Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Af hverju erum við að standa í þessu hljómsveitarbrölti?“

Guð­mundur Jónsson, tón­list­ar­maður og tækni­teikn­ari, var að senda frá sér nýja plötu ásamt félaga sínum og nafna Guðmundi Gunn­laugs­syni. Platan heitir Punch, er í rokk­uðum blús­stíl og flest lögin frum­samin eftir þá félaga.

„Af hverju erum við að standa í þessu hljómsveitarbrölti?“
Nafn­arnir Guð­mundur Jónsson og Guð­mundur Gunn­laugs­son skipa dúett­inn GG blús. Mynd / Jón Önfjörð Arn­ars­son.|GG blús á sviði á Blús­há­tíð Reykja­víkur. Mynd/ Ásta Magn­ús­dóttir.

„Dúettinn heitir GG blús af því að við berum báðir nafnið Guð­mundur og grunn­stefið í tón­list­inni okkar kemur frá blús­num. Félagi minn Gunn­laugs­son spilar á trommur og ég á gítar og svo syngjum við báðir,“ segir Guð­mundur sem var í hljóm­sveit­inni Sálinni hans Jóns míns um ára­bil. Nafni hans gerði garð­inn frægan í bítla­band­inu Sixtíes og blús­band­inu Kentár, ekta blús­ari inn að beini. „Við erum búnir að þekkj­ast lengi og höfum spilað oft saman í gegnum tíð­ina, en þetta sam­starf hófst 2017, stuttu eftir að ég flutti út á Álftanes þar sem Gummi hefur verið búsettur frá barn­æsku. Í ein­hverju bríaríi og leið­indum ákváðum við að hitt­ast einn dag­inn í æfinga­hús­næð­inu hans og fremja ein­hvern hávaða. Planið var alltaf að fá ein­hverja aðra með til liðs en fáir eru eins æfingaglaðir og við, þannig að við létum þetta bara virka tveir með þartil­gerða gít­ar­fetla og hug­vit­semi í útsetn­ingum. Við æfðum slatta af sígrænum ábreiðum af meiði blús­rokks­ins, tón­list­ar­stefnu sem hugn­ast okkur báðum og búið er að gera ansi góð skil í gegnum tíð­ina en fyrir okkur var ferskt að arka þessa marg­troðnu slóð svona fámennir. Það lá auð­vitað bein­ast við að nefna dúett­inn GG blús og síðan voru knæpur Reykja­víkur og nágrennis heim­sóttar og flutn­ing­ur­inn og þel slípað. Hápunkt­inum var síðan náð er við spil­uðum á Blús­há­tíð Reykja­víkur við góðan orðstír fyrr á þessu ári.“

GG blús á sviði á Blús­há­tíð Reykja­víkur. Mynd/ Ásta Magn­ús­dóttir.

„Hvað viljum við fá út úr líf­inu?“
Félag­arnir í GG blús hafa síð­asta hálfa árið unnið að sinni fyrstu plötu. Hún inni­heldur sjö frum­samin lög og þrjár ábreiður. Hún skartar þremur góðum gestum, þeim Sigurði Sig­urs­syni á munn­hörpu, Jens Hanssyni á sax­ó­fónn og pönk-blús-goð­sögn­inni Mike Pollock, sem syngur og semur einn ópus með þeim. „Á plöt­unni tekst frasa­skotin gít­ar­vinna á við óham­inn trommu­slátt­inn og gríp­andi söng­línur fljóta yfir með trega­fullum enskum textum, ásamt hljóð­brotum og þanka­gangi úr ýmsum áttum. Við erum trúir blús­hefð­inni en samt mót­tæki­legir nútím­anum,“ segir Guð­mundur en text­arnir eru allir á ensku þar sem þeir voru með áferð­ina á verk­inu í huga. „Á plöt­unni eru þrjár ábreiður á ensku og okkur fannst stíl­brot að hafa innan um þau lög sungin á íslensku. Text­arnir eru vilj­andi hafðir ansi trega­fullir, enda heitir bandið GG blús, þó að stundum komi upp­byggi­legur tónn af og til.“

Platan ber heitið Punch, eftir sam­nefndu loka­lagi plöt­unnar. „Textinn hugn­ast okkur ágæt­lega sem loka­hnykkur því hann endar á lín­unum „Your baby‘s smile, your songs and rhymes are the real things you leave behind“, sem eru hug­renn­ingar sem við höfum oft verið að gant­ast með er við höfum spurt okkur í augna­bliks von­leysi, af hverju erum við að standa í þessu hljóm­sveit­ar­brölti – hvað er það sem við viljum fá út úr líf­inu og komum til með að skilja eftir.“

Sálin var ein­stök
Nú er þessi tón­list til­tölu­lega ólík því sem þú hefur gert til dæmis með Sálinni, hefur þú alltaf verið mik­ill blús­ari og rokk­ari inn við beinið? „Ég held að flestir gít­ar­leik­arar og sér­stak­lega af minni kyn­slóð hafi óhjá­kvæmi­lega orðið fyrir áhrifum af blús­num. Ég hef kannski núna síð­ustu árin fyrst leyft mér að sleppa mér lausum, hef komið að fjórum rokk­plötum und­an­farin miss­eri, tveimur með hljóm­sveit­inni Nykur og einni með Trú­boð­unum og svo er það þessi. Sálin var ein­stök hljóm­sveit með frá­bærum lista­mönnum og það varð alltaf til ein­hver galdur er við unnum saman. Hún var fyrst og fremst popp­band með ræt­urnar í sál­ar­tón­list, en tókst líka á við marga aðra stíla og stundum rokk. Svo er alltaf hollt að taka áskorun reglu­lega og finna nýja vinkla. Með GG blús var það upp­setn­ingin á band­inu sem heill­aði mig strax, okkur lang­aði til að láta tón­list­ina virka með því að brúka ein­göngu grunn­el­em­entin; gítar, trommur og söng. Þá fer maður að hugsa út fyrir kass­ann og skemmti­legir hlutir ger­ast; virkja and­ann í hömlum naum­hyggj­unnar og þeim spila­stíl sem við höfum verið að þróa með okkur við ábreiðu­flutn­ingin und­an­farin miss­eri.“

„Sálin var ein­stök hljóm­sveit með frá­bærum lista­mönnum og það varð alltaf til ein­hver galdur er við unnum saman.“

„Engin leið að hætta“
Aðspurður um önnur verk­efni seg­ist Guð­mundur oft­ast vera á útopnu, með milljón járn í eld­inum og þannig vilji hann hafa það. „En fyrst og fremst er ég fjöl­skyldu­maður, á ynd­is­lega konu og fjóra stráka. Svo hef ég unnið heið­ar­lega vinnu und­an­farin ár sem tækni­teikn­ari hjá arki­tekta­stof­unni Arkís, aldeilis frá­bæru fyr­ir­tæki og síðan þegar færi gefst þá stelst ég frá og þjóna tón­list­ar­gyðj­unni. Ég vann í sumar við að teikna og taka upp og hljóð­blanda GG blús plöt­una, en seinni­part­inn í júní fórum við fjöl­skyldan í frí til Frakk­lands og London sem var æðis­legt – stund milli stríða,“ segir Guð­mundur.
Platan er nú þegar komin út á Spotify og síðan er hægt að nið­ur­hala hana frá Bandcamp gegn vægu verði. „Svo er von á geisla­disknum á næstu dögum sem fer snar­lega í þessar fáu versl­anir sem enn selja tón­list í hand­fjatlandi umbúðum. Útgáfu­tón­leikar verða síðan á Hard Rock Café, Lækj­ar­götu, föstu­dags­kvöldið 30. ágúst næst­kom­andi.
Hvað annað er fram undan? „Fyrir utan að fleyta þess­ari plötu áfram niður straum­inn og spila í kjöl­farið hell­ing af tón­leikum, þá er svo sem ekk­ert fast í hendi, nema auð­vitað óvissan og kvíð­inn. En ég verð fljótur að leggja við eyru við eitt­hvað skemmti­legt ef ég þekki mig rétt – það er engin leið að hætta eins og frægur popp­ari orð­aði það svo rétti­lega hér um árið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi