Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eyvindur vill komast til Nashville: Safnar húðflúrum á Melodica tónlistarhátíðum

Tón­list­ar­mað­ur­inn Eyvindur Karlsson, sem stendur einnig að baki tón­list­ar­verk­efn­inu One Bad Day, hyggur á tón­leika­hald á Melodica hátíð­inni sem haldin verður í tón­list­ar­höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, Nas­hville í Tennessee, 18. og 19. októ­ber.

Eyvindur vill komast til Nashville: Safnar húðflúrum á Melodica tónlistarhátíðum
|

„Melodica er alþjóð­leg hátíð sem miðar að því að styrkja tengsla­net söngvaskálda víðs­vegar um heim­inn, og er að öllu leyti rekin í sjálf­boða­vinnu,“ segir Eyvindur sem stendur nú fyrir fjár­öflun til að standa straum af kostn­aði við ferða­lagið til Nas­hville. Eyvindur blæs til söfn­un­ar­tón­leika á fimmtu­dags­kvöldið kemur 19. sept­em­ber, auk þess að selja varn­ing og bjóða fólki hrein­lega að styrkja sig til að kom­ast í þessa spenn­andi ferð.

„Tón­leik­ana held ég í Djúpinu, forn­frægum bar í kjall­ar­anum á veit­inga­staðnum Horninu. Þar mun One Bad Day stíga á svið í öllu sínu veldi sem heil hljóm­sveit,“ segir Eyvindur, en allur ágóði af tón­leik­unum og sölu af varn­ingi mun renna óskiptur í ferða­sjóð­inn til Nas­hville.

Miðasala fer fram á vef­síðu Eyvindar, og fólk er hvatt til að kaupa miða tím­an­lega, en húsið rúmar fáa. Miðaverð er fljót­andi, þannig að fólk getur borgað ákveðna lág­marks­upp­hæð fyrir mið­ann, en einnig bætt við auka­fjár­hæð að eigin vali til styrktar ferða­sjóðnum. Það sama gildir um sölu á varn­ingi á vef­síð­unni og tón­leik­unum. Á tón­leik­unum verður hægt að kaupa hljóm­plöt­una „A bottle full of dreams“ sem kom út á síð­asta ári. Platan er fáan­leg sem geisla­diskur, nið­ur­hal og vín­il­plata.

Tilgangur Melodica að efla samskipti listamanna um alla heim

Melodica er alþjóð­leg hátíð sem hefur farið fram víðs­vegar í heim­inum frá árinu 2007, en það var ástr­alski tón­list­ar­mað­ur­inn Pete Uhlenbruch sem stóð fyrir þeirri fyrstu í Melbourne í Ástralíu, og síðar sama ár fór fyrsta hátíðin fram í Reykja­vík. Fyrir utan að vera skemmti­legar hátíðir þá eru Melodica einnig hugs­aðar til að efla sam­skipti lista­manna um allan heim, og í dag er Melodica fjöl­skyldan orðin stór, og sífellt bæt­ast nýjar hátíðir við. Hátíðin í Nas­hville í októ­ber er sú fyrsta sem er haldin þar, en upp­hafs­maður hennar er Eggert Einer Nielsen, sem hefur margoft spilað á Melodica í Reykja­vík og víðar. Eggert var lengi búsettur á Vest­fjörðum og stóð til að mynda fyrir hátíð­inni Blá­berja­dögum í Súðavík.

„Ég er búinn að spila  á Melodica í Reykja­vík frá upp­hafi eða í þrettán skipti á þeim tólf árum sem hátíðin hefur verið haldin.,“ segir Eyvindur, en hann er upp­hafs­maður Melodica í Hafn­ar­firði, sem haldin var í fyrsta sinn síð­ast­liðið vor og verður aftur haldin næsta vor.

„Melodica skipar því stóran sess í hjarta mínu og ég hef látið flúra ein­kenn­is­merki hverrar hátíðar sem ég hef spilað á á hand­legg­inn, sem eins konar tákn um tryggð við hátíð­ina.“

Við­burður á Facebook.

Á hand­legg Eyvindar eru nú merki Melodica hátíð­ar­innar í Reykja­vík, Hafn­ar­firði og Nott­ing­ham á Englandi. Og stefnir Eyvindur á að bæta Nas­hville við með ykkar stuðn­ingi.

„Bréf­bát­ur­inn er merki hátíð­ar­innar í Reykja­vík, öndin er Melodica Nott­ing­ham og vit­inn er að sjálf­sögðu Hafn­ar­fjörður.“

Óseldir miðar verða í boði við inn­gang­inn, en þar sem hús­rúm er afar tak­markað eru áhuga­samir hvattir til að kaupa miða á vefnum onebadday.is. Þar er einnig hægt að veita beina fjár­styrki í ferða­sjóð­inn, sem og festa kaup á plötum og bolum.

Auk þess er hægt að styrkja ferð­ina beint með milli­færslu á banka­reikn­ing:
One Bad Day slf
kt. 550518-1390
0133-26-014065

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi