Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

100 af 800 sagt upp hjá Arion

Alls 100 starfs­mönnum Arion banka var sagt upp störfum í gær , í stærstu hóp­upp­sögn í fjár­mála­geir­anum frá hruni. Þeir sem eftir sitja eru ugg­andi um fram­haldið en 20 var sagt upp hjá Íslands­banka í gær og 12 var sagt upp hjá Valitor í vik­unni. Engum úti­búum verður lokað.

100 af 800 sagt upp hjá Arion
Mynd / Hákon Davíð Björns­son|

„Við í minni deild finnum nú fyrir létti þar sem engum var sagt upp hjá okkur en við finnum mikið til með þessum 100 sem fengu upp­sagn­ar­bréf. Hins vegar gætu orðið breyt­ingar hjá okkur bráð­lega þannig að í raun er eng­inn alveg öruggur,“ sagði starfs­maður í Arion banka í sam­tali við Mannlíf í gær, eftir að til­kynnt var að 100 yrði sagt upp hjá fyr­ir­tæk­inu fyrir mán­aða­mót.

„And­rúms­loftið á vinnu­staðnum er búið að vera mjög sér­stakt síðan fréttin af upp­sögn­unum birt­ist í upp­hafi vik­unnar,“ sagði starfs­mað­ur­inn. „Það hefur verið mikil hræðsla; allir á tánum og bara beðið fregna. Maður vissi að þetta væri senni­lega satt þar sem það kom engin til­kynn­ing eða tölvu­póstur á starfs­menn til að leið­rétta frétt­ina sem birt­ist á sunnu­dag­inn. Sumir hrein­lega sváfu ekki og við reyndum að stappa stál­inu í hvert annað þegar við mættum til vinnu á mánu­dag­inn.“

Mannlíf greindi frá því á sunnu­dag­inn að um 80 manns yrði sagt upp strax á mánu­dag eða síðar í vik­unni. Í gær­morgun barst svo til­kynn­ing frá Arion banka um upp­sagn­irnar, sem hófust reyndar dag­inn áður. Alls 100 starfs­menn af 800 misstu vinn­una, jafnt hlut­fall kvenna og karla, en 65% starfs­manna bank­ans eru konur og 35% karlar. Með­al­aldur starfs­manna er um 42 ár en Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion, sagði með­al­aldur þeirra sem sagt var upp eilítið hærri. Engum úti­búum verður lokað og sagði Haraldur að almennir við­skipta­vinir ættu ekki að verða varir við þær breyt­ingar sem nú væri ráð­ist í. Hins vegar stæði til að auka þjón­ust­una við fyr­ir­tæki.

„Með þeim skipu­lags­breyt­ingum sem við kynnum í dag erum við að bregð­ast við aðstæðum til að tryggja að bank­inn þjóni sínum við­skipta­vinum vel á sama tíma og hann skilar hlut­höfum arði. Við byggjum á þeim mikla árangri sem hefur náðst á und­an­förnum árum á sviði staf­rænnar þjón­ustu og sjálf­virkni­væð­ingar og ætlum okkur áfram­hald­andi for­ystu­hlut­verk í fram­sæk­inni fjár­mála­þjón­ustu,“ var haft eftir Benedikt Gísla­syni banka­stjóra í til­kynn­ingu.

„Þetta verður erf­iður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott sam­starfs­fólk sem ég efast ekki um að muni láta að sér kveða á nýjum vett­vangi.

Blóðug vika

Frétt­irnar í gær komu á hæla fregna þess efnis að 87 flug­mönnum yrði sagt upp hjá Icelandair. Þá var 20 sagt upp hjá Íslands­banka í gær og 12 sagt upp hjá Valitor í vik­unni en Valitor er alfarið í eigu Arion banka. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lands­bank­anum voru engar upp­sagnir fyr­ir­hug­aðar á þeim bæ þessi mán­aða­mót. Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að von­andi yrði hægt að ráða flesta þá sem missa vinn­una nú aftur í vor.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Upp­sagn­irnar hjá Arion banka taka gildi 1. októ­ber en kostn­aður vegna þeirra mun nema um 900 millj­ónum. Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mál­stofn­unar, stað­festi í gær að bank­inn hefði ákveðið að bæta mán­uði við upp­sagn­ar­frest allra þeirra sem misstu vinn­una en elsti ald­urs­hóp­ur­inn fengi þrjá mán­uði auka­lega. Samkvæmt heima­síðu Arion banka er elsti starfs­hóp­ur­inn 60-69 en þeir starfs­menn telja um 6% allra starfs­manna. Unnur segir Vinnu­mála­stofnun muni veita þeim sem misstu vinn­una ráð­gjöf og aðstoð í atvinnu­leit en seg­ist von­ast til að flestir fái vinnu áður en upp­sagn­ar­frest­inum líkur.

„Þetta er sterkur hópur, bæði með starfs­reynslu og góða menntun, þannig að von­andi geta þeir nýtt tím­ann í atvinnu­eit og fá flestir vinnu áður en til þess kemur að þeir sækja um hjá okkur,“ sagði hún í sam­tali við Mannlíf í gær.

Friðbert Trausta­son, for­maður Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, sagði í sam­tali við Sam­fé­lagið í gær að upp­sögn­unum yrði mögu­lega vísað til félags­dóms vegna sam­ráðs­leysis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi