Maðurinn var handtekinn á vettvangi miðsvæðis í Reykjavík um þar síðustu helgi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás og í kjölfarið úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði síðan fram kröfu í héraðsdómi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli almannahagsmuna, en henni var hafnað. Þeim úrskurði hefur nú verið snúið við í Landsrétti eins og áður sagði.
Maðurinn hefur verið handtekinn og færður í gæsluvarðhald.





















Athugasemdir