Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekki hægt að kæra fyrir brot gegn ónafngreindri manneskju

Helga Vala Helga­dóttir, alþingis- og lög­maður, vill ekki tjá sig sér­stak­lega um mál Atla Rafns Sig­urð­ar­sonar gegn Borg­ar­leik­hús­inu og Kristínu Eysteins­dóttur leik­hús­stjóra, en segir rétt þess sem ásak­aður er um brot vera eina af grunn­stoðum rétt­ar­rík­is­ins. Komi slíkar ásak­anir fram nafn­laust sé ekki hægt að vinna málið í eðli­legum far­vegi og þar með sé brotið á rétti meints ger­anda.

Helga Vala hefur starfað sem rétt­ar­gæslu­maður brota­þola, gekk vaktir á Neyð­ar­mót­töku um nokk­urra ára skeið og seg­ist fyrst og fremst vera tals­maður brota­þola í sinni lög­mennsku. Það breytir ekki því að fyrir henni er aug­ljóst að fara verður eftir reglum rétt­ar­rík­is­ins.

„Við búum við ákveðið rétt­ar­ríki,“ segir hún. „Og ef ein­stak­lingur er bor­inn sökum eru það hans grund­vall­ar­mann­rétt­indi að eiga þess kost að verja sig. Ef hann veit ekki hvaða sökum hann er bor­inn hvernig á hann þá að geta varið sig? Sá réttur toppar að mínu mati rétt ásak­anda til nafn­leyndar. Ég hef farið í útköll á Neyð­ar­mót­töku þar sem ein­stak­lingur leit­aði þangað eftir að brotið var á honum en við­kom­andi vildi ekki fara með málið lengra af ýmsum ástæðum. Það er auð­vitað ekki sann­gjarnt að brota­þoli geti ekki leitað réttar síns en við getum ekki lagt fram kæru á hendur ein­hverjum fyrir brot gegn ónafn­greindri mann­eskju á ótil­greindum stað. Það er bara ekki hægt, alveg sama hversu ósann­gjarnt manni finnst það.“

Viðtalið við Helgu Völu er að finna í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

En ef margir starfs­menn kvarta undan sama sam­starfs­mann­inum og vilja ekki vinna með honum, hvað er hægt að gera?

„Það er mjög flókið,“ segir Helga Vala. „Þess vegna þarf að skoða það vel. Ástæðan getur verið sú að hóp­ur­inn beiti ein­hvern ein­stak­ling ein­elti eða vilji bara losna við við­kom­andi og því þarf að setja fram „kon­kret“ dæmi, það þurfa að vera mál­efna­legar ástæður fyrir kvörtun­inni til að vinnu­veit­and­inn geti metið það. Vinnu­veit­andi þarf að tryggja aðbúnað fólks og öryggi á vinnu­stað, en það breytir því ekki að ef þetta bein­ist gegn ein­hverjum einum þarf að skoða hverja ásökun fyrir sig án til­lits til hinna.

„Vinnu­veit­andi þarf að tryggja aðbúnað fólks og öryggi á vinnu­stað…“

Sem dæmi má nefna mál þar sem þrír aðilar báru einn og sama ein­stak­ling­inn sökum um kyn­ferð­is­brot og því má segja að það hafi verið  yfir­gnæf­andi líkur á að við­kom­andi væri síbrota­maður. Samt sem áður má ekki nota eitt mál til þess að byggja undir annað, það er óheim­ilt í saka­mála­rétti. Í því voru tvær af kær­unum felldar niður á rann­sókn­ar­stigi en eitt mál fór fyrir dóm og þótt allir teldu yfir­gnæf­andi líkur á sök var hann á end­anum sýkn­aður í hér­aði meðal ann­ars vegna þess að ekki mátti benda á líkur á síbrotum. Sumir vilja meina að þetta sýni að rétt­ar­kerfið sé ger­enda­vænt og það er svo sann­ar­lega margt sem má laga hvað varðar brota­þola í kerf­inu. Mér finnst það mjög mik­il­vægt að staða brota­þola sé end­ur­skoðuð, miska­bætur hækk­aðar veru­lega og að rétt­ar­kerfið sendi brota­þolum ótví­ræða við­ur­kenn­ingu á alvar­leika kyn­ferð­is­brota.“

Lestu umfjöllunina í heild sinni í nýjasta blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi