Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Okkar hlutverk er ekki að finna börn“

Ætt­leið­ingum hefur fækkað en enn sem áður þarf að vanda til verka. Yfirvöld erlendis leggja síaukna áherslu á að para saman umsækj­endur og barn en aðstoð við upp­runa­leit hefur bæst á verk­efna­lista Íslenskrar ætt­leið­ingar.

„Okkar hlutverk er ekki að finna börn“
|Það heyr­ist oft að ætt­leið­ing­ar­ferlið sé langt og biðin löng en Kristinn segir það ekki að ástæðu­lausu.|
Það heyr­ist oft að ætt­leið­ing­ar­ferlið sé langt og biðin löng en Kristinn segir það ekki að ástæðu­lausu.

Ætt­leið­ingum erlendis frá hefur fækkað tölu­vert síð­ustu ár. Víða hefur þörfin dreg­ist saman, t.d. í Kína þar sem ætt­leið­ingum inn­an­lands hefur fjölgað veru­lega, en á sama tíma eru börn í fjöl­skyldu­leit nú jafnan eldri og/eða með skil­greindar þarfir. „Það eru færri sem treysta sér í það,“ segir Kristinn Ingv­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Íslenskrar ætt­leið­ingar, en hann segir töl­urnar langt í frá end­ur­spegla umfang starf­semi félags­ins, sem hefur auk­ist tölu­vert.

„Ætt­leið­ingar eru barna­vernd­ar­mál. Allt sem við gerum snýr að rétt­indum barns­ins til að eiga fjöl­skyldu. Okkar hlut­verk er ekki að finna börn; við pössum upp á að þeir sem eru að fara í gegnum ferlið og fá þetta dásam­lega hlut­verk að verða for­eldrar ætt­leidds barns séu til­búnir til þess,“ segir Kristinn með áherslu en Íslensk ætt­leið­ing leggur gríð­ar­lega mikið upp úr því að und­ir­búa vænt­an­lega for­eldra sem allra best undir hið nýja hlut­verk.

„Ætt­leið­ingar eru barna­vernd­ar­mál. Allt sem við gerum snýr að rétt­indum barns­ins til að eiga fjöl­skyldu.“

Að mörgu er að huga. Unnið er eftir íslensku mód­eli á grund­velli þjón­ustu­samn­ings við dóms­mála­ráðu­neytið, sem þýðir að grunn­starf­semi félags­ins er tryggð þrátt fyrir sveiflur í fjölda ætt­leið­inga ár frá ári. Módelið gengur út á mikla fræðslu, ráð­gjöf og stuðn­ing, og það þykir bera af á heims­vísu.

Það heyr­ist oft að ætt­leið­ing­ar­ferlið sé langt og biðin löng en Kristinn segir það ekki að ástæðu­lausu.

„Mun­að­ar­laus börn eru öðru­vísi en önnur börn; í bak­pok­ann þeirra er búið að setja reynslu sem önnur börn hafa ekki,“ bendir Kristinn á. „Já, þetta tekur langan tíma en und­ir­bún­ing­ur­inn þarf að vera góður. Þetta er ekki skyndi­á­kvörðun. Það þarf að bjóða þessum börnum góðar aðstæður og fjöl­skyldan þarf að vera til­búin í þetta.“

Löngum var því þannig háttað erlendis að unnið var eftir núm­era­kerfi; umsækj­endur fóru ein­fald­lega í röð, en margt hefur breyst og yfir­völd vanda sig nú meira við að para saman umsækj­endur og börn. Þetta hefur valdið því að sumir bíða í mörg ár, á meðan aðrir bíða í aðeins vikur eða mán­uði.

Í dag koma börnin flest frá Tékk­landi. „Þar er ekki verið að velta því fyrir sér hversu gömul umsóknin er; það er alltaf verið að leita að réttum for­eldrum,“ segir Kristinn. Sumir bíði vissu­lega lengi en fái svo að lokum akkúrat „sitt barn“.

Flestir sem leita til Íslenskrar ætt­leið­ingar eru barn­lausir og hafa glímt við ófrjó­semi. Aðrir eiga börn, jafn­vel mörg, en hefur dreymt um að ætt­leiða. Enn sem komið er hefur eng­inn ein­hleypur karl­maður sótt um en ein umsókn sam­kynja pars er í vinnslu og ef af verður verða við­kom­andi fyrstu íslensku sam­kynja for­eldr­arnir til að ætt­leiða barn í gegnum Íslenska ætt­leið­ingu.

Kröfur hafa auk­ist í kjöl­far auk­innar þekk­ingar. Sam­skiptin við yfir­völd erlendis eru viða­mikil og þjón­ustan við umsækj­endur sömu­leiðis. Starfs­menn Íslenskrar ætt­leið­ingar fylgja fjöl­skyldun lengi eftir, allt frá fyrsta við­tali og í sumum til­vikum þar til barnið nær 18 ára aldri. Þá hafa ný verk­efni bæst við, til dæmis aðstoð við upp­runa­leit en réttur barna til að þekkja upp­runa sinn er nú vand­lega tryggður í lögum.

Verð­launin eru hið „dásam­lega krafta­verk,“ eins og Kristinn kemst að orði.

„Það tala allir um sím­talið,“ útskýrir hann. „Yfir­leitt var hringt í verð­andi mömmu; þær eru yfir­leitt dug­legri að vera í sam­bandi við okkur. En við tókum það upp að hringja í mömm­una og pabbann í hópsím­tali, þannig að for­eldr­arnir fá frétt­irnar á sama tíma. Og það er oft grátið ham­ingju­tárum í þessu sím­tali.“

Langt og strangt ferli

Ætt­leið­ing­ar­ferlið er langt og strangt en gróf­lega skipt­ist það í 5 áfanga; for­sam­þykki, umsókn til upp­runa­ríkis, pörun, að fá barnið og eft­ir­fylgni. Miklar kröfur eru gerðar til umsækj­enda, sem leggja á sig mikla vinnu til að láta draum­inn um nýjan fjöl­skyldu­með­lim ræt­ast.

Áður en sýslu­maður gefur út for­sam­þykki þurfa umsækj­endur að sækja fjöl­breytta fræðslu­fundi hjá Íslenskri ætt­leið­ingu, þar sem meðal ann­ars er fjallað um ábyrgð kjör­for­eldra, til­finn­inga­tengsl, -myndun og -vanda, vænt­ingar og breyt­ingar, og mun­inn á því að eign­ast barn í gegnum ætt­leið­ingu og með öðrum leiðum. Þá fá umsækj­endur fjórar heim­sóknir frá barna­vernd­ar­yf­ir­völdum.

Þegar pörun hefur átt sér stað fara læknir, lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingar Íslenskrar ætt­leið­ingar yfir gögnin áður en umsækj­endur eru látnir vita. Þeir kynna sér síðan þau gögn sem liggja fyrir og gefa svar en í kjöl­farið hefst und­ir­bún­ingur fyrir ferð­ina til að sækja barnið.

Yfir­leitt dvelur nýja fjöl­skyldan í upp­runa­land­inu í nokkurn tíma, á meðan beðið er eftir sam­þykki þar­lendra yfir­valda. Þegar heim kemur þarf að stað­festa rétt­ar­á­hrif ætt­leið­ing­ar­innar og þá heim­sækir félags­ráð­gjafi á vegum Íslenskrar ætt­leið­ingar fjöl­skyld­una, sam­kvæmt skil­yrðum upp­runa­lands­ins. Félagið heldur áfram að veita ýmsan stuðn­ing, meðal ann­ars í formi fræðslu og við­burða, og fylgir börn­unum eftir allt að 18 ára aldri.

Miklar kröfur gerðar til verðandi foreldra

Misjafnt er eftir upp­runa­löndum hverjir mega ætt­leiða. Lág­marks­aldur umsækj­enda mið­ast oft við 25 eða 30 ár og þá gilda ákveðnar reglur um hámarks­aldur. Einnig eru gerðar kröfur um lág­marks- og hámarks­ald­urs­bil milli umsækj­enda og barns.

Í Tékk­landi njóta barn­lausir umsækj­endur yfir­leitt for­gangs en hags­munir barns­ins eru þó ávallt hafðir að leið­ar­ljósi. Í sumum löndum gilda reglur um hjú­skap­ar­stöðu para og þá stendur ein­hleypum karl­mönnum ekki til boða að ætt­leiða frá Kína eða Tógó. Sam­kyn­hneigðir geta aðeins ætt­leitt frá Kólumbíu.

Öll sam­starfs­lönd Íslenskrar ætt­leið­ingar gera kröfu um traustan fjár­hag umsækj­enda og góða lík­am­lega heilsu. Í sumum lönd­unum, t.d. Kólumbíu og Kína, er aðeins hægt að sækja um að ætt­leiða eldra barn eða barn með skil­greindar þarfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi