Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fullur þakklætis fyrir heilsuna og lífið

Ólafur Steph­en­sen missti systur sína úr krabba­meini fyrir einu og hálfu ári. Þremur mán­uðum eftir að Þóra systir hans lést lenti Ólafur í hjól­reiða­slysi, reyndar á afmæl­is­degi hennar, og hefur síðan farið í hverja aðgerð­ina á fætur annarri til að ná fullri hreyfi­getu á ný. Hver voru til­drög slyss­ins?

Fullur þakklætis fyrir heilsuna og lífið
„Já

„Á einum af þeim fáu fal­legu dögum sem við fengum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra­sumar vökn­uðum við Ragn­heiður eldsnemma og ákváðum að nýta morg­un­inn til að fara í hjóla­túr,“ segir Ólafur. „Verandi gam­all antisportisti lærði ég ekki að hjóla fyrr en ég var tutt­ugu og átta ára gam­all en hef dálítið hjólað síðan. Eftir að ég kynnt­ist Ragn­heiði, sem er dálítið hjólaóð, keypti ég mér fjalla­hjól og fékk svo lánað racer-hjól hjá félaga mínum. Var búinn að prófa það á hjóla­stígum inn­an­bæjar í ein­hverja daga og fannst það ógur­lega gaman þannig að ég var mjög spenntur fyrir því að hjóla Nesja­valla­veg­inn þennan dag. Þegar við vorum á leið­inni til baka var ég kom­inn á milli 30 og 40 kíló­metra hraða, þegar ég lenti með fram­dekkið í sprungu á veg­inum. Síðan tók við lausa­möl þegar ég var að reyna að ná jafn­væg­inu aftur og svo bara man ég ekki meira. Ég flaug af hjól­inu og stein­rot­að­ist þannig að þegar Ragn­heiður kom að mér and­aði ég eitt­hvað lítið og hægra við­beinið stóð út í jakk­ann minn, ég var sem sagt með opið bein­brot í öxl­inni. Ef ég hefði ekki verið með hjálm væri ég nátt­úr­lega stein­dauður, en ég slapp með höf­uð­högg og svo­lítið af bein­brotum.

Við­beins­brotið var erf­ið­ast viður­eignar en afleið­ing­arnar af höf­uð­högg­inu voru þær að ég sá tvö­falt til að byrja með. Það gekk yfir á nokkrum vikum og mér var sagt að það væri ekk­ert óal­gengt eftir heila­hrist­ing. Ég var frá vinnu í þrjár vikur en skröngl­að­ist svo af stað aftur og fór kannski of geyst, ég veit það ekki.

„Þegar Ragn­heiður kom að mér and­aði ég eitt­hvað lítið og hægra við­beinið stóð út í jakk­ann minn, ég var sem sagt með opið bein­brot í öxl­inni. Ef ég hefði ekki verið með hjálm væri ég nátt­úr­lega stein­dauður.“

Við­beinið var skrúfað saman með stál­p­lötu en sú við­gerð hélt ekki, þannig að ég þurfti að fara í annan upp­skurð í des­em­ber þar sem sett var í mig veiga­meiri stál­p­lata. Hún var svo tekin úr mér aftur núna í maí með þriðju skurð­að­gerð­inni og síðan er ég búinn að vera að reyna að koma mér aftur í form. Ég hef líka verið dug­legur að synda og á tíma­bili vakti ég mikla athygli og fólk gaf sig gjarnan á tal við mig í Laug­ar­dals­laug­inni af því að ég synti bara með annarri hend­inni. Nú er ég far­inn að geta gert flest sem ég gat fyrir ári. Áhuginn á hjól­reiðum hefur þó heldur dalað, ég er búinn að fara í einn hjóla­túr í sumar, nokkurn veg­inn réttu ári eftir að ég datt, og ég verð að við­ur­kenna að fyrstu kíló­metrana var ég bara skít­hræddur en það rjátl­að­ist sem betur fer af mér. En ég hugsa að ég fari voða­lega var­lega í hjól­reið­unum hér eftir. Ég hjólaði í vinn­una einn dag­inn og tók tím­ann á mér og nið­ur­staðan var sú að ég hjóla hægar en ég hleyp, þannig að þú sérð að ég fer óskap­lega var­lega til að byrja með.“

Ólafur við­ur­kennir að síð­asta eina og hálfa árið hafi verið ansi erfitt en seg­ist hafa tek­ist á við það sem upp á hefur komið með því að ræða öll mál við sína nán­ustu. Þessi reynsla hafi þó að ýmsu leyti breytt lífs­sýn hans.

„Fyrst og fremst finnst manni líf og heilsa ekk­ert sjálf­sagðir hlutir lengur,“ segir hann hugsi. „Ég var mjög hepp­inn að slasa mig ekki verr í þess­ari byltu og er líka hepp­inn að vera laus við alls kyns ill­víga sjúk­dóma sem fólk er að glíma við allt í kringum mann. Þannig að í raun­inni hefur þetta fyllt mig af þakk­læti fyrir heils­una, lífið og það sem ég hef og ég tek hlut­unum síður sem sjálf­sögðum.“

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi