Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Besta höfnun sem ég hef fengið“

Leik­konan Berglind Halla Elí­as­dóttir útskrif­að­ist af sviðs­lista­braut Lista­há­skóla Íslands í vor og tekur nú þátt í fyrstu stóru leik­sýn­ing­unni sinni, verk­inu We Will Rock You Ísland sem frum­sýnt var í Háskóla­bíói í gær. Berglind er alin upp í Bol­un­ar­vík og segir það hafa gefið sér gott vega­nesti út í lífið.

„Besta höfnun sem ég hef fengið“
Berglind Halla Elí­as­dóttir fer með hlut­verk Oz

„Ég sá pruf­urnar fyrir söng­leik­inn aug­lýstar á Facebook og fannst lítið annað koma til greina en að fara,“ segir Berglind. „Ég var ekk­ert gríð­ar­lega bjart­sýn eftir fyrstu pruf­una en svo fékk ég „recall“, og annað, og að lokum sím­tal frá Vigni leik­stjóra sem bauð mér hlut­verkið. Ég leik Oz en hún er upp­reisn­ar­seggur sem berst gegn yfir­vald­inu í heimi þar sem frjáls hugsun og list­sköpun er bönnuð. Alger töffari og hörku­tól. Svo datt ég inn í auka­hlut­verk sem kenn­ari í upp­hafi verks­ins sem er gaman að leika sér með líka.“

Mikill söngur er í verk­inu en Berglind byrj­aði fyrst að læra söng í leik­list­ar­nám­inu. „Ég kem úr „syngj­andi fjöl­skyldu“ ef svo má að orði kom­ast og föð­ur­ættin er mjög mús­ík­ölsk sem hefur svo­lítið verið minn skóli í söng og fram­komu í gegnum tíð­ina,“ segir Berglind sem á einnig að baki píanó­nám frá grunn- og mennta­skóla­ár­unum. Margir flott­ustu leik- og söngv­arar lands­ins taka þátt í sýn­ing­unni og Berg­lindi finnst mik­ill heiður að starfa með þeim. „Ég, eins og svo margir, ólst upp við list­ina þeirra þannig það er mik­ill heiður að fá að vinna með og kynn­ast þeim. Það sama er að segja um alla aðra sem koma að sýn­ing­unni. Ótrúlega flottir og miklir fag­menn hérna og orkan geggjuð. Þetta er rosa­lega skemmti­legt.“

„Ég, eins og svo margir, ólst upp við list­ina þeirra þannig það er mik­ill heiður að fá að vinna með og kynn­ast þeim.“

Öðlaðist sjálf­stæði að alast upp í litlum bæ
Berglind fædd­ist á Ísafirði og er alin upp í Bol­ung­ar­vík. For­eldrar hennar búa fyrir vestan en Berglind og systk­ini hennar eru nú öll farin suður, eins og sagt er. „Ég var nokkuð aktívt barn, en með grunn­skól­anum lærði ég á píanó, spil­aði fót­bolta og æfði einnig sam­kvæm­is­dans í nokkur ár. Ég útskrif­að­ist svo sem stúd­ent af nátt­úru­fræði­braut við Mennta­skól­ann á Ísafirði, 2012. Þar tók ég að sjálf­sögðu þátt í leik­fé­lagi skól­ans, MORFÍs, og skóla­kórnum en ég fór einnig í skipti­nám í eitt ár til Frakk­lands. Eftir stúd­ents­próf flutti ég suður og bý núna í Laug­ar­dalnum með kærast­anum mínum, Bolla Má Bjarna­syni. Það var frá­bært að alast upp í Bol­ung­ar­vík. Mikið frelsi og maður varð snemma frekar sjálf­stæður. Það er auð­vitað tak­markað fram­boð af tóm­stundum og þess háttar í svona litlu sam­fé­lagi en maður fann lítið sem ekk­ert fyrir því. Það kall­aði líka á frjótt ímynd­un­ar­afl – að finna sér eitt­hvað að gera og kunna að nota umhverfið sitt.“

Eftir stúd­ents­prófið fór Berglind í tann­smíði en hætti fljót­lega. „Ég fór í tann­smíði því ég þekkti stelpu sem hafði klárað námið og tal­aði um hvað verk­legi hlut­inn væri skemmti­legur. Það hljóm­aði geggjað því ég hef alltaf haft gaman af handa­vinnu. Ég komst svo ekki í gegnum klásus um jólin og það reynd­ist vera ein besta höfnun sem ég hef fengið. Ég tók nokkra valá­fanga á vor­önn, kláraði árið og tók svo þá ákvörðun að fara ekki í nám um haustið og fór að vinna hjá leik­skól­anum Grænu­borg.

„Ég fór í tann­smíði því ég þekkti stelpu sem hafði klárað námið og tal­aði um hvað verk­legi hlut­inn væri skemmti­legur.“

Frá því að ég man eftir mér sagð­ist ég ætla að verða leik­kona eða list­mál­ari. Málið er að ég beit það í mig þegar ég var ung­lingur að hug­myndin um að ég gæti orðið leik­kona væri frá­leit þar sem ég byggi í Bol­ung­ar­vík – það væri bara fólk í Reykja­vík sem gæti fetað þennan veg. Það útskýrir ágæt­lega ástæð­una fyrir fyrsta náms­ár­inu í HÍ. Í Grænu­borg kynn­ist ég Evu Jóhanns­dóttur, góðri vin­konu minni í dag, sem kynnti mig fyrir Kvik­mynda­skól­anum og ég ákvað að fara í leik­list og kvik­mynda­gerð. Ég kláraði þar vorið 2016 og um haustið byrj­aði ég svo í leik­ara­námi á sviðs­lista­braut Lista­há­skóla Íslands og útskrif­að­ist þaðan með BA-gráðu í vor.“

We Will Rock You Ísland var frum­sýnt í Háskóla­bíói í gær og næstu sýn­ingar verða á morgun og 23. ágúst. „Svo voru tvær auka­sýn­ingar að detta í hús sem er bara frá­bært. Sýnum þá einnig síð­ustu helg­ina í ágúst og fyrstu í sept­em­ber. Fram undan er síðan óvissan en örugg­lega eitt­hvað dásam­legt. Ég hlakka bara til að sjá hvað fram­tíðin hefur að geyma,“ segir Berlind að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi