Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ástvinir bornir til grafar með óheyrilegum kostnaði

Útfar­ar­kostn­aður getur hlaupið á háum fjár­hæðum og getur ein slík með erfi­drykkju kostað eina og hálfa milljón. Í mörgum til­vikum hefur hinn látni ekki lagt fyrir og eft­ir­lif­andi ætt­ingjar hafa ekki efni á útfar­ar­kostn­aði. Æ algeng­ara verður að vinir og ætt­ingjar setji af stað söfnun á sam­fé­lags­miðlum fyrir eft­ir­lif­andi maka og börn, oft­ast til að standa undir útfar­ar­kostn­aði.

Ástvinir bornir til grafar með óheyrilegum kostnaði
Mikill kostn­aður getur fylgt útförum.

Dauðinn kemur oft að óvörum og eftir standa ætt­ingjar og vinir í mik­illi sorg, en þurfa á sama tíma að ákveða jarð­ar­för með öllu sem henni fylgir og kostn­aði hennar, hvernig skal fara með eignir hins látna og fleira. Það er því gott við þessar aðstæður að eft­ir­lif­andi ætt­ingjar skoði vel hver kostn­að­ur­inn er, hvað er inni­falið og sníða sér stakk eftir vexti, eða efni og aðstæðum.

„Útfar­ar­kostn­aður getur oft komið eft­ir­lif­andi ætt­ingjum í opna skjöldu,“ segir Frímann Andr­és­son, útfar­ar­stjóri hjá Frímann og Hálfdán útfar­ar­þjón­ustu. „Ef slík staða kemur upp bendum við ætt­ingjum til dæmis á hvort þeir vilji ekki sleppa að greiða lík­klæði og koma frekar með föt að heiman, sleppa að kaupa blóma­skreyt­ingu og not­ast frekar við íslenska fán­ann sem kostar ekk­ert,“ segir Frímann aðspurður um þegar kemur upp að ætt­ingjar eigi ekki fyrir útför.

„Útfar­ar­kostn­aður getur oft komið eft­ir­lif­andi ætt­ingjum í opna skjöldu.“

Félagasamtök hlaupa oft undir bagga

Rétt er að athuga hvort við­kom­andi eigi rétt á útfar­ar­styrk hjá stétt­ar­fé­lagi sínu, sá réttur fyrn­ist hins vegar ef ein­stak­lingur nær háum aldri. Félaga­sam­tök eins og Oddfellow og Frí­múr­ara­reglan greiða útfar­ar­styrk fyrir sína félaga. Félags­þjón­ustan hleypur undir bagga ef ekk­ert er til í búinu og ætt­ingjar hafa ekki efni á útfar­ar­kostn­aði, algengt er að sú upp­hæð sé 150-200 þús­und krónur. Sú upp­hæð auk útfar­ar­styrks ætti því að duga fyrir lág­marks­út­far­ar­kostn­aði.

Kjósi ætt­ingjar það, sér útfar­ar­þjón­ustan sem valin er um allt ferlið. Tvennt er hins vegar nán­ast alltaf á hendi ætt­ingja: and­látstil­kynn­inar og erfi­drykkja.

Á heima­síðum útfar­ar­stofa má finna verð­skrár þeirra og er því ein­falt að skoða verð og bera saman. Verðið er þó ekki það eina sem ræður val­inu á útfar­ar­stofu, því margir vilja leita til ein­hvers sem þeir þekkja, treysta, hafa notið þjón­ustu hjá áður eða mælt hefur verið með.

„Umræðan sem hefur verið í gangi und­an­farin ár hvað varðar umhverf­is­mál og pláss sem fer undir kirkju­garða hefur áhrif á að bálfarir hafa auk­ist síð­ustu ár. Sú hugsun hefur verið meira ríkj­andi hjá yngri kyn­slóð­inni en er að fær­ast ofar í aldri,“ segir Frímann. „Svo er það praktíska hliðin að það er hægt að jarð­setja duft­ker í leiði ætt­ingja. Kostn­aður við bálför er sá sami og ef jarð­ar­för væri valin, nema til við­bótar þarf að kaupa duft­ker. Algeng­asta spurn­ingin er hvort þurfi að kaupa kist­una sé bálför valin og það er þannig, því elds­mat­ur­inn við bálför er við­ur­inn í kist­unni. Önnur lönd eru komin framar hvað þetta varðar, en í bili er staðan svona hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi