Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Í fullkomnum heimi þarf ekki siðanefndir“

Meg­in­til­gangur nýrra siða­reglna fyrir alþing­is­menn er að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla til­trú og traust almenn­ings á Alþingi. Margir hafa þó efast um gildi siða­reglna – sér­stak­lega í ljósi þess að erfitt hefur reynst að fá sátt um siða­reglur og þá sér­stak­lega siða­nefndir. Gríð­ar­lega mikil umræða hefur sprottið upp í kjöl­far nýlegra nið­ur­staðna for­sætis­nefndar þar sem hún féllst á álit siða­nefndar í nokkrum umdeildum málum.

„Í fullkomnum heimi þarf ekki siðanefndir“
Mynd / Bára Huld Beck|Sigurður Krist­ins­son
Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í heim­speki við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri.

Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í heim­speki við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, hefur skrifað bók og greinar um siða­reglur til fjölda ára. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að til­gang­ur­inn með siða­reglum sé marg­vís­legur. Að hans mati er þó mik­il­væg­asti til­gangur skráðra siða­reglna sá að bæta menn­ingu innan hóps­ins sem setur sér regl­unar. Það þýði að þessi hópur hagi sam­skiptum sínum og vinnu­brögðum á betri hátt með til­liti til til­gangs hóps­ins.

Þá sé hægt að spyrja sig hvort „dýnamíkin“ innan hóps hjálpi honum að sinna hlut­verki sínu vel og ef svo er ekki þá þurfi að bæta menn­ing­una innan hans. Að setja siða­reglur væri þá aðferð til að gera hann betur færan til að sinna sínu hlut­verki og gætu þær jafn­framt miðlað upp­safn­aðri þekk­ingu. Þá sé hægt að læra af mis­tökum, til að mynda er varða sam­skipti og freistni­vanda.

Umræðan ætti að verða málefnalegri

„Með því að setja siða­reglur er gerður nokk­urs konar sátt­máli innan hóps­ins,“ segir Sigurður. Þá lofi fólk – þegar það gengst við siða­regl­unum – að standa við þær gegn því að aðrir geri það líka og að taka þær fram yfir sína eigin hags­muni. Hann bendir á að siða­reglur miðli einnig mik­il­vægum skila­boðum út á við, það er þegar lof­orð er gefið til skjól­stæð­inga, eða í til­viki stjórn­mála­manna til kjós­enda sem síðan dæma gjörðir þeirra á end­anum.

„Þegar slíkur sátt­máli er kom­inn þá verður umræðan mál­efna­legri,“ segir hann og bætir því við að í þeim til­fellum verði siða­reglur hjálp­ar­tæki þegar á þarf að halda.

Sigurður segir að til­gangur siða­reglna sé að bæta þessa menn­ingu og að þær séu þetta hjálp­ar­tæki, meðal ann­ars til að sam­ræma vænt­ingar – frekar en ytra eft­ir­lit. „Lyk­il­at­riðið er að þær eru liður í sjálf­ræði hóps­ins, sam­eig­in­legar reglur. Þær virka ekki sem ytra vald­boð.“ Mik­il­vægt er, að hans mati, að vandað sé til verka þegar siða­reglur eru gerðar. „Ferlið skiptir oft meira máli en útkoman sjálf,“ segir hann. Á end­anum sé engin for­skrift að siða­reglum.

Fara verður varlega í að beita viðurlögum

Þegar talið berst að siða­reglum þing­manna segir Sigurður að fara verði var­lega í það að beita við­ur­lögum. „Ef við lítum á siða­reglur sem innri og ytri sátt­mála þá koma ytri við­ur­lögin frá kjós­endum.“ Þeir ákveði með atkvæði sínu hvort þing­menn hafi staðið við sátt­mál­ann. Hvað varðar innri sátt­mála þá væri hægt að líta svo á að ef þing­menn brjóta siða­reglur þá njóti þeir ekki trausts innan þings­ins. Viðurlög gætu í því til­felli verið tíma­bundin, þeir gætu til að mynda ekki verið for­menn í nefndum eða sinnt ákveðnum trún­að­ar­störfum. Þessi leið er þó vand­með­farin, að mati Sigurðar.

Hann segir enn fremur að siða­reglur geti verið til trafala í erf­iðum og flóknum málum á borð við Klaust­urs­málið. „Það er alltaf sú hætta fyrir hendi að þegar búið er að setja upp siða­nefnd sem úrskurðar um brot þá fari málið að snú­ast um máls­með­ferð – eins og fyrir dóm­stólum.“ Kost­ur­inn við að hafa siða­reglur en ekki siða­nefnd er sá að þá sé skýr­ara að hlut­verk regln­anna sé að styðja við mál­efna­lega umræðu og ígrundun.

Á hinn bóg­inn séu ákveðin rök fyrir því að setja á fót sér­staka siða­nefnd, til dæmis hjá fag­fé­lögum. Það geti verið liður í að vernda skjól­stæð­inga og þá gef­ist fólki jafn­framt kostur á að verja sig gegn til­hæfu­lausum ásök­unum. Vandaðir úrskurðir geta búið til gagn­leg við­mið.

En hvað þyrfti Alþingi að gera til að öðl­ast traust almenn­ings og þing­heims? Sigurður telur það skyn­sam­legt að end­ur­skoða siða­regl­urnar og ferlið í heild sinni á ný, eins og til stendur að gera í vetur. „Mér finnst það vera aðal­at­riðið að allir þing­menn­irnir hafi sam­ráð og að úr verði raun­veru­legur sátt­máli milli þeirra.“ Þá vonar hann að sú end­ur­skoðun verði ekki gerð að póli­tísku bit­beini og að áhersla verði lögð á að regl­urnar séu fáar og almennar. Með umræðum um siða­reglur þok­ist málin í átt að nið­ur­stöðu sem almenn sátt geti verið um.

Siðanefndir óþarfar í fullkomnum heimi

„Í full­komnum heimi þarf ekki siða­nefndir heldur bara almenn við­mið til að umræðan þok­ist í ein­hverja góða átt. Í ófull­komnum heimi þarf stundum siða­nefnd,“ segir Sigurður. Hann telur jafn­framt að sem flestir þing­menn þurfi að taka þátt í að skapa ferlið – vegna þess að það sé sann­ar­lega sam­fé­lags­sátt­máli.

„Heppi­leg­ast væri að hafa siða­nefnd­ina án tengsla við stjórn­málin, þá koma síður upp van­hæfn­is­spurn­ingar,“ segir hann. Þá sé mik­il­vægt að for­sætis­nefnd mati ekki siða­nefnd, að hún hafi frjáls­ara umboð – það er taki við kvört­unum og setji sér sjálf starfs­reglur sem þingið stað­festi. „Vonandi skilar hún sér þessi vinna sem fram undan er,“ segir hann að lokum.

Nánar er fjallað um málið í frétta­skýr­ingu Kjarnans sem birt­ist á kjarn­inn.is og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi