Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unnar Þór hættir sem gjaldkeri Pírata: „Ég get bara sagt ykkur það strax að þetta er sturlun“

Unnar Þór Sæmunds­son hefur gegnt störfum sem gjald­keri Pírata í eitt ár. Á aðal­fundi flokks­ins sem hald­inn var laug­ar­dag­inn 31. ágúst hélt Unnar Þór ræðu, en hann lætur nú af störfum sem gjald­keri.

Unnar Þór hættir sem gjaldkeri Pírata: „Ég get bara sagt ykkur það strax að þetta er sturlun“
Mynd / Hallur Karlsson|||

„Það sem hefur ein­kennt fjár­mál Pírata allt frá upp­hafi eru stöðugar kosn­ingar og þá meina ég ekki bara að við höfum verið að eyða pen­ingum því það er það sem allir tala um og ein­blína á heldur höfum við stöðugt verið að fá meira fjár­magn,” segir Unnar Þór meðal ann­ars í ræðu sinni.

Bókhald Pírata er nú opið og árs­reikn­ingur fyrir árið 2018 hefur verið birtur, en Píratar hafa verið gagn­rýndir fyrir að hafa ekki haft bók­haldið opið. Hefur Unnar Þór greint frá því að ein af helstu áherslum hans var að opna bók­haldið, eins og lög félags­ins gera ráð fyrir. Við­ur­kenndi hann þó að verk­efnið hefði verið bæði stærra og flókn­ara en hann hefði getað ímyndað sér.

„Ég get bara sagt ykkur það strax að þetta er sturlun.“

Kemur hann inn á að vinna og ábyrgð gjald­kera félags­ins hefur marg­fald­ast, en ekk­ert breyst í skipu­lagi eða vinnu sjálf­boða­liða félag­ins, en starf gjald­kera er sjálf­boða­liða­starf.

„Ég get bara sagt ykkur það strax að þetta er sturlun. Það starf sem ég hef verið að sinna er 100%“. Unnar Þór birti ræð­una í heild sinni í Facebook-færslu í gær og seg­ist hann skilja sáttur við emb­ættið, þó vissu­lega sé margt sem hann hefði viljað gera meira af, en eitt ár sé skammur tími.

Unnar Þór fer yfir stöðu flokks­ins hvað fjár­málin varðar og kemur inn á að í lok árs eru skuldir upp á 22 millj­ónir. Kemur hann inn á að sam­kvæmt lögum félags­ins má það skuld­setja sig, en ein­hverjir flokks­menn telja að svo eigi ekki að gera.

„Vanda­málið er marg­þætt og ég hef komið inn á ein­hverja þætti hér á undan, fjár­magn hefur auk­ist til muna, fjár­út­lát einnig sem og allur rekstur í félag­inu,“ segir Unnar Þór.

Einnig tekur hann fyrir „heitu kart­öfl­una,“ eins og hann nefnir hana: hvernig fjár­magni var form­lega deilt niður á aðild­ar­fé­lög í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum og heild­ar­kostnað vegna kosn­ing­anna.

„Ef farið er yfir bók­hald árs­ins 2018 sem er nú opið öllum og aðgengi­legt í gegnum vef­síðu Pírata undir bók­hald, má sjá að fjár­munum var ekki dreift jafnt niður á sveit­ar­fé­lög,“ segir Unnar Þór og segir að lag­færa þurfi ferla svo slíkt komi ekki fyrir aftur. „Hvernig við viljum að hreyf­ingin okkar virki fyrir alla félags­menn óháð búsetu eða tæki­færum á ferða­lögum, það er alveg ljóst að eitt­hvað er ekki að virka.“

Unnar Þór fer einnig yfir árangur fram­kvæmda­ráðs á liðnu starfs­ári og seg­ist hann hafa dregið mik­inn lær­dóm af störfum sínum sem gjald­keri.

„Mik­il­væg­asti lær­dóm­ur­inn er að læra að meta allt það óeig­in­gjarna starf sem svo ótrú­lega margir hafa tekið að sér og lært að bera meiri virð­ingu fyrir öllum þeim verk­efnum sem eru ósýni­leg öðrum,“ segir Unnar Þór að lokum og óskar eft­ir­manni sínum góðs gengis.

Bókhald og árs­reikn­ing Pírata má lesa á heima­síðu flokks­ins.

Ræðuna má lesa í heild sinni á Facebook-síðu Unnars Þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi