Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spillingarhætta fyrir hendi

Eftir fjár­mála­hrunið árið 2008 hrundi traust til helstu stofn­ana sam­fé­lags­ins og þá sér­stak­lega til Alþingis og fjár­mála­stofn­ana. Illa hefur gengið hjá stjórn­völdum að end­ur­heimta traustið í kjöl­farið og í nið­ur­stöðum síð­ustu könn­unar Gallups, sem birt var í febr­úar 2019, um traust til stofn­ana kemur í ljós að traust til Alþingis mælist ein­ungis 18 pró­sent. Það er um 11 pró­sentu­stigum minna en í könnun Gallups árið áður.

Spillingarhætta fyrir hendi
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er lögð umtals­verð áhersla á traust. Þar stendur meðal ann­ars: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu.“ Til að fylgja þessu mark­miði eftir skip­aði Katrín starfs­hóp strax í jan­úar 2018 sem hafði það hlut­verk að efla traust á stjórn­mál og stjórn­sýslu.
Starfs­hóp­ur­inn skil­aði skýrslu um mál­efnið í sept­em­ber sama ár þar sem lagðar voru fram 25 til­lögur til að efla traust á stjórn­sýsl­unni. Í skýrslu starfs­hóps­ins segir að Íslend­ingar hafi farið sér hægar en nágranna­þjóðir í aðgerðum til að tryggja heil­indi í opin­berum störfum og að hér á landi hafi minna til­lit verið tekið til til­mæla og leið­bein­inga alþjóð­legra stofn­ana um varnir gegn spill­ingu en æski­legt hefði verið.

Þar á meðal eru til­mæli frá GRECO, sam­tökum ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins, sem sett voru fram í fimmtu úttekt sam­tak­anna á Íslandi. Þá var mælst til þess að settar yrðu reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds við hags­muna­verði og aðra sem leit­ast við að hafa áhrif á störf stjórn­valda.

Afar tak­mark­aðar reglur hafa verið settar hér á landi um hags­munavörslu, sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps­ins. Þingmönnum, ráðherrum, aðstoð­armönnum þeirra eða emb­ætt­ismönnum er til að mynda ekki skylt að skrá sam­skipti sín við hags­muna­að­ila sérstak­lega, hvort sem um er að ræða bein tengsl við fyr­ir­tæki eða for­ystu­menn þeirra eða við hags­muna­verði fyr­ir­tækja eða sam­taka.

Starfs­hóp­ur­inn taldi það mik­il­vægt að gæta sérstak­lega að þremur þáttum í sam­skiptum stjórn­valda við hags­muna­að­ila. Í fyrsta lagi þyrfti að vera hafið yfir allan vafa að jafn­ræði ríkti um aðkomu hags­muna­að­ila. Í öðru lagi að tryggja að ekki væri hægt að halda því fram að sérhags­munir væru teknir fram yfir almanna­hags­muni og í þriðja lagi þyrfti að ríkja gagn­sæi um aðkomu hags­muna­að­ila, þar á meðal um sam­skipti við ráðherra, þing­menn og opin­bera starfs­menn.

Í kjöl­far skýrsl­unnar hefur for­sæt­is­ráðu­neytið birt áform um laga­setn­ingu þess efnis í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem byggð eru á til­lögum starfs­hóps­ins. Ráðu­neytið hyggst meðal ann­ars gera öllum aðilum sem sinna hags­munavörslu – þeim sem hafa það að aðal­starfi að tala máli einka­að­ila, eins eða fleiri, gagn­vart handhöfum ríkis­valds – skylt að til­kynna sig til stjórnvalda svo unnt sé að birta opin­ber­lega skrá yfir þá. Þar á meðal eru almanna­tenglar og lög­menn sem koma fram fyrir hönd til­tek­inna aðila. Og auð­vitað þeir sem starfa beint fyrir hags­muna­sam­tök.

Þá gerir ráðu­neytið ráð fyrir að skráin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda og á vef Stjórnarráðs Íslands. Jafn­framt segir ráðu­neytið að skoða þurfi hvort og þá hvaða við­urlög eigi að vera við því að van­rækja til­kynn­inga­skyld­una.

Enn fremur er fyr­ir­hugað að mælt verði fyrir því í laga­frum­varp­inu að ráðherrar, aðstoð­ar­menn, ráðuneyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar og sendi­herrar geti ekki í til­tek­inn tíma eftir að opin­beru starfi lýkur gegnt starfi fyrir skráða hags­muna­verði. Gert er ráð fyrir þeirri meg­in­reglu að fram­an­greindir aðilar þurfi að bíða í átta mánuði frá starfs­lokum en þó með und­an­tekn­ingum.

Starfs­hóp­ur­inn lagði þessa til­lögu fram í ljósi þess að þegar ein­stak­lingur sem starfað hefur fyrir hið opin­bera færir sig úr starfi er ann­ars vegar hætta á að hags­munir verð­andi vinnu­veit­anda geti haft áhrif á ákvarð­anir á meðan ein­stak­lingur starfar enn fyrir hið opin­bera. Hins vegar er sá mögu­leiki fyrir hendi að upp­lýs­ingar sem við­kom­andi öðl­ast í starfi sínu séu nýttar á ótil­hlýði­legan hátt í þágu einka­að­ila þegar skipt er um starfs­vett­vang, en slíkt getur bæði haft ólög­mæt áhrif á sam­keppni og gengið gegn opin­berum hags­munum.

Ítarlega frétta­skýr­ingu má lesa um málið í nýjasta Mannlífi og á Kjarninn.is

Texti / Birna Stef­áns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi