Viðburðurinn fer fram í Iðnó Vonarstræti 3 í Reykjavík og stendur frá kl. 17.00-1.40.
Samkvæmt tilkynningu frá Ungum umhverfissinnum felur stefnubreytingin meðal annars í sér að:
- Flækja starfsumhverfi Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með óskilvirkri aðkomu Umhverfisstofnunar, þannig að fyrirtæki þurfi að eiga samskipti við tvær stofnanir í stað einnar.
- Afnema í sumum tilvikum þá venju að úttekt sé gerð á rekstri áður en starfsemi hefst, sem eykur áhættu fyrir umhverfi, heilsu almennings og réttarstöðu rekstraraðila.
Ungir umhverfissinnar hafa í tæp tvö ár reynt að benda Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á vankanta stefnubreytinggarinnar og verklags innan ráðuneytisins, sem virðist stýrast af geðþótta frekar en faglegum rökum. Samtal hefur átt sér stað en ekki hefur verið tekið mark á ábendingum. Þá hefur rökstuðningur verið af skornum skammti og meðal annars verið gefið í skyn að stefnubreytingin sé vegna Evróputilskipunar (2010/75/ESB) en það er ekki rétt.
Á viðburðinum verður málið kynnt á einfaldan hátt og allir eru velkomnir.





















Athugasemdir