Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lokaverkefni verður að einstakri barnabók

Þórunn Eva Guð­bjarg­ar­dóttir Thapa skrif­aði um lyfja­brunn barna í loka­verk­efni sínu í sjúkra­liða­námi í vor.

Lokaverkefni verður að einstakri barnabók
Þórunn gefur út bók byggða á eigin reynslu vegna veik­inda sonar hennar og lyfja­brunns sem hann þarf á að halda.

Eftir hvatn­ingu kenn­ara síns ákvað Þórunn að gera verk­efnið að barna­bók. Bókin Mía fær lyfja­brunn er nú að verða að veru­leika með sögu Þórunnar og teikn­ingum Berg­rúnar Írisar Sæv­ars­dóttur.

„Eldri sonur minn, Jón Sverrir, þurfti að fá lyfja­brunn í byrjun árs 2017 og á þeim tíma fannst mér vanta hald­bærar upp­lýs­ingar fyrir mig til að geta talað við hann og sýnt honum lyfja­brunn­inn og hvað hann gerir,“ segir Þórunn. „Upp­lýs­ingar má finna á heima­síðu Land­spít­al­ans, en maður fær ekk­ert í hend­urnar.

Á vef Land­spít­al­ans kemur fram að lyfja­brunnur sé lítið kringlótt málm­hylki sem komið er fyrir undir húð. Við hylkið er tengdur örmjór leggur sem þræddur er inn í bláæð í brjóst­holi. Á hylk­inu er himna úr plast­efni sem hægt er að stinga í gegnum. Í lyfja­brunn­inn er hægt að gefa lyf, vökva, nær­ingu og blóð­hluta. Einnig má nota hann til blóð­sýna­töku þegar ekki er unnt að taka blóð með hefð­bund­inni aðferð.

Aðspurð um hvort tækið sjá­ist undir húð­inni svarar Þórunn því neit­andi. „Það er aðal­lega örið sem sést og börn eru stundum spurð út í það. Hjá syni mínum er smá­blámi í húð­inni þar sem lyfja­brunn­ur­inn er.“

Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir skapar Míu með frá­bærum teikn­ingum sínum.

Hvött til að skrifa bók

Þegar kom að loka­verk­efn­inu í sjúkra­liða­nám­inu hjá Þórunni óskaði hún eftir að fá að tengja það við and­lega og lík­am­lega heilsu barna sem fá lyfja­brunn og var það auð­sótt. „Ég skrif­aði loka­verk­efnið um þetta ferli og breyt­ing­una á mínu barni en það létti allt fyrir hann að fá lyfja­brunn­inn.“

Þórunn fékk góða ein­kunn fyrir loka­verk­efnið. „Þá kom sú hug­mynd að gera verk­efnið að bók og kenn­ar­inn var dug­legur að hvetja mig til þess.“

Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir teikn­aði mynd fyrir loka­verk­efnið og kom engin önnur en hún til greina að sögn Þórunnar þegar kom að því að mynd­skreyta bók­ina. „Hún teikn­aði myndir og hjálp­aði okkur með Zebrabörn og var ein teikn­ara í daga­tal­inu sem við gáfum út fyrir tveimur árum. Ég var svo ánægð með sam­starfið við Bergrúnu, hún er svo heil­steypt og flott og tók vel í hug­mynd­ina að bók­inni um Míu og er spennt fyrir þessu.“

Þórunn og yngri sonur hennar, Erik Valur, fundu myndir af börnum á Netinu sem þeim fannst krútt­leg. „Þetta barn er með krútt­legt hár, annað með frekju­skarð og svo fram­vegis. Bergrún bland­aði þeim síðan saman eftir hug­myndum okkar. Bókin um Míu er til­búin í höfð­inu á mér og fyrstu drög eru komin til Berg­rúnar og við erum búnar að hitt­ast og setja hana upp,“ segir Þórunn, sem leggur áherslu á að vanda til verka.

Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir teikn­aði mynd fyrir loka­verk­efnið og kom engin önnur en hún til greina að sögn Þórunnar þegar kom að því að mynd­skreyta bók­ina.

„Við viljum hafa hana vel unna þar sem hún er fyrir börn upp að 18 ára aldri, ég vil frekar gera hana vel úr garði en flýta mér. En við stefnum að útgáfu næsta vor. Styrkt­ar­fé­lag krabba­meins­sjúkra barna hefur styrkt okkur og Prent­miðlun mun styðja okkur líka,“ segir Þórunn en hún er að leita fleiri styrkja svo að útgáfan verði að veru­leika.

Mía og afi Óli. Í bók­inni á Mía trún­að­ar­vin í Óla afa sínum, sem byggður er á alvöru­afa Óla, afa eig­in­manns Þórunnar Evu. „Hann lést sum­arið 2018 og söknum við hans mikið. Afi Óli var ein­stakur maður.“

Börn með lyfjabrunn fá bókina að gjöf

„Þetta er þekkt en ekki rosa­lega algengt,“ svarar Þórunn aðspurð um hversu mörg börn fái lyfja­brunn á ári. „Kannski að með­al­tali 20 börn á ári, ég er þó ekki með nákvæmar tölur, en eins og í fyrra greindust mörg börn með krabba­mein.

„Öll börn sem fá lyfja­brunn munu fá bók­ina að gjöf frá okkur, ann­að­hvort hjá sínum lækni eða á Land­spít­al­anum.“

Öll börn sem fara í krabba­meins­með­ferð fá lyfja­brunn í byrjun með­ferðar og svo er alltaf eitt og eitt barn sem þarf lyfja­brunn, sér­stak­lega börn sem sjá fram á margar lyfja­gjafir eða blóðprufur, eða börn sem eiga við melt­ing­ar­vanda­mál að stríða sem fá lyfja­brunn til að dæla inn nær­ingu,“ segir Þórunn.

„Öll börn sem fá lyfja­brunn munu fá bók­ina að gjöf frá okkur, ann­að­hvort hjá sínum lækni eða á Land­spít­al­anum, við erum ekki alveg búnar að útfæra það. En svo er mik­ill áhugi fyrir bók­inni þannig að við munum lík­lega selja hana líka.“

Lesa má nánar um Míu verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi