Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Í stað þess að tækla hlutina og eiga á hættu að rugga bátnum þá deyfði ég mig bara“

Hlynur Kristinn Rún­ars­son upp­lifði skelfi­lega hluti þegar hann var í neyslu, seg­ist hafa verið sjálf­hverfur og skaðað fólkið í kringum sig.

„Í stað þess að tækla hlutina og eiga á hættu að rugga bátnum þá deyfði ég mig bara“
Haraldur Þor­leifs­son Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hlynur er breyttur maður í dag og hefur stofnað góð­gerða­sam­tök, Það er von, til að vinna að for­vörnum. Hlynur prýðir for­síðu helg­ar­blaðs Mannlífs.

„Mætti mótlæti sem ég var ekki í stakk búinn til að takast á við“

Þegar Hlynur var kom­inn heim frá Brasilíu í byrjun árs 2017 fór hann að vinna á Grund­ar­tanga, en var sagt upp eftir þrjá mán­uði í starfi. „Ég var lát­inn fara þar sem þeir héldu að ég myndi fá ein­hvern til að smygla fyrir mig, ég skil ekki hvernig þeir fengu það út. Það braut mig mjög mikið niður, ég lagði mig mikið fram og var edrú. Það að vera aflíf­aður í fjöl­miðlum hefur áhrif og nokkrir ein­stak­lingar lögðu sig mikið fram um að koma eins miklum sora og hægt var á mig. Ég setti mynd inn á Facebook hjá mér og sagði að ég væri byrj­aður að vinna hjá Norð­ur­áli en missti starfið tveimur vikum seinna. Ég er full­viss um að ein­hver hringdi í þá og sá til þess að ég var rek­inn. Yfirmenn mínir vissu alveg að ég hafði verið í fang­elsi, ég hafði verið heið­ar­legur með það.“

„Ég hefði átt að vera einn og byggja sjálfan mig upp, en þetta þró­að­ist svona og neyslan varð mjög fljótt stjórn­laus.“

Hlynur fór í aðra vinnu, þar sem honum var líka sagt upp. Og í þriðja starf­inu var hann byrj­aður að nota fíkni­efni aftur. „Ég var settur á stera sam­kvæmt lækn­is­ráði, þegar ég hætti á þeim fór ég í and­lega lægð og mætti mót­læti sem ég var ekki í stakk búinn til að takast á við. Ég hefði átt að vera einn og byggja sjálfan mig upp, en þetta þró­að­ist svona og neyslan varð mjög fljótt stjórn­laus. Ég fór í sam­band þegar ég kom heim sem var óheil­brigt fyrir okkur bæði og braut mig mikið niður. Ég hélt ég væri skotn­ari í henni en ég var en var aðal­lega hrif­inn af hug­mynd­inni að vera ást­fang­inn. Ég lagði mikið á mig til að gera ein­hverja róm­an­tíska hluti en henni fannst það ekk­ert spenn­andi, enda var hún sjálf bara flöt eftir neyslu,“ segir Hlynur þegar hann hugsar til baka. „Ég skildi þetta ekki fyrr en ég varð edrú sjálfur, að vera til­finn­inga­lega flatur, finna ekki fyrir neinu. Ég hélt að þetta væri út af mér, að ég væri ábyrgur fyrir því að hún sýndi mér ekki til­finn­ingar, að það væri vegna þess að ég væri ekki eitt­hvað og braut sjálfan mig mikið niður.“

Sam­band­inu lauk og segir Hlynur að sam­bands­slitin hafi ekki farið vel í hann og eftir þau hafi hann farið á kaf í neyslu. „Ég hvarf gjör­sam­lega, byrj­aði að reykja krakk og gerði það í heilt ár. Í stað þess að tækla hlut­ina og eiga á hættu að rugga bátnum þá deyfði ég mig bara. Ég gat ekki tæklað neitt, gremjan byggð­ist upp og mér fannst ég vera fórn­ar­lamb. Í stað þess að vinna í hlut­unum, tala við fólk og finna lausnir, þá bara hlóð ég öllu upp inni í mér og vann gegn mér.“

„Ég skamm­að­ist mín vegna þess að ég dæmdi sjálfur aðra svo mikið.“

Hlynur segir að neysla hans hafi haft mikil áhrif á fjöl­skyldu hans. „Fólk hélt að ég væri bara að drep­ast. Ég fór nokkrar ferðir í sjúkra­bíl í krampa og mér er bannað að koma á nokkur hótel af því ég yfir­gaf þau alltaf í sjúkra­bíl. Mér leið illa og var ekki til­bú­inn að takast á við sjálfan mig, ég dæmdi mig svo mikið að ég gat í raun­inni ekki horft í augun á fólki, beðið um hjálp og farið í með­ferð og tekið mig á,“ segir Hlynur, sem seg­ist áður hafa dæmt AA-menn sem aum­ingja, menn sem eru í sömu sporum og hann í dag. „Ég skamm­að­ist mín vegna þess að ég dæmdi sjálfur aðra svo mikið.“

Lestu við­talið við Hlyn í heild sinni í nýjasta Mannlífi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi