Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Seldi fornan papýrus til föndurfjölskyldu

Heims­þekktur hand­rita­sér­fræð­ingur hefur verið sak­aður um að stela fornum bibl­íu­textum og selja til banda­rískrar fönd­ur­versl­ana­keðju.

Seldi fornan papýrus til föndurfjölskyldu
Dirk Obbink

Oxford-háskóli rann­sakar nú ásak­anir á hendur einum starfs­manna sinna sem er sagður hafa stolið og selt ómet­an­lega bibl­íu­texta til banda­rískrar fönd­ur­versl­ana­keðju. Málið er allt hið und­ar­leg­asta en umræddur starfs­maður er Dirk Obbink, heims­þekktur hand­rita­sér­fræð­ingur og hand­hafi MacArthur-„snill­inga­styrks­ins“.

Text­arnir sem um ræðir eru rifur úr Bibl­í­unni sem fund­ust við upp­gröft í Oxyrhynchus í Egypta­landi árið 1896. Þær hafa verið varð­veittar í Sackler-bóka­safni Oxford-háskóla en eru í eigu Egypt Exploration Society. Mikið magn papýrusa af ýmsum toga fannst við upp­gröft­inn og hafa sér­fræð­ingar unnið að því í ára­tugi að púsla rif­unum saman og gefa út. Obbink er meðal þeirra sem leitt hafa verk­efnið.

Upphaf máls­ins má rekja til 2012 þegar Dan Wallace, sér­fræð­ingur í Nýja-Testa­ment­inu, sagð­ist hafa séð rifu úr Mark­ús­ar­guð­spjalli sem hand­rita­sér­fræð­ingur hefði sagt vera skrifað á fyrstu öld­inni. Í kjöl­farið stigu fleiri fram og sögð­ust hafa séð téð hand­rit en allir áttu það sam­eig­in­legt að geta ekki tjáð sig frekar um málið þar sem þeir hefðu und­ir­ritað þagn­areið. Mörgum þóttu frétt­irnar ótrú­legar, enda hefði verið um að ræða elsta Nýja-Testa­mentistexta sem fund­ist hefði.

Ekki hefur verið upp­lýst hvað Green-fjöl­skyldan greiddi fyrir papýrusin

Allir voru hins vegar sam­mála um að lík­lega kæmi Green-fjöl­skyldan, eig­andi Hobby Lobby, við sögu en hún var eini aðil­inn í „hand­rita­heim­inum“ sem var þekkt fyrir að láta sér­fræð­inga und­ir­rita þagn­areið. Green-fjöl­skyldan sem er afar trúuð hafði um nokk­urt skeið safnað mik­il­vægum bibl­íu­textum og stóð m.a. fyrir stofnun Bibl­íusafns­ins í Washington D.C.

Í fyrra var afar gömul rifa úr Mark­ús­ar­guð­spjalli birt í nýj­ustu útgáfu Oxyrhynchus-verk­efns­is­ins. Þar var hún sögð frá annarri eða þriðju öld en Wallace stað­festi að um væri að ræða sömu rifu og hann hafði sagst hafa séð árið 2012. Þá vökn­uðu upp ýmsar spurn­ingar. Af hverju hafði ald­urs­grein­ingin breyst og hvar var rif­una að finna?

Umfang stuldarins á huldu

Fyrstu vís­bend­ing­una var að finna á YouTube en á mynd­bands­upp­töku mátti heyra Scott Carroll, fyrr­ver­andi for­svars­mann Green-safns­ins, greina frá því að hann hefði fyrst séð Mark­ús­ar­rif­una á billj­arð­s­borði í skrif­stofu Dirk Obbink í Oxford. Þá þótti ljóst að Obbink væri hand­rita­sér­fræð­ing­ur­inn sem Wallace hafði vísað til.

Á mánu­dag stigu for­svars­menn Oxyrhynchus-verk­efn­is­ins fram og sögðu að rann­sókn hefði leitt í ljós að Obbink hefði stolið að minnsta kosti 11 rifum og selt Green-fjöl­skyld­unni. Obbink hefur ekki unnið fyrir verk­efnið frá 2016 en starfar enn við Oxford-háskóla. Green-fjöl­skyldan hefur heitið því að skila rif­unum sem voru fjar­lægðar úr safn­inu ásamt öllum fylgi­gögnum. Til allrar lukku höfðu verið tekin afrit af gögn­unum en þannig komst upp um stuld­inn.

Málið hefur orðið til þess að varpa skugga á allt starf Obbink en menn velta því nú m.a. fyrir sér hvort hann hafi vís­vit­andi sagt ósatt um aldur Mark­ús­ar­rif­unnar til að auka verð­mæti hennar fyrir sölu. Þá er unnið að því að athuga hvort fleiri texta sé saknað úr papýrussafn­inu en vitað er að Green-fjöl­skyldan hefur í sinni vörslu tvær rifur til við­bótar frá Oxyrhynchus sem voru fengnar ann­ars staðar frá.

Obbink hefur ekki viljað tjá sig um málið en Green-fjöl­skyldan sem keypti flestar hand­ritarif­urnar í tveimur sölum árið 2010 hefur borið því við að hafa ekki vitað að sér­fræð­ing­ur­inn hefði ekki heim­ild til að selja papýrus­inn.

Neyddust til að skila smygluðum fornminjum

Árið 2017 var Hobby Lobby gert að skila þús­undum íra­skra forn­minja og greiða 3 millj­ónir dala í sekt, eftir að upp komst að ólög­legan inn­flutn­ing mun­anna. Um var að ræða t.d. áletraðar leir­töflur og inn­sigli, sem komu m.a. frá fornu borg­inni Iri­sa­grig og eru talin vera frá 2.100 til 1.600 fyrir Krist.

Munirnir voru fluttir inn til Banda­ríkj­anna frá Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Ísrael en pakk­arnir voru merktir „ker­amik“ eða „prufur“ til að villa um fyrir tolla­yf­ir­völdum. Mót­tak­end­urnir voru Hobby Lobby-versl­anir og tvær höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins.

Árið 2017 var Hobby Lobby gert að skila þús­undum íra­skra forn­minja og greiða 3 millj­ónir dala í sekt.

Veru­legar tak­mark­anir hvíla á inn­flutn­ingi menn­ing­ar­verð­mæta frá Írak til Banda­ríkj­anna en for­svars­menn Hobby Lobby, sem greiddu 1,6 milljón dala fyrir 5.500 muni, báru við fáfræði þegar málið kom upp.

For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Steve Green, sagði að for­svars­menn Hobby Lobby hefðu átt að hafa meiri yfir­sýn yfir kaupin og ferlið allt en banda­rísk yfir­völd gáfu sterk­lega í skyn að mönnum hefði átt að vera ljóst að inn­flutn­ing­ur­inn væri ólög­mætur.

Í yfir­lýs­ingu frá Hobby Lobby sagði að fyr­ir­tækið hefði frá árinu 2009 stundað kaup á sögu­legum bibl­íum og öðrum forn­minjum og að upp­bygg­ing safns af trú­ar­lega mik­il­vægum bók­menntum og minjum er vörð­uðu Biblíuna, í takt við stefnu fyr­ir­tæk­is­ins og ástríðu þess gagn­vart Bibl­í­unni.

Trúaða fyrirtækið Hobby Lobby

Green-fjöl­skyldan sækir auð sinn til Hobby Lobby, keðju um 800 fönd­ur­versl­ana í Banda­ríkj­unum sem stofnuð var af David Green árið 1972. Versl­un­ar­keðjan var mikið í fréttum vest­an­hafs í tengslum við heil­brigð­is­lög­gjöf Baracks Obama, sem skyld­aði atvinnu­rek­endur til að greiða fyrir getn­að­ar­varnir starfs­manna sinna. Green-fjöl­skyld­unni, sem er afar trúuð, hugn­að­ist ekki lög­gjöfin og fór í mál við banda­ríska ríkið í gegnum Hobby Lobby.

Starfs­menn Hobby Lobby eru um 30 þús­und tals­ins.

Vísuðu lög­menn fyr­ir­tæk­is­ins m.a. til stjórn­ar­skrár­var­ins rétt fjöl­skyld­unnar, og þar af leið­andi fyr­ir­tæks­ins, til að fara eftir eigin trú­ar­sann­fær­ingu, sem m.a. væri sú að getn­að­ar­varnir á borð við „dag­inn eftir-pill­una“ jafn­giltu fóst­ur­eyð­ingu.

Málið rataði til banda­ríska hæsta­rétt­ar­ins, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2014 að einka­fyr­ir­tækjum í eigu fárra ein­stak­linga, t.d. fjöl­skyldna, væri heim­ilt að neita að greiða fyrir ákveðna þjón­ustu á grund­velli trú­ar­legra skoð­ana eig­enda sinna.

Dómurinn klofn­aði í afstöðu sinni en gagn­rýnendur sögð­ust m.a. ótt­ast að nið­ur­staðan yrði til þess að menn færu að grafa undan öðrum úrræðum á trú­ar­legum for­sendum, t.d. bólu­setn­ingum og óskum um að vera ekki end­ur­lífg­aður. Þá fannst mörgum hæpið að lög um trú­frelsi gætu náð til fyr­ir­tækja og sögðu þá túlkun ógna mann­rétt­indum ein­stakra starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta