Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fórnarlamba umferðarslysa minnst

Á sunnu­dag er alþjóð­legur minn­ing­ar­dagur um fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa. Víða um land halda slysa­varna­deildir og björg­un­ar­sveitir minn­ing­ar­at­hafnir í sínum bæj­ar­fé­lögum.

Fórnarlamba umferðarslysa minnst

Höf­uð­borg­ar­svæðið
Árleg alþjóð­leg minn­ing­ar­at­höfn um fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa verður haldin við þyrlu­pall bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi kl. 14.  Að þessu sinni er það  Hjálp­ar­sveit skáta í Reykja­vik sem hefur umsjón með aðkomu Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar og Slysa­varna­deild­irnar í Reykja­vík og á Sel­tjarna­nesi bjóða upp á kaffi og kleinur að athöfn lok­inni í búða­tjaldi HSSR við spít­al­ann.

Reykja­nes
Slysa­varna­deildir í Grinda­vík, Garði og Reykja­nesbæ í sam­starfi við björg­un­ar­sveitir á svæð­inu eru með sam­eig­in­legan við­burð í Njarðvík í ár. Haldin verður mining­ar­stund kl. 20.00 í Ytri Njarð­vík­ur­kirkju, hund­ruð kerti og kaffi á eftir í sal kirkj­unnar.

Dalvík
Í sam­starfi slysa­varna­deildar og björg­un­ar­sveitar á Dalvík verður slysa­varna­messa í Dal­vík­ur­kirkju sem hefst kl. 11:00.  Felix Jósafats­son fyrrum varð­stjóri á Dalvík mun flytja erindi. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur að messu lok­inni.

Eski­fjörður
Björg­un­ar­sveitin Brimrún og Slysa­varna­deildin Hafrún á Eski­firði verða með við­burð í til­efni dags­ins. Hefst hann með Slysa­varn­ar­messu í Eski­fjarða­kirkju kl. 11. Þar sem fórna­lamba umferða­slysa verða minnst. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur í safn­að­ar­heim­il­inu eftir messu og verður ma. ávarp frá full­trúa bæj­ar­stjórnar. Full­trúar ann­ara við­bragðs­að­ila verða á staðnum.

Ólafs­fjörður
Á Ólafs­firði verður komið saman kl. 14 við Minn­ingn­ar­stein­inn í kirkju­garð­inum.  Sigríður Munda Jóns­dóttir, sókn­ar­prestur Ólafs­fjarðar, mun segja nokkur orð og að því loknu munum við minn­ast þeirra sem lát­ist hafa í umferð­inni með einnar mín­útu þögn.  Slysa­varna­deild kvenna á Ólafs­firði býður gestum upp á kaffi, kakó og vöfflur í félags­húsi sínu eftir athöfn­ina.

Siglu­fjörður
Slysa­varna­deildin Vörn mun standa fyrir minn­ing­ar­at­höfn í sam­starfi við Björg­un­ar­sveit­ina Stráka. Minn­ing­ar­at­höfnin mun fara fram við kirkju­tröpp­urnar fyrir neðan Siglu­fjarð­ar­kirkju kl 17 þann 17. nóv­em­ber. Anna Hulda djákni mun segja nokkur orð og munum við taka einnar mín­útu þögn til að minn­ast þeirra sem lát­ist hafa í umferð­inni.

Pat­reks­fjörður
Minn­ing­ar­at­höfn um fórn­ar­lömb umferð­ar­slysa verður haldin á end­anum á Pat­reks­firði (Þar sem skemmti­ferða­skipin leggja að) kl. 14. Boðað er til mín­útu­þagnar kl. 14.15.  Að lok­inni athöfn er boðið upp á kaffi og konfekt í Sig­urð­ar­búð, húsi Björg­un­ar­sveit­ar­innar Blakks.

Björg­un­ar­sveitin Blakkur, HVEST Pat­reks­firði, Lög­reglan á Vest­fjörðum, Rauði Krossinn í Barða­stranda­sýslu, Sjúkra­flutn­inga­menn, Slökkvi­lið Vest­ur­byggðar og Slysa­varna­deildin Unnur.

Mývatns­sveit
Slysa­varna­deildin Hringur í Mývatns­sveit verður með athöfn kl. 14:30 að Múlavegi 2 þar sem kveikt verður á kertum og mín­útu­þögn. Boðið verður upp á vöfflu­kaffi í hús­næði deild­ar­innar og gestum gefst einnig  kostur á að skoða það.

Breið­dals­vík
Björg­un­ar­sveitin Eining á Breið­dals­vík mun standa fyrir athöfn við Lækj­ar­kot kl. 16. Fólk er hvatt til að koma með mæta með frið­ar­kerti og að loknu erindi sókn­ar­prests­ins verður boðið upp á kakó og smákökur.

Árnes­sýsla
Björg­un­ar­sveitir í Árnes­sýslu standa fyrir minn­ing­ar­at­höfn við Kög­un­ar­hól kl. 14.00. Kveikt verður á kertum og fórn­ar­lamba umferð­ar­slysa minnst.  Ræðumenn munu koma fram og tala.

Björg­un­ar­fé­lag Árborgar, Björg­un­ar­sveit Bisk­ups­tungna, Björg­un­ar­fé­lagið Eyvindur, Hjálp­ar­sveit skáta Hvera­gerði, Björg­un­ar­sveitin Ingunn, Björg­un­ar­sveitin Mann­björg, Björg­un­ar­sveitin Sig­ur­geir, Hjálp­ar­sveitin Tintron, Heil­brigð­is­stofnun suð­ur­lands, Bruna­varnir Árnes­sýslu, Lög­reglan á suð­ur­landi.

Vest­manna­eyjar
Slysa­varna­deildin Eykynd­ill í Vest­manna­eyjum mun standa fyrir athöfn þar sem messað verður í Landa­kirkju kl. 14 og boðið upp á kaffi á eftir í safn­að­ar­heim­il­inu.

Dala­sýsla
Björg­un­ar­sveitin Ósk og Slysa­varna­deild Dala­sýslu standa fyrir minn­ing­ar­at­höfn í Búðardal. Nákvæm­ari upp­lýs­ingar liggja  ekki fyrir en fólk er hvatt til að afla sér upp­lýs­inga hjá skipu­leggendum.

Höfn í Horna­firði
Minn­ing­ar­at­höfn verður við þyrlu­pall­inn á Höfn kl. 11.  Í Hafn­ar­kirkju verður svo messað kl. 14  og er messan til­einkuð minn­ingu fórn­ar­lamba umferð­ar­slysa.

Það eru Björg­un­ar­fé­lag Horna­fjarðar, Slysa­varna­deildin fram­tíðin, Lög­reglan og Hafn­ar­sókn sem standa að minn­ing­ar­deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi