Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Minn lærdómur af þessu öllu er að læra að elska sjálfan mig, það er ferli sem ég er að vinna í“

Hlynur Kristinn Rún­ars­son upp­lifði skelfi­lega hluti þegar hann var í neyslu, seg­ist hafa verið sjálf­hverfur og skaðað fólkið í kringum sig.

„Minn lærdómur af þessu öllu er að læra að elska sjálfan mig, það er ferli sem ég er að vinna í“

Hlynur er breyttur maður í dag og hefur stofnað góð­gerða­sam­tök, Það er von, til að vinna að for­vörnum. Hlynur prýðir for­síðu helg­ar­blaðs Mannlífs.

Á góðum stað í dag

Eftir að Hlynur kom úr með­ferð fór hann að skrifa ein­lægar færslur á Facebook sem hafa vakið mikla athygli og segir að fyrst hafi allur dag­ur­inn farið í að fylgj­ast með hverjir „læk­uðu“ og skrif­uðu athuga­semdir. „Þessi þörf fyrir við­ur­kenn­ingu minnkar með hverjum degi og hverri færslu. Álit ann­arra mun ekki breyta neinu, ég er ánægður með það sem ég skrifa og það er gott að geta verið ánægður án þess að bíða stöðugt eftir sam­þykki sam­fé­lags­ins þó að jákvæð við­brögð gleðji mig að sjálf­sögðu. Þegar ég sýni fólki inn í hug­ar­heim okkar fíkla þá speglar fólk oft ákveðið mynstur sem fík­ill eða aðstand­andi fíkils.“

Hlynur hefur þegar haldið einn fyr­ir­lestur fyrir ung­linga í Borg­ar­holts­skóla og hefur hann fullan hug á að halda fleiri slíka. Hann rifjar upp að þegar hann var ung­lingur og var við­staddur fyr­ir­lestur um for­varnir þá fólst hann í að sýna myndir af hversu illa neyslan færi með fólk útlits­lega. „Ég vel hins vegar frekar að segja frá hvaða afleið­ingar neyslan hefur. Neysla gerir mann heimskan, það er bara vís­inda­lega sannað og það vill eng­inn vera heimskur.

„Ég vil vera for­vörn, ég vil segja krökkum og ung­lingum það að edrúlíf sé betri kostur og betra líf. Það verður eng­inn glaður í hjart­anu við að vera í neyslu.“

Ég vil vera for­vörn, ég vil segja krökkum og ung­lingum það að edrúlíf sé betri kostur og betra líf. Það verður eng­inn glaður í hjart­anu við að vera í neyslu. Ég vil sýna fólki það að með breyttu við­horfi þá er hægt að breyt­ast. Sumir trúa því ekki, en ég vil kveikja trú á því að það sé hægt. Ég get miðlað af minni reynslu og hverju hún skil­aði mér.

Í dag líður mér vel og ég er að gera hluti sem eru upp­byggi­legir. Ef ég held áfram sömu leið þá mun mér líða betur og betur. Og ég hef tekið ábyrgð og við­ur­kennt og reynt að bæta fólki upp það tjón sem ég hef valdið því. Auðvitað get ég ekki ætl­ast til þess að fólk fyr­ir­gefi mér allt strax, eins og móðir mín sem ég setti í gegnum hreint hel­víti en hún hvetur mig áfram í öllu sem ég geri í dag,“ segir hann.

„Áður, þegar ég var að selja og í neyslu, var ég alltaf karl­inn sem átti allt og var að leit­ast við að halda öllum góðum, alltaf að sækj­ast eftir við­ur­kenn­ingu og á svo röngum stöðum að leita eftir ást og við­ur­kenn­ingu hjá fólki sem hefur enga ást og við­ur­kenn­ingu að gefa. Þessi glæpon sem hafði allt færði mér enga ham­ingju og ég full­yrði að ég hef ekki verið ham­ingju­samur síð­ustu 10-11 árin. Ham­ingjan kemur innan frá og maður skilur það ekki fyrr en maður bragðar á henni.

Í dag er ég með það mark­mið fyrst og fremst að verða ham­ingju­samur og láta gott af mér leiða, auð­vitað langar mig til að eign­ast fjöl­skyldu og þetta eðli­lega, eigin íbúð og slíkt. Minn lær­dómur af þessu öllu er að læra að elska sjálfan mig, það er ferli sem ég er að vinna í.“

Lestu við­talið við Hlyn í heild sinni í nýjasta Mannlífi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi