Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Íslendingar ættu að nýta þau tækifæri sem hljótast með auknum flutningum á norðurslóðum“

Heiðar Guð­jóns­son, for­maður Efna­hags­ráðs norð­ur­skauts­ins og for­stjóri Vodafone og Stöðvar 2, segir í sam­tali við Kjarnann ýmsa kosti vera fyrir Ísland við þátt­töku í Belti og braut, meðal ann­ars aðgangur að gríð­ar­legu fjár­magni til að byggja upp inn­viði. Þá séu kost­irnir sér­stak­lega miklir fyrir skipa­fé­lög, verk­taka og flug­fé­lög sem felist í flutn­inga­tengdum innviðum og gagna- og vöru­flutn­ingum. Ítarleg frétta­skýr­ing um Belti og braut eru í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á kjarn­inn.is.

„Íslendingar ættu að nýta þau tækifæri sem hljótast með auknum flutningum á norðurslóðum“
Heiðar Guð­jóns­son

„Innviðir á Íslandi eru tak­mark­aðir og miðað við hvað landið er ríkt hefur fjár­fest­ing í innviðum setið á hak­anum,“ segir Heiðar. „Ísland var í fyrnd­inni þjón­ustu­mið­stöð fyrir verslun á norð­ur­slóðum. Hafnir á Íslandi eru íslausar árið um kring og er Ísland eina norð­ur­slóða­landið með slíkar hafnir,“ segir hann. „Íslend­ingar ættu jafn­framt að nýta þau tæki­færi sem hljót­ast með auknum flutn­ingum á norð­ur­slóðum og ætti landið að vera þjón­ustu­mið­stöð í Atl­ants­hafi.“

Heiðar segir mik­il­vægt að þátt­taka í Belti og braut sé á for­sendum heima­manna, þannig að lög­sagan sé skýr. „Að Kín­verjar séu að öðl­ast yfir­ráð í löndum sem þeir fjár­festa í er fjar­stæðu­kennt,“ segir hann.

Með eða á móti ekki eina leiðin
Heiðar bendir á að Ísland hafi ekki ein­ungis þessa tvo kosti; að taka ann­að­hvort þátt eða ekki. Þriðji kost­ur­inn sé að fara að fyr­ir­mynd Finna, það er að skrifa ekki undir þátt­töku, heldur gera sér­samn­inga við kín­versk stjórn­völd um verk­efni sem rúm­ast til hliðar við Belti og braut. Þannig gangi Finnar ekki beint inn í heild­ar­verk­efni Beltis og brautar heldur geri sér­samn­inga um sér­stök verk­efni.

Hann segir að Norð­ur­löndin hafi enn ekki gerst form­legir aðilar að Belti og braut, en að Finnland fái gríð­ar­lega fjár­fest­ingu í sína inn­viði. „Finnland er með verk­efni að byggja neð­an­sjáv­ar­göng frá Helsinki til Tallin að verð­mæti 15 millj­arða evra þar sem bæði Kín­verjar og Evr­ópu­sam­bandið eru fyr­ir­ferða­mikil innan þess verk­efnis.“

„Annað verk­efni er fjár­fest­ing upp á 3 til 5 millj­arða evra fyrir járn­braut frá Rovaniemi til Kirkenes. Þar eru bæði kín­verskir aðilar og Evr­ópu­sam­bandið að fjár­festa,“ segir Heiðar. „Þessi fjár­fest­ing, að búa til sam­gönguæð frá Kirkenes til Finn­lands og tengja beint við Evrópu, skiptir Finna gríð­ar­lega miklu máli. Það er dæmi um verk­efni sem Kín­verjar taka mik­inn þátt í,“ segir hann.

Heiðar bendir á að Finnar leggi nú jafn­framt sæstreng Norð-Aust­ur­leið­ina, þar sem streng­ur­inn fari norður fyrir Síberíu og niður til Japan og Kína. „Ef Kín­verjar byggja inn­viði í Finn­landi þá hafa þeir ekki lög­sögu þar. Þeir taka áhættu með því að fjár­festa í land­inu. Þeir þurfa að haga sér í sam­ræmi við lög og reglur í við­kom­andi landi, ann­ars er hætta á að inn­viðir séu þjóð­nýttir.“

„Amer­ík­anar vilja alls ekki að við skrifum upp á svona samn­inga við Kína. Nú er kapp­hlaup hafið um upp­bygg­ingu inn­viða á norð­ur­slóðum,“ segir Heiðar. „Banda­ríkin reyna að stilla mönnum upp, segja „við eða þeir.“ Bretar hafa hins vegar sótt sér tæki­færi í því að semja bæði til aust­urs og vest­urs,“ segir hann og bætir því við að hann telji að Íslend­ingar ættu ekki að skipa sér í ákveðið lið. Far­sæl­ast væri að eiga við­skipti til bæði aust­urs og vest­urs.

Frétta­skýr­ing­una má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á kjarn­inn.is.

Texti / Guðbjörg Ríkey Th. Hauks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi