Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blaðamenn greiða atkvæði um verkfall: „Sennilega trúa þeir því ekki að það komi til aðgerða, enda blaðamenn seinþreyttir til vandræða“

Stjórn og samn­inga­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands sam­þykkti á sam­eig­in­legum fundi sínum á föstu­dag að efna til atkvæða­greiðslu félags­manna á fjórum vinnu­stöðum um fjórar vinnu­stöðv­arnir í nóv­em­ber.

Blaðamenn greiða atkvæði um verkfall: „Sennilega trúa þeir því ekki að það komi til aðgerða, enda blaðamenn seinþreyttir til vandræða“
Hjálmar Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri BÍ

Félags­menn BÍ hjá Árvakri, RÚV, Sýn og Torgi, greiða atkvæði á mið­viku­dag. Hægt er að greiða atkvæði á eigin vinnu­stað eða á skrif­stofu Blaða­manna­fé­lags­ins í Síðumúla.

Í yfir­lýs­ingu á vef BÍ er atkvæða­seð­il­inn birtur og segir þar að komið sé að ögur­stundu. Tíu mán­uðir séu frá því að síð­ast­gild­andi kjara­samn­ingi hafi lokið og sjö mán­uðir séu síðan kjara­samn­ingar hafi verið gerðir á almennum vinnu­mark­aði. Hvorki hafi gengið né rekið í við­ræðum við Samtökum atvinnu­lífs­ins.

„Senni­lega trúa þeir því ekki að það komi til aðgerða, enda blaða­menn sein­þreyttir til vand­ræða og van­ari því að standa á hlið­ar­lín­unni og segja sög­una en móta hana sjálfir,“ skrifar Hjálmar Jónsson for­maður BÍ í yfir­lýs­ingu félags­ins.

„Það eru enda 41 ár síðan Blaða­manna­fé­lagið efndi síð­ast til verk­fallsá­taka og það var aðeins í annað sinn í meira en 120 ára sögu félags­ins að gripið er til slíks. Nú erum við að skrifa fram­hald þeirrar sögu og við reynum að gera það þannig að það verði okkur til sóma og íslensku sam­fé­lagi til heilla.“

Svona lítur atkvæða­seð­il­inn út.

Greitt úr verkfallssjóði

Stjórn og samn­inga­nefnd sam­þykkti á fundi sínum að komi til verk­fells, mun félags­mönnum verða bætt það launatap sem þeir verði fyrir.

„Við eigum sem betur fer nokkuð digra sjóði eftir fjöru­tíu ár og félagið stendur vel fjár­hags­lega. Þar til við­bótar hef ég fengið stað­fest að tæp­lega 50 þús­und félagar okkar á Norð­ur­lönd­unum standa með okkur og munu veita okkur fjár­hags­legan stuðn­ing drag­ist verk­fallið á lang­inn sam­kvæmt samn­ingi þar um,“ segir Hjálmar.

Fjórar vinnustöðvanir fjóra föstudaga

Lagt er upp með að vinnu­stöðv­anir verði fjórar, fjóra föstu­daga í nóv­em­ber. Fyrstu þrjá föstu­dag­ana myndi verk­fall ná ein­göngu til blaða­manna sem starfa á net­miðlum, það er mbl.is, visir.is, fretta­bla­did.is og ruv.is, ljós­mynd­ara og töku­manna. Lengist vinnu­stöðv­unin um fjórar klukku­stundir í hvert skipti eins og kemur fram á atkvæða­seðl­inum.
Fjórða verk­fallið tekur ein­göngu til þeirra sem starfa á prent­miðlum, það er útgáfu Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins, og ljós­mynd­ara og töku­manna, en net­miðl­arnir verða í loft­inu.

Kjör­fundur hefst kl. 9.30 á mið­viku­dag og verður farið á milli þess­ara fjög­urra vinnu­staða: á Morg­un­blað­inu kl. 9.30, á RÚV kl. 10.30, á Sýn kl. 11.30 og á Frétta­blað­inu kl. 12.30. Frá kl. 13.30 og til 17.00 verður kjör­fundur í hús­næði félags­ins að Síðumúla 23 og verða atkvæði talin strax að loknum kjör­fundi.

Tekið skal fram að und­ir­rituð er vara­maður í stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands og sat ofan­greindan fund, auk þess að vera félagi í Blaða­manna­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi