Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristín Þorsteinsdóttir útgefandi Fréttablaðsins hættir störfum: „Ég hef unnið minn síðasta dag“

Kristin Þor­steins­dóttir útgef­andi Frétta­blaðs­ins og fyrrum aðal­rit­stjóri hætti störfum þar í dag. Þetta segir hún í færslu á Facebook.

Kristín Þorsteinsdóttir útgefandi Fréttablaðsins hættir störfum: „Ég hef unnið minn síðasta dag“

„Ég hef unnið minn síð­asta dag og skrifað minn síð­asta leið­ara í Frétta­blaðið. Ný stjórn hefur tekið við með nýju fólki og nýjum áherslum.“

Í bréfi sem Ingi­björg Pálma­dóttir, stjórn­ar­for­maður og helm­ings­eig­andi í Torgi sem rekur Frétta­blaðið, sendi á starfs­menn blaðs­ins í dag segir að starf útgef­anda hafi ein­fald­ast við sölu á eignum til Sýnar og hefur það því verið lagt niður í núver­andi mynd. Allir rekstr­ar­þættir starfs­ins fær­ast til Jóhönnu Helgu Við­ars­dóttur, fram­kvæmda­stjóra félags­ins. Ingi­björg sjálf tekur við öðrum þáttum starfs­ins. Helgi Magn­ús­son keypti helm­ing Torgs í júlí.

Kristín hefur verið í veik­inda­leyfi und­an­farna mán­uði og kveður nú Frétta­blaðið.

Segir hún í færslu sinni að þeir miðlar sem hún hefur stjórnað vitni um góðan árangur.

„Í rúm 5 ár, lengur en nokkur annar, stjórn­aði ég frétta­stofu 365 sem aðal­rit­stjóri og útgef­andi – þá stærstu frétta­stofu lands­ins – og svo Frétta­blað­inu eftir að fyr­ir­tæk­inu var skipt upp, síð­ustu mán­uði hef ég verið útgef­andi. Þar áður sat ég í stjórn 365. Flestar kenni­tölur miðl­anna, sem ég stjórn­aði vitna um góðan árangur.“

Kristín rifjar upp starf sitt og segir dag­ana hafa verið dýrð­lega:

„Fréttir Stöðvar 2 náðu að velgja keppi­nautnum undir uggum – oft vorum við með meira áhorf en RUV, visir.is komst í fyrsta skipti yfir mbl.is undir minni stjórn, við gerðum frá­bæra hluti með nýjum áherslum og útliti Frétta­blaðs­ins. Við breyttum skipu­riti frétta­stof­unnar og gerðum hlut kvenna meiri en nokkru sinni. Um tíma voru flestir yfir­menn konur og stundum voru vakt­irnar ein­göngu skip­aðar konum. Þetta voru dýrð­legir dagar.“

Kristín segir að lífið hafi þó ekki alltaf verið auð­velt. Reglu­lega hafi verið í sparn­að­ar­að­gerðir.

„Við þurftum að velta hverri ein­ustu krónu, enda höfðum við úr miklu minni pen­ingum að spila en keppi­naut­arnir.“

Að lokum beinir Kristín orðum sínum til sam­starfs­manna sinna:

„En ekk­ert af þessu hefði tek­ist án ykkar. Ég var svo heppin að hafa frá­bært starfs­fólk mér við hlið, fólk sem hefur verið til­búið að leggja meira á sig, en hægt hefur verið að ætl­ast til. Fyrir það vil ég þakka ykkur af öllu hjarta.

En nú skilur leiðir. Allt tekur enda. Vonandi tekur eitt­hvað nýtt og skemmti­legt við. Nóg er starfs­orkan. Takk og gangi ykkur sem allra best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi