Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjarta Þuríðar syngur dátt í Salnum: „Sjarminn vex bara með árunum og fallega gráa faxinu sem hún skartar“

Þuríður Sig­urð­ar­dóttir heldur tón­leik­ana, Þegar hjartað syngur dátt, í Salnum í Kópavogi föstu­dag­inn 27. sept­em­ber. Í vor hélt hún tvenna tón­leika í Bæj­ar­bíói í Hafn­ar­firði og komust þar færri að en vildu.

Hjarta Þuríðar syngur dátt í Salnum: „Sjarminn vex bara með árunum og fallega gráa faxinu sem hún skartar“

Þuríður Sig­urð­ar­dóttir á ekki langt að sækja tón­list­ar­hæfi­leik­ana, sem eru ætt­ar­fylgja. Hún sló í gegn 16 ára þegar hún söng inn á plötu með Lúdó og Stefáni. Stuttu seinna var henni boðið í Hljóm­sveit Magnúsar Ingi­mars­sonar, sem var fast­ráðin veit­inga­staðnum Röðli. Þar söng hún sex daga vik­unnar ásamt Vil­hjálmi Vil­hjálms­syni og seinna með Pálma Gunn­ars­syni. Hljóm­sveitin gerði nokkra útvarps- og sjón­varps­þætti og Þuríður varð ein þekktasta söng­kona lands­ins. Hún söng inn á sóló­plötur, gerði eina plötu með föður sínum Sigurði Ólafs­syni, tvær plötur með Pálma Gunn­ars­syni og eina með Ragnari Bjarna­syni. Þuríður söng með Hljóm­sveit Jóns Páls Bjarna­sonar, stofn­aði hljóm­sveit­ina Islandia, söng með Hljóm­sveit Ragnars Bjarna­sonar og var í Sum­ar­gleði­hópnum. Hún hefur starfað með fleiri hljóm­sveitum og sungið inn á nokkrar plötur til við­bótar. Samt ætl­aði hún aldrei að verða söng­kona – þetta gerð­ist ein­fald­lega fyrir hreina til­viljun, skrifar Jónatan Garð­ars­son í tón­leika­skrá.

Og hann heldur áfram: Þegar Þuríður varð sjö­tug í árs­byrjun 2019 og 50 ár voru liðin frá því að fyrsta sóló­plata hennar, með lög­unum Ég á mig sjálf og Ég ann þér enn, kom út fagn­aði hún tíma­mót­unum með tón­leikum í Bæj­ar­bíói. Miðarnir seld­ust upp á skömmum tíma og eft­ir­spurnin var slík að hún efndi til aukatón­leika. Mjög góður rómur var gerður að tón­leik­unum enda er Þuríður í fanta­góðu formi og syngur betur en nokkru sinni fyrr. Vegna fjölda áskor­ana hefur Þuríður ákveðið að halda fleiri tón­leika og koma fram í Salnum í Kópavogi og á Græna hatt­inum á Akureyri, með sama mann­skap og í Bæj­ar­bíói. Það verður eng­inn svik­inn af tón­leikum með Þuríði og hennar fólki.

Þuríði til halds og traust á tón­leik­unum eru sonur hennar, Sigurður Helgi Pálmason gesta­söngv­ari, og hljóð­færa­leik­ar­arnir Benedikt Bryn­leifs­son, Gunnar Hrafns­son, Grímur Sig­urðs­son, Hjör­leifur Valsson og Pálmi Sig­ur­hjart­ar­son.

Gunnþór Sig­urðs­son, bróðir Þuríðar, klippti saman mynd­bandið.

Silja Aðal­steins­dóttir bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrif­aði eft­ir­far­andi um tón­leik­ana í Bæj­ar­bíói:

„Tón­leika­gestir í Bæjarbíó í Hafn­ar­firði urðu svo­lítið hissa að kvöldi Sum­ar­dags­ins fyrsta þegar það var ungur karl­maður sem kom fyrstur á svið, þeir áttu von á konu – Þuríði Sig­urð­ar­dóttur, söng­konu kvölds­ins. Ungi mað­ur­inn flutti Somewhere over the Rainbow alveg ágæt­lega en við­staddir fögn­uðu þó enn meira þegar hann kynnti móður sína á svið í lok lags­ins. Og um leið hljóm­uðu fyrstu tónar fyrsta lags­ins sem Þuríður söng inn á plötu og sló eft­ir­minni­lega í gegn með: „Elskaðu mig.“

Þuríður byrj­aði ung að syngja með hljóm­sveitum, eins og hún rifj­aði upp í skemmti­legum og fróð­legum inn­skotum milli laga. Hún var nátt­úru­lega dóttir eins þekktasta söngv­ara lands­ins, Sigurðar Ólafs­sonar, og eðli­legt að hún væri gripin upp af hljóm­sveit­ar­stjórum sem alltaf voru á hött­unum eftir nýju hæfi­leika­fólki. Allt gerð­ist það þó eins og af til­viljun, eftir því sem hún sagði, enda er maður ekki bein­línis að plana ævi­starfið sextán ára gam­all. Þó söng Þuríður sig í gegnum næstu ára­tugi en um alda­mótin skipti hún um líf. Hún fór í mynd­list­ar­nám og hefur verið í hópi vin­sæl­ustu mynd­list­ar­manna þjóð­ar­innar síðan hún útskrif­að­ist.

En á þessum afmæl­is­tón­leikum – Þuríður varð sjö­tug í jan­úar – sýndi hún og sann­aði að hún hefur engu gleymt, ef eitt­hvað er vex sjarm­inn bara með árunum og fal­lega gráa fax­inu sem hún skartar. Hún heldur bæði útliti og rödd svo öfunds­vert er. Á tón­leik­unum söng hún blöndu af vel völdum lögum, bæði lög sem hún gerði sjálf fræg og vin­sæl eins og áður­nefnt Elskaðu mig, Ég á mig sjálf og Ég ann þér enn – þau vöktu að sjálf­sögðu mesta gleði í salnum – og lög á borð við Bláu augun þín, Tvær stjörnur, Kvöld­kyrrð og Þannig týn­ist tím­inn. Tvö þau síð­ast­nefndu söng hún með Sigurði Pálma­syni, syni sínum.
Eftir hlé söng Þuríður aðal­lega erlend dæg­ur­lög sem mér fannst fara henni alveg sér­stak­lega vel – lög eins og These Boots are made for Walking, Smile og All of me. Það besta við upp­rifj­un­ar­tón­leika af þessu tagi eru minn­ing­arnar sem streyma til manns. Því það er segin saga að gott lag virkar eins og minnis­lyf! Og engin leið að tengja vondar minn­ingar við fal­lega tón­list. Kærar þakkir fyrir ynd­is­lega tón­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi