Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskir rithöfundar ræða um hefðina, nútímann, ímyndunarafl, glæpasögur og ofurhetjur

Auður Ava Ólafs­dóttir, Kristín Ómars­dóttir, Ragnar Jónasson og Sigrún Eldjárn eru full­trúar Íslands á bóka­mess­unni sem fram fer í Gauta­borg næstu helgi, eða 26.- 29. sept­em­ber.

Íslenskir rithöfundar ræða um hefðina, nútímann, ímyndunarafl, glæpasögur og ofurhetjur
Auður Ava

Þau ræða meðal ann­ars um hefð­ina og nútím­ann, ímynd­un­ar­afl og ljóð­rænu í tungu­mál­inu, nýjar glæpa­sögur og ofur­hetj­una Viktoríu.

Þegar gamalt mætir nýju. Auður Ava í aðaldagskránni

Á laug­ar­deg­inum ræðir Auður Ava Ólafs­dóttir, hand­hafi bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs, við rit­höf­undana Dörte Hansen frá Þýska­landi og Elinu Olofsson frá Svíþjóð um það þegar hefðin mætir nútím­anum og þegar hið fram­sækna mætir því íhalds­sama út frá nýj­ustu bókum þeirra. Yfir­skriftin er När gammalt möter nytt og verður spjall­inu stýrt af drama­t­úrgnum Anneli Dufva.

Kristín í ljóðadagskránni Rum för poesi

Kristín Ómars­dóttir les upp ljóð sín í ljóða­dag­skránni Rum för poesi  á laug­ar­deg­inum en hún er til­nefnd til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs fyrir ljóða­bók sína Kóngulær í sýn­ing­ar­gluggum. Margir íslenskir höf­undar hafa komið fram í Rum för poesi á liðnum árum en dag­skránni er stýrt af Per Bergström sem rekur sænsku bóka­út­gáf­una Rámus.

Ljóðrænt tungumál og ímyndunaraflið

Á laug­ar­dags­morgn­inum klukkan 11.00-11.30 taka Auður Ava og Kristín að auki þátt í við­burði sem sænski þýð­and­inn John Swedenmark stýrir í Värld­skult­ur­mu­séet í Gauta­borg með yfir­skrift­inni Att skapa och skaka om världen. Þar verður rætt um ímynd­un­ar­aflið og hið tak­marka­lausa ljóð­ræna tungu­mál og lesa höf­und­arnir úr verkum sínum. Við­burð­ur­inn er hald­inn í sam­starfi við Litt­era­t­ur­hu­set í Gauta­borg, Sendiráð Íslands í Stokk­hólmi og För­en­ingen Norden.

Ragnar í glæpasagnadagskránni Crimetime

Crimetime er glæpa­sagna­dag­skrá sem er nú hluti af Gauta­borg­ar­mess­unni annað árið í röð og verður Ragnar Jónasson full­trúi Íslands þar. Hann ræðir við Lottu Olsson um verk sín undir yfir­skrift­inni Möt Islands nya krim­stjärna!. Ragnar nýtur mik­illa vin­sælda meðal sænskra les­enda, en bók hans Dimma er á lista yfir bók árs­ins þar í landi og var sölu­hæst á Aka­demi­bok­hand­eln list í þrjár vikur í apríl. Einnig er Drungi komin út í sænskri þýð­ingu og er Modern­ista útgef­andi bókanna í Svíþjóð.

Íslenski bás­inn

Dagskrá fyrir unga lesendur og íslenskar fjölskyldur í Gautaborg

Sigrún Eldjárn kemur fram í barna­dag­skránni Barnsa­longen á sunnu­deg­inum, en hún er til­nefnd til barna- og ung­linga­bóka­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs. Sigrún segir þar frá bókum sínum um Sig­ur­fljóð sem hún skrifar bæði og mynd­skreytir. Auk þess verður hún í við­burði fyrir Íslend­inga búsetta í Gauta­borg á sunnu­deg­inum kl. 10. 30 í Språkcentrum i mið­borg Gauta­borgar. Það er íslenski menn­ing­ar­klúbb­ur­inn, undir stjórn íslenska kon­súls­ins i Gauta­borg, sem hefur umsjón með við­burð­inum í sam­vinnu við íslenska móð­ur­máls­kennar­ann þar í borg.

Íslenskar bækur á básnum

Miðstöð íslenskra bók­mennta heldur utan um dag­skrá íslensku höf­und­anna í sam­ráði við stjórn­endur messunnar. Íslenski bás­inn á bóka­mess­unni er í sam­starfi við Íslands­stofu en þar eru bækur íslenskra höf­unda kynntar og seldar, margar hverjar í sænskum þýð­ingum og það er Félag íslenskra bóka­út­gef­enda sem hefur umsjón með því.

Íslenski bás­inn er númer C03:39 og er hönnun hans í höndum HAF studio .

Sjá hér heild­ar­dag­skrá bóka­messunnar í Gauta­borg 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi