF  hafa upp­lifað þessa ein­stöku til­finn­ingu sem því fylgir. Það eru ein­hverjir töfrar í því sem erfitt er að koma í orð og tengj­ast því að láta gott af sér leiða, vit­andi það að gjöf þín mun skipta sköpum. Það var ótrú­lega spenn­andi fyrir okkur að fylgj­ast með söfn­un­inni hjá Helga og sjá þennan sam­taka­mátt, sam­hug og góð­vild hóps fólks safn­ast saman í eitt. Helgi og þessi hund­ruð ein­stak­linga sem lögðu söfnun hans lið eiga eitt­hvað meira en hrós skilið, það þarf bara að knúsa þetta fólk og við beinum því til ætt­ingja þeirra og vina að gera það,“ segir Berg­steinn bros­andi.

„Við erum ótrú­lega þakk­lát Helga fyrir þetta fram­tak hans og gjaf­irnar sem hann keypti munu nýt­ast vel og skipta sköpum fyrir líf barna í neyð. Því getum við lofað. Fyrir hönd allra hér hjá UNICEF á Íslandi þakka ég ykkur öllum kær­lega fyrir stuðn­ing­inn.“

Helgi við­ur­kennir að vera sjálfur eftir sig eftir þetta ferða­lag.

„Ég er bara svo þakk­látur hvað það er til margt gott fólk. Stundum er maður of fastur í að spá hvað heim­ur­inn getur verið ósann­gjarn og vondur. En gott fólk með fal­legt hjarta­lag er ljós í öllu myrkri. Nú þurfum við að vera dug­legri að gefa í hjálp­ar­starf, kaupa minni óþarfa og setja pen­ing­inn þar sem þörfin er mest,“ segir Helgi. „Að hugsa til þess hvað okkur tókst að gera fyrir fólk í erf­iðum aðstæðum er klikkað. Takk fyrir mig og takk fyrir að vera öll svona ynd­is­leg.“

Hægt er að finna Helga á Instagram undir not­enda­nafn­inu @helgiomarsson og sjá þegar hann til­kynnir 13 þús­und fylgj­endum sínum frá inn­kaup­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi